LAUGARDAGUR 15. JANUAR 2000 - 31 7/0 / i,A?rnimj J Börn og offita íslendingar eiga feit- ustu börn í heimi en þeirri staðreynd hefur fremur lítill gaumur verið gefinn hér á landi. Guðjón Sig- mundsson, öðru nafni Gaui litli, telur brýnt að börn sem þjást af offitu hljóti aðstoð. í því skyni hefur hann hleypt af stokkunum nám- skeiði fyrir börn og unglinga sem þjást af offitu. Offita er eitt stærsta heilbrigð- isvandamál í heiminum í dag. íslendingar fara ekki varhluta af vandanum því rannsóknir sýna að Islendingar eiga feit- ustu börn í Evrópu. Hér á landi eru engar beinar forvarnir þeg- ar kemur að matarfíkn og offitu barna og unglinga en Guðjón Sigmundsson, betur þekktur undir nafninu Gaui litli, heldur nú annað árið í röð námskeið sem aetlað er börnum og unglingum sem þjást af offitu. Námskeið hans í Heilsugarði Gaua litla eru sex vikna nám- skeið fyrir börn og unglinga sem þjást af offitu og einnig er boðið upp á framhaldsnám- skeið. Foreldrar viðkomandi barna koma einnig að málum, fá fyrirlestra hjá næringarráð- gjafa og lækni og viðtal við næringarráðgjafa. Nýrlífsstill Guðjón segir viðkvæmt og flók- ið mál að vinna með einstak- ling sem þjáist af offitu. Sá sem er of feitur þjáist af van- metakennd. Hann einangrast félagslega og verður oft fyrir einelti. Þessi sjúkdómur háir krakka þannig að hann snið- gengur Ieikfimi og félagslega starfsemi," segir Guðjón. Á þessum námskeiðum eru börn á aldrinum sjö til tólf ára og unglingar frá aldrinum þrettán til sextán ára. Skólakerfið er ekki í stakk búið til að sinna þessum börnum og þau komast ekki inn á líkamsræktarstöðvar fyrr en þau eru orðin sextán ára gömul. Það er enginn sem hefur viljað sinna þessum hópi en mér finnst mikilvægt að það sé gert og því held ég þessi námskeið. Auðvitað er að sumu leyti erfiðara að eiga við börn en fullorðna einstaklinga og það þarf að gerast með þolin- mæði og á skynsaman hátt. Börnunum er gert ljóst að þau séu ekki hér í megrun heldur beri breytt og skynsamlegt mataræði mikinn árangur og sömuleiðis holl hreyfing. Við einbeitum okkur líka að and- legu hliðinni og ræðum um einelti sem feit börn verða iðu- lega fyrir. Markmiðið með námskeiðinu er að barnið verði hammgjusáihíifa' Vg* sáttara og betur í stakk búið til að vinna með sjálft sig. Ég er ekki að horfa í ein- hverjar stórar þyngdartapstölur heldur tel ég mikilvægast að einstaklingurinn geri sér grein fyrir þvf að Iífshættir hans stefni í óefni og nái í framhald- inu tökum á sjálfum sér. Nám- skeiðið snýst um þrennt: fæðið, hreyfinguna og hugarfarið. Það skiptir afar miklu máli að vera andlega undir það búin að geta tekist á við vandamálið. Stærsti þátturinn snýst um það að vera sáttur við sjálfan sig og um leið og maður er sáttur við sjálfan sig verður hann hamingjusam- ari og um leið er auðveldara fyrir hann að eiga við vandann. Við leitum eftir varanlegum ár- angri. Þetta er ekki skyndi- lausn, þetta er ekki megrun, þetta er nýr lífsstíll. Ég hef verið að leita aðstoðar innan heilbrigðiskerfisins, því það er ljóst að námskeið eins og þetta sparar heilbrigðiskerf- inu stórfé þegar til lengri tfma er litið. Feitur einstaklingur, sem