32 - LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 Fluguveiðar að vetri (150) Tkypr 150 pistlar, T 0 flugur! FLUGUR Stefán Jón Halstein Þegar Dagur var lítið dagblað að berjast fyrir tilveru sinni og ekki var hægt að kaupa efni í helgarblaðið ákvað rit- stjórinn að hann yrði þá að bjarga málum sjálfur heima á kvöldin. Síðan eru liðnir 150 pistlar um fluguveiði. Þegar pistill númer 15 eða 20 birtist spurði útgáfu- stjórinn hvað væri eigin- lega hægt að skrifa margar greinar um fluguveiðar. Ég^ sagði honum að hafa ekki áhyggjur. I kringum pistil númer 30-40 varð ég aðeins þurr í kverkunum, en eftir að sú hæð var að baki hefur leiðin verið greið. Ég set markið á jafn marga pistla og Gísli Jónsson skrifar í Moggann um íslenskt mál. Þetta eru álíka heillandi viðfangsefni. Samkeppni! I tilefni þessara tímamóta efnum við til könnar og veljum Tíuflugnaboxið". Tíu flugna boxið er svona álíka gripur og bókin sem þú myndir velja til að hafa með þér á eyðieyju". Nema í okkar til- felli er spurningin þessi: Hvaða 10 flugur myndír þú velja þér ef þú mættir hafa þær eingöngu í boxinu sumarlangt og ætlaðir að veiða lax, bleikju, urriða og sjóbirting?" I raun erum við að leita að tíu alhliða góðum veiðiflugum sem reyndir veiðimenn geta mælt með við okkur hina fyrir íslenskar veiðar. Auðvit- að er ekkert rétt svar. En þetta verður spennandi samkvæmisleikur í skamm- deginu því nú biðjum við veiðimenn að leyfa okkur að skyggnast ofan í Tíu flugna boxið" hjá hverjum og einum. Allir veiðimenn eru hvattir til þátttöku, sendíð tíu flugna valið á: Fluguveiðar að vetri, pósthólf 79, 101 Rvík, eða á netfang: stef- anjon@islandia.is. Eg mun birta valda kafla og leyfa ykkur að fylgjas með valinu til vors. Dregið verður úr innsendum pósti og fær hinn heppni" að gjöf bókina sem kemur ut í haust: Fluguveiðar í draumi" eftir Stefán Jón Hafstein!!! Pálmi velur fyrsta tíuflugnaboxið"I tilefni 150 pistla um fluguveiðarIDegi. Val Pálma Pálmi Gunnarsson hefur valið sitt tíuflugnabox og ríður nú á vaðið. Valið hefur sjálfsagt verið álíka erfitt og á tvo skemmtilega geisladiska með bestu lög- um söngfuglins sem kom út undir nafn- inu Séð og heyrt" fyrir jólin. en þar eru 36 Iög! Ekta músik fyrir veiðimenn. Gjör- ið svo vel, hér er boxið hans Pálma: Nú er ég að leggja uppí tíuflugnaferð sem hefst á bleikjusvæði Hofsár; þaðan fer ég á urriðasvæðið í Mývatnssveit; held svosem leið liggur austur í Eldvatn og enda með tíuflugnaboxinu í Laxá í Dölum. Fellshylur í morgunsárið í lognstillunni og fiðrildin farin á stjá. Betra verður það ekki. Bleikjan í strengnum er að taka uppi þannig að uppáhalds fiðrildið Evr- ópa fer umsvifalaust undir. Eftir nokkra skemmtilegar tökur í blíðunni sem ein- kennir kvöld og morgna við Hofsá, er skipt yfír í Héraeyra með kúluhaus. Það er farið að gjóla hressilega af hafi og bleikjan hætt að sýna sig. Héraeyranu kasta ég beint uppí straum og læt frífljóta niður strenginn. Eftir nokkrar góðar tök- ur með þessarí aðferð er sest á bakkann og nú er kominn strekkingsvindur. Bleikj- an hefur fært sig úr strengnum og stekk- ur nú eins og fjandinn sjálfur við klettinn og niður eftír allrí breiðunni. Það var við svona veðuraðstæður sem ég uppgötvaði dálítið sérkennilegt. Ég hafði þá prófað óteljandi flugur án nokkurs árangurs. I örvæntingu minni setti ég undir kvikindi það sem síðan hefur dugað mér vel. Lít- inn dökkgrænan skratta með ofurlitlum vængstubbum sem flýtur vel. Nú þeyti ég þessari agnalitlu flugu í yfirborðinu og bleikjurnar koma dansandi á eftir henni í öldufaldinum og það er fiskur á í hverju kasti. Já vegir bleikjunnar eru í hæsta máta dularfullir. Sjóbleikja: Héraeyra með og án kúlu. Evrópa fiðrildi." Gussi (yfirborðspúpa). Eftir góðan dag í Hofsá held ég uppí Mývantssveit. I ágúst fljúga fiðrildin upp og ég veit af reynslu að stórir urriðar eru sólgnir í þau. Reyndar finnst mér fyrst og fremst gaman að veiða urriðann á þurr- flugu; það er eitthvað svo eðlilegt og svo eru tökurnar svo hrífandi. Vörðuflóinn er fallegur í kvöldstillunni og urriðarnir vaka hvert sem litið er. Ég kem mér fyrir á sandeyri um miðjan flóann og kasta að landinu hinumegin; stöðva stangartopp- inn ofarlega með smell og línan hlykkjast eins og harmonikkubelgur á vatnsborð- inu. Fiðrildið rekur nú eðlilega í hægum straumnum og það sannast eina ferðina enn að þeir elska Evrópu fiðrildið urrið- arnir í Mývatnssveit. Urriði: Evrópa fiðrildi. Næsti áfangastaður er Botnasvæðið í Eldvatni. Fiskur er genginn og um allan strenginn bylta sér stórir fiskar. Það er þungskýjað og ýrar úr lofti. Siggi Páls gaf mér einu sínni svart gula Iitla straum- flugu með með skógarhana í vöngum. Hún fer fyrst undir, hnýtt á léttan öngul. Það er gaman að veiða með þessari flugu því tökurnar eru svo sýnilegar. Svo birtir til og þá set ég litla Flæðarmús undir. Eg fer ekki ofan af því að Flæðarmúsin er galdrafluga og dugar vel við allar aðstæð- ur og allar tegundir fiska. Þegar dregur úr áhuganum og fiskur hættir að sýna sig, þá kasta ég uppí straum og læt Græna sk- rýmslið skrapa botninn. Það dugar. Sjóbirtingur: Black and orange marabou. Flæðarmús. Green monster með kúluhaus. Nú er ég kominn í KristnapoII í Laxá í Dölum. Þessi veiðistaður er eins og reyndar margir veíðistaðir í Laxá óskap- lega fallegur og geymir óhemu magn fiskjar, komið fram á haust. Kristnapollur er vatnslítill eftir langvarandi þurrkasum- ar. Veiðistaðurinn er einn spegill og fisk- ur stökkvandi bakkanna á milli. Það er sama hvað ég geri. Eg hreyfi ekki sporð. Svo kular og ég set lítinn Útfararstjóra undir. Og nú er hann kominn í gang. Til að hafa ennú meira gaman af þessu skipti ég um flugu. Að þessu sinni er það Næt- urhaukurinn sem sker yfirborðið. Þvílík stökk og læti. Að lokum er það Dómar- inn, flottúbuútfærsla, sem ruglar stórfisk- inn í Kristnapolli í ríminu. Þegar allt þrýtur í laxveiði þá fer ég í boxið og tek fram þessa einföldu gullnu flottúbu sem á ættir sínar að rekja til Sviss. Lax: Undertaker; Nighthawk (mikrótúba). Dómarinn. (flottúba) Ekki lélegt box hjá Pálma! Hvernig er þitt? Næst: boxið hans Gylfa Pálssonar ritstjóra Veiðimannsins. Allir eru hvattir til að senda inn val í tíuflugnaboxið": Fluguveiðar að vetri, pósthólf 79, 101 Rvík, eða á netfang: stef- anjon@isIandia.is. Krossgátanr. 169 Lausn ......................................................................... Nafn............................................................................ Heimilisfang......................................................... Póstnúmer og staður..................................... Helgarkrossgáta 169 I krossgátunni er gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum. Lausnarorð sendist til Dags (Helgarkrossgáta nr. 169), Strandgötu 31, 600 Akureyri eða með símbréfi í númer 460-6171. Lausnarorð 167 var límband". Vinningshafi er Bergdís Kristmundsdóttir, Laugartúni 21 á Sval- barðseyri og fær senda bókina Konuhjarta eftir Maya Angelou. Skjaldborg gefur út. Verðlaun: Gegn- um lífsins öldur, viðtöl við sex valinkunna sjó- sóknara, eftirJón Kr. Gunnarