Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						8- LAUGARDAGUK   4. DESEMBER   1999

FRETTASKYRING

Hjámiðjumiðbær Aki

HAKALDUR

INGOLFSSON

SKRIFAR

„Akureyrarkringlan''

komin á skríð. Ðeilt iun

lireyl ingar á skipulagi -

miðbær eða ekki? Kaup-

menn uggandi. SMpu-

lagssrjóri og sldpulags-

nefnd á öndverðum

meiði. Hver verður

áframhaldandi þróun

svæðisins? Á að sökkva

miðbænum?

Fyrirhuguð bygging verslanamið-

stöð Rúmfatalagersins, KEA og

Heiri á Gleráreyrum hefur vakið

deilur, meðal annars um framtíð

miðbæjarins og verslunar almennt í

bænum. Þá hefur og vakið athygli

að sérfræðingur bæjarins í skipu-

lagsmálum hefur tjáð sig með af-

gerandi hætti gegn þeim hugmynd-

um sem að öllu óbreyttu munu

verða að veruleika.

Tvær stórverslanir, ein af milli-

stærð og sennilega um tuttugu

minni sérverslanir verða væntan-

Iega í hinni nýju miðstöð. Miðbæj-

arkaupmenn og aðrir kaupmenn

mótmæla - en til vara eru þeir í

startholunum, viðbúnir því að vera

með í „Akureyrarkringlunni". Ekki

er deilt um að umrætt svæði sé afar

gott að því leyti að þarna eru fjöl-

förnustu gatnamót bæjarins og frá

Gleráreyrum liggja vegir til allra

átta.

EignasMptasamningar tilbúnir

Á bæjarráðsfundi á fimmtudag var

samþykkt að heimila bæjarstjóra

„að undirrita fyrirliggjandi samn-

inga til þess að nauðsynlegir eigna-

skiptasamningar geti farið fram á

lóðinni að Dalsbraut 1, svo unnt sé

að úthluta félagi Rúmfatalagersins

og Kaupfélags Eyfriðinga bygging-

arlóð á austurhluta Dalsbrautar 1 í

samræmi við óskir þeirra." Á fund-

inum lagði bæjarstjóri fram drög að

samkomulagi verslananna og bæj-

arins, yfirlýsingu eigenda fasteigna

að Dalsbraut 1 um hlutdeild í

óskiptri lóð og samkomulag við

sömu eigendur vegna skipulags-

framkvæmda við Dalsbraut 1.

Þá var einnig endanlega sam-

þykkt í bæjarráði að Framkvæmda-

sjóður kaupi skuldabréf til fimm

ára af Skinnaiðnaði hf. fyrir 45

milljónir króna með breytirétt í

hlutafé frá ágúst á næsta ári. Þessi

ráðstöfun er hluti af heildardæm-

inu og meðal annars ætluð til að

auðvelda Skinnaiðnaði hf. flutning

í svokallað „Folduhús". Greiðist þar

með gata þeirra sem hyggja á bygg-

ingu verslanamiðstöðvar.

Stýritækjum ekM beitt

Arni Ólafsson, skipulagsstjóri Akur-

eyrarbæjar, ritaði grein í Dag 24.

nóvember þar sem fram kemur

meðal annars sú skoðun hans að

verslanamiðstöð af því tagi sem um

ræðir sé „hreinræktuð miðbæjar-

starfsemi og ætti því miðað við öll

markmið bæjarstjórnar og bæjar-

búa þar með að vera í miðbænum,"

eins og segir í greininni.

Þegar blaðið hafði samband við

Arna í gær hafði hann ekki lesið

þau gögn sem lögð voru fyrir bæjar-

ráð á fimmtudag, það er samkomu-

lagið sem þar var lagt fram. Hins-

vegar tekur hann undir það að nú

líti út fyrir að málið sé komið á það

stig að ekki verði aftur snúið. „Mér

heyrist tónninn vera þannig að bæj-

arstjórn sé ekki á þeim buxunum að

beita neinum stýritækjum í mál-

inu," segir Arni. „Þannig að þeir

samþykkja væntanlega það sem fyr-

irtækin eru að fara fram á, óbreytt

og athugasemdalaust."

Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri

segist ekki ætla að munnhöggvast

við skipulagsstjóra bæjarins í fjöl-

miðlum. „Sú umræða sem hefur

orðið um þetta svæði sem aðstöðu

fyrir verslanamiðstöð er á margan

hátt skiljanleg hjá þeim sem kvíða

því að setja þetta niður þarna. En

þá held ég líka að fólk verði að hafa

í huga hvar við höfum aðstöðu fyr-

ir KEA-Nettó og Rúmfatalagerinn í

dag. Þessi fyrirtæki hafa verið að

leita úrlausn mála í rétt um ár. Það

er vonum seinna að við því sé

brugðist." Kristján Þór segir að

þarna sé komin Iausn sem allir að-

ilar máls séu þokkalega sáttir við en

hins vegar hafi ekki verið pólitískur

vilji til að fara aðrar leiðir sem skoð-

aðar voru.

SkilgTeining eða sMpulag

Þórarinn E. Sveinsson, aðstoðar-

kaupfélagsstjóri KEA, sagðist f við-

tali í Degi í vikunni ekki telja að

gera þyrfti breytingu á aðalskipu-

lagi, þar sem ekki væri verið að færa

til miðbæinn, aðeins að umræddar

stórverslanir væru að færa sig nær

miðbænum.

Arni Ólafsson segir alveg ljóst að

hvort tveggja þurfi að gera breyting-

ar á deili- og aðalskipulagi. Aðal-

skipulagi þurfi væntanlega að

breyta í tvennum skilningi en að

hluta fari það eftir eðli byggingar-

innar. I fyrsta lagi þurfi að stækka

þann flöt sem tekinn er undir at-

hafnasemi á svæðinu, þar sem hluti

af því sem fer undir bílastæði sé

grænt svæði nú. Það sé aðalskipu-

lagsbreyting útaf fyrir sig. „Svo í

öðru lagi, ef þarna verður verslana-

klasi, þá er spurning um hvort

hreinlega verði breytt um „Iand-

notkunarlit" á skipulagsuppdrætti,

þannig að því sé breytt úr almennu

atvinnusvæði yfir í miðsvæði," segir

Arni.

Miðbæjarumhverfi

Þórarinn E. Sveinsson, aðstoðar-

kaupfélagsstjóri KEA, sagði í viðtali

í Degi í vikunni að ekki væri um til-

færslu miðbæjar að ræða. Arni ger-

ir athugasemdir við ummæli Þórar-

ins að því leyti að í fyrsta lagi segi

hann að umræddar verslanir séu

bara að koma sjálfum sér fyrir nær

miðbænum, í öðru lagi segi hann

að verið sé að útvega 3.000 fer-

metra fyrir aðra og í þriðja lagi sé

ekki verið að búa til miðbæjarum-

hverfi. „Þetta passar ekki saman,"

Ný verslanamidstöö KEA-Nettó, Rúmfatalagersins og fleiri mun rlsa á Gleráreyrum. Miðbæjarmenn vara við áframhaldaná

þessa verslanamiðstöð muni á örfáum árum rísa nýr miðbær, hvort sem menn ætli eða ekki. - m

segir Árni. Hann bendir á að miðað

við þær teikningar sem nú séu á

borðinu hjá hönnuðum umræddra

verslanafyrirtækja sé alveg á hreinu

að um miðbæjarumhverfi sé að

ræða. Þar sé gert ráð fyrir verslun-

argötu innan dyra, þvert yfir húsið,

og í húsinu annars vegar fjórum

stórum verslunum og hins vegar

mörgum smáverslunum við þessa

yfirbyggðu götu.