einangrast, verður ekki einungis baggi á þjóðfélaginu heldur hefur líðan hans sálræn áhrif á allt fjölskyldumunstrið. Ég og aðstoðarfólk mitt höf- um líka mikinn áhuga á að færa þessa fræðslu inn í skóla- kerfið. Það hefur til dæmis ver- ið óskað eftir því við okkur að við kynntum þessa starfsemi úti á landi." Starf sem skilar sér Guðjón hefur glímt við offitu- vandamál í tuttugu og fimm ár og hefur síðustu árin miðlað þeirri reynslu sinni af krafti. Það hefur vissulega verið fróð- legt að ganga í gegnum þá reynslu að vera feitur einstak- lingur og hafa sfðan náð þokka- legum tökum á sínum málum," segir hann. Á námskeiðum hjá mér hefur verið fjöldinn allur af einstaklingum sem hafa náð mjög góðum árangri. I þeim hópi er fólk sem kennir nú hjá mér og miðlar þekkingu sinni til annarra. Þetta starf hefur fært mér ómælda gleði. Það er vissulega mikið að gera og í mörg horn að Iíta. Maður er sí- fellt að gefa og hafa áhyggjur af einstaklingum sem maður er að vinna með, en það skilar sér allt í gleði í hverju grammi sem fellur." Ingibjörg Steinþórsdóttir fór með tíu ára gamlan son sinn á námskeið hjá Guðjóni. Sonur hennar var of þungur og hafði fyrir vikið orðið fyrir stöðugu einelti. Hún segist hafa haft miklar áhyggjur af syni sínum og því kosið að skrá hann á námskeið hjá Guðjóni. Hún segir árangurinn af námskeið- inu hafa verið undraverðan. Syni mínum líður miklu betur andlega og er farinn að brosa aftur. Hann er allt annað barn, léttist bæði andlega og líkam- lega," segir hún. Eineltið á sér ekki lengur stað enda ber hann sig betur og gefur ekki lengur ákveðin skilaboð með líkams- beitingunni. Námskeiðið bréýttí lífi hahs."" ""< ' '" Þetta starf hefur fært mér ómælda gleði. Það er vissulega mikið að gera og í mörg horn að líta. Maður er sífellt að gefa og hafa áhyggjur af einstaklingum sem maður er að vinna með, en það skilar sér allt ígleði íhverju grammi sem fellur." Til mots við nyja tima Fundarherferð Samfylkingarinnar á Reykjanesi Með þátttöku þingmanna og varaþingmanna Mánudagur 17. janúar Kópavogur - Þinghóll, Hamraborg 11 Guömundur Árni Stefánsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir Sandgerði - Verkalýðshúsið, Tjarnargötu 8 Rannveig Guömundsdóttir og Ágúst Einarsson Þriðjudagur 18. janúar Klosf ellsbær - Sveitakráin Áslákur Rannveig Guðmundsdóttir og Lúövfk Geirsson Grindavík -Verkalýðshúsið, Víkurbraut 46 Sigríður Jóhannnesdöttir og Guðmundur Árni Stefánsson Miðvikudagur 19. janúar Garðabær - Tfa María, Garðatorgi Sigríöur Jóhannesdöttir og Rannveig Guðmundsdóttir Vogar - Hliðarsalur íþróttamiðstöðvar Þórunn Sveinbjarnardóttir og Jón Gunnarsson Fimmtudagur 20. janúar Seltjarnarnes - Safnaðarheimilið Þórunn Sveinbjarnardóttir og Ágúst Einarsson Reykjanesbær - Verkalýðshúsið Hafnarg.80 Guðmundur Árni Stefánsson og Sigríður Jóhannesdóttir Föstudagur 21. janúar Hafnarfjörður - Turninn, veislusalur, Versiunarmiðstöðinni Firði Allir þingmenn mæta Fundirnir hefjast kl. 20.00 Samfglkingarfölk og stuðningsmenn hregfingarinnar 1:1 y ( I t I l i Fjölmennum og latum i okkar hegra !!! y?/.-tii,i \,ftuftiýi (l ,| \Zi A4r* *'in;t"' ''¦'¦ [«l» i > > 1 > ' ¦