Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						~wit;v«ífT

LAUGARDAGUR 15. JANUAR 2000

HELGARPOTTURINN

Reynir Traustason.

Reynir Traustason blaðamaður á DV ætl-

ar á næstu vikum að leggja land undir fót út

til Grænlands, þar sem hann hyggst dvelja í

einhverjar vikur og taka viðtöl við íslendinga

búsetta þar í landi, fyrir bók sem kemur út

næsta haust. Fyrst mun Reynir dvelja í höf-

uðstaðnum Nuuk, en fara á vormánuðum í

aðrar byggðir í Grænlandi og ræða við ís-

lendinga þar. Nokkur hópur íslendinga býr í

Grænlandi og þeir sem Reynir hyggst ræða

við eru meðal annars Kristjana Motzfeldt,

sem er gift Jónatani forsætisráðherra, og hjónin Gunnar Bragi

Guðmundsson og Halldóra Grétarsdóttir, en Gunnar stýrir

Nuka, sem er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Skammt frá

Kulusuk býr skipstjórinn Sigurður Pétursson sem Reynir gerði

frægan sl. sumar í viðtali undir fyrirsögninni ísmaðurinn ógurlegi, en

saga Sigurðar verður frekar sögó í væntanlegri bók.

Blaðið Austurland í Neskaupstað blómstrar

þessa mánuðina, undir öflugri ritstjóm

Karls Th. Birgisson, þess gamalreynda

blaðamanns. Frekar en hitt dregáf blaðið

taum Samfylkingarinnar, enda þó Austfirð-

ingar séu reyndar farfiir líka að afneita

henni. En fyrst fengu blaðamenn Austur-

lands þó staðfestingú~3ágæti ritstjórnar-

stefnu sinnar nú fyrir nokkrum..dögjjm þeg-

arvalinkunnur Austfirðingursagöi upp blað-

inu eftir áralanga uppskrift. Sá heitir Hjör-

leifur Guttormsson.

Þaó vakti nokkra athýgli að Kári Stefáns-

son, forstjóri (slenskrar erföagreiningar,

skyldi vera valinn Markaðsmaður ársins

1999 af ímark núna á fimmtudaginfLTöldtF

spekingar sumir hverjir að markaðssnilli

hans sneri einkum að stjómvöldum frekar en

almenningi og markaðnum þar með. En hvað

um það. Kári sló engu að síður í gegn meó

ímark-liðinu og undraðist m.a. allar þær

upplýsingar sem dómnefndin hefði aflað sér

um sig. Spurði hann hvort leyfi hefði fengist

fyrir því að fá þessar upplýsingar úr sínum

gagnagrunni! Gott skot hjá Kára...

Fyrrum forseti vor Vigdís Finnbogadóttir

er óþreytandi í barattu sinni fyrir bættum

heimi. Eftirhejgjnaferhúntil Austurlanda á

þing ^gjj^sanna. International Youth

FoundafJonTve'rkéfrií þingÉrts er að-raeóa

um og við ungt fólk í Jerúsalem, Palestínu,

og Jórdaníu, meóal annars um þörfina á að.

skilja eftir sunit af því sem liðið ér og horfa

til framtíðar.rneð .frió. í huga.

Hjörleifur

Guttormsson.

Kári Stefánsson.

Hann Jón Gnarr yiröist kunna vel við-sig á

sviði Loftkastalans. Hann æfir nú stift hlut-

verk taugaveiklaðs kvikmyndagagnrýhanda

sem stendur í skiínaði íleikriti sem heittr

Panodíl fyrir tvo og verður frumsýnt í Loft-

kastalanum 26. janúar. Qghann erekki bara

leikandi í verkinu

Jón Gnarr.

heldur líka þýðandi

þess en höfundur

er enginn annar en

Woody Allen. Með

Jóni Gnar í sýning-

unni eru Katla

Þorgeirsdóttir, Þorsteinn

Ingibjörg Stefáns-

Ffeygarður Jóhannsson, einn af stofnendum

Stoke-klúbbsins á íslandi. Hann var einn þeirra

sem voru ákveðnir í að fylgjast með heima-

leiknum við Preston á Sýn í gærkvöld.

Hata stofnað Stoke-

klúbb á íslandi

Stoke-klúbbur? Að sjálfsögðu. Knattspyrnuáhugamenn voru fljótir að taka við sér

þegar íslensku fjárfestarnir keyptu Stoke og Guðjón Þórðarson varð þar knatt-

spyrnustjóri. Þeir eru nú búnir að stofna áhangendaklúbb sem hefur það að meg-

inmarkmiði að skipuleggja ódýrar ferðir til Stoke.

Vigdís Finnbogadóttir.

Margrét

Guðmundsson,

dóttir og Jón Atli Jónasson.