„Menn eru bara að Ijúga að sjálf-

um sér ef þeir ímynda sér það að

þetta sé ekki miðbæjarumhverfi,"

segir Arni. „Þetta er ekki í miðbæn-

um en þetta er miðbæjarumhverfi

sem menn eru að búa til. Alveg

sama hvaða ákvörðun menn taka,

þá verða þeir að gera það vitandi

vits. Jafnvel þó að bæjarstjórn sam-

þykki að þarna verði settur hjá-

miðjumiðbær, þá hljóta þeir að gera

það vitandi vits en ekki að gera það

þannig að þeir ljúgi því að sér sjálf-

ir að þetta sé ekki miðbær. Það er

óþolandi ef menn eru að samþykkja

hluti á röngum forsendum, þeir

geta tekið bæði réttar ákvarðanir og

rangar, en þeir verða að gera það

með réttum upplýsingum."

SMpulagsnefhd einhuga

„Það er búið að ganga frá þessum

lóðamálum, þannig að það verður

ekki aftur snúið," segir Vilborg

Gunnarsdóttir, formaður skipulags-

nefndar. Hún segir að nú Iiggi fyrir

að nefndin muni fara í deiliskipu-

lagsvinnu með lóðarhafa, huga að

umferðartengingum „...og síðan

þarf að fara þarna í smáræðis aðal-

skipulagsbreytingu, vegna þess að

þarna er inni grænt svæði, eitthvert

horn," eins og hún orðar það. Hún

segir skipulagsnefnd hins vegar al-

veg einhuga um að umrætt svæði

verði ekki miðbæjarsvæði. „Auðvit-

að komst vinnuhópur nefndarinnar

að því að æskilegra væri að hafa

þetta á öðrum stöðum," segir Vil-

borg. Hún bendir á að lagðar hafi

verið fram tillögur og þær sendar til

umræddra verslunarfyrirtækja en

tillögurnar hafi ekki hlotið hljóm-

grunn. „Nú vilja þeir fara þangað

og þá reynum við að gera það besta

úr þessu," segir Vilborg.

Vilborg segist ekki telja að mið-

bæjarverslunin sé í hættu. Stofnuð

hafi verið Miðbæjarsamtök, þar séu

stórhuga menn sem eru tilbúnir að

bretta upp ermarnar og talcast á við

samkeppnina. „Það er engin upp-

gjöf í þeirra hugum. Ræjarráð er

búið að skipa starfshóp sem á í

samvinnu við þá að huga að ýmsum

skipulagsmálum í miðbænum, þan-

nig að hugsanlega sé hægt að styrk-

ja hann. Við erum að vinna að

breytingum á miðbænum sjálfum

og ég tel að það séu allt aðgerðir til

að efla þann miðbæ sem fyrir er. Eg

heyri það að þeir eru ekkert á þeim

buxunum að gefast upp og ég kann

mjög vel við þann anda."

„Akureyrarkringlan" kom í fyrsta

sinn til skipulagsnefndar í gær-

morgun, þar sem umræddir samn-

ingar voru lagðir fram. Vilborg seg-

ir ekki hafa verið efnislega ástæðu

til umfjöllunar í skipulagsnefndinni

fyrr, þar sem umræddir samningar

hafi ekki Iegið fyrir. „Nú er það

komið inn á borð hjá nefndinni og

við munum setja vinnuna af stað í

samræmi við það samkomulag sem

gert var milli bæjarráðs og Ióðar-

hafa."

Áhyggjur skiljanlegar

Oddur Helgi Halldórsson bæjar-

fulltrúi segist ekki sjá neitt athuga-

vert við það að byggja yerslanamið-

stöð á Gleráreyrum. „Eg er ekkert

sérstaklega hræddur um að það

gangi af bænum dauðum," segir

Oddur Helgi en segist þó skilja

áhyggjur verslunarmanna og alls

ekki vilja gera lítið úr þeim. „Það er

Árni Ólafsson, skipulagsstjóri Akur-

eyrarbæjar: Hreinræktuð miðbæjar-

starfsemi.

Vilborg Gunnarsdóttir, formaður

skipulagsnefndar: Ekki miðbæjar-

svæði.

Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfull-

trúi: Áhyggjurnar skiljanlegar en

óþarflega miklar.

Ingþór Ásgeirsson, formaður Mið-

bæjarsamtakanna: Úttast áfram-

haldandi þróun á Gleráreyrum.

i   iiuiii  ¦>

• i    HI'J-Jl líiJJ ti.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16