Gríðarlegur áhugi hefur verið á

málefnum knattspyrnuklúbbsins

Stoke í Bretlandi á Islandi að und-

anförnu, á döfinni hefur yerið

stofnun hlutafélags og hlutabréfa-

kaup og að sjálfsögðu hafa íslenskir

ábangendur Stoke og aðdáendur

Guðjóns Þórðarsonar þjálfara fylgst

"þar náið með. Nokkrjr Stoke-menn

fengu þá hugmynd yfir kaffibolla í

haúst að stofna aðdáendaklúbb.

Formaður hans er Freygarður Jó-

hannsson, starfsmaður Samherja í

Grindavík.

.'¦  [

Hrifnir af Guðjóni

„Við höfðum mikinn áhuga á því

seni þessir íslensku fjárfestar voru

að gera og við vorum líka allir mjög

hrifnir af Guðjóni Þórðarsyní. Okk-

ur leist rosalega vel á Stoke. Enginn

okkar var fastbundinn ensku félagi

en við höfum fylgst með íþróttum

lengi. Það má eiginlega segja að

stofnendurnir séu blanda af mönn-

um úr ýmsum áttum," sagði Frey-

garður í símaviðtali í vikunni. „Eng-

inn okkar er heldur bundinn þó að

hann sé í klúbbnum.  Félagsaðild

bindur engan."

Stjórn Stoke-klúbbsins vill vinna

að bættri ferðaþjónustu milli Is-

lands og Stoke, til dæmis þegar lið-

ið er að leika heimaleik eins og var

til dæmis í gærkvöld þegar Ieikið

var gegn Preston. Stjórnarmönnum

Klúbburinn var strax aug-

lýstur og þegar er byrjað

að standa fyrir sjónvarps-

kvöldum til að klúbbfé-

lagar geti horft saman á

leiki og hvatt sína menn

alla leið frá íslandi.

þykja ferðir á knattspyrnuleiki f

Bretlandi alltof dýrar og ætla þeir

að einbeita sér að því að fá hagstæð

tilboð. Félagið mun líka aðstoða fé-

laga sína í ýmsum málum, til að

mynda er á döfinni að stofna hluta-

félag um hugsanleg hlutabréfakaup

í Stoke.

Komnir inn á vefinn

Stjórn klúbbsins hefur verið dugleg

þennan stutta starfstíma sem Iiðinn

er frá því ldúbburinn var stofnaður.

Klúbburinn var strax auglýstur og

þegar er byrjað að standa fyrir sjón-

varpskvöldum til að klúbbfélagar

geti horft saman á leiki og hvatt

sína menn alla lcið frá íslandi. Að

sjálfsögðu hefur klúbburinn líka

komið sér upp vefsfðu: www.sim-

net.is/stoke þar sem má finna ýms-

ar upplýsingar um klúbbinn. „Við

höfum verið sjálfir f þvf að setja ínn

efni'á síðuna," segir Freygarður.

Um 400 félagar eru í klúbbnum

nú þegar og Freygarður býst jafn-

vel við því að félagarnir verði

orðnir um .1.000 lalsins í Iok árs-

ins því að siöðugt berast nýjar um-

sóknir um félagsaðild . og fyrir-

spurnir um félagiðTHárin,er bjart-

sýnn á að starfsemin verði blóm-

leg og telur áríðandi að íslenskir

knattspyrnuáhugamenn flykki sér

um Guðjón Þórðarson og fylgist

með.

-GHS

Ingibjörg Stefánsdóttir.

Benedikt Erlingsson.

Spennandi verður að vita hverjir verða í hin-

um djarfa leikhópi sem tekst á hendur það

áhættusama verkefni að túlka öll verk

Shakespeare og sonnetturnar að auki á fjöl-

um Iðnós á næstunni - á nákvæmlega 97

mínútum. Dagur hefur njósnað að þarna sé

kostulegt leikverk á ferðinni, jafnvel með því

metnaðarfyllra sem hér hefur sést enda er

það búið að ganga fyrir fullu húsi í London

slðustu 10 árin. Aðeins þrír leikendur eru í

stykkinu og enn er allt á huldu um nöfnin en

sögur herma að maðurinn með ormstung-

una, Benedikt Erlingsson teljist líklegur.

MAÐUR VIKUNNAR ER UPPFINNINGATANNLÆKNIR

Tannlæknirinn hugmyndaríki, Egill Jónsson á

Akureyri, vinnur nú að þróun og prófun á svo frá-

bærri hugmynd að nýjung við tannfyllingar að ef

allt gengur að óskum munu fýrirtæki sem við á ís-

lenskan máta köllum í dag stórfyrirtæki verða að

peðum í samanburði svo mörgum þætti sem það

hálfa væri nóg. En ekki Agli. Hann hugsar um

heimsbyggðina alla, vill bæta tannheilsu fólksins,

vinnu tannlæknanna, rekstur þjóðarbúsins... og

næsta hugmynd er komin af stað og bíður frekari

útfærslu...

Egill Jónsson tannlæknir.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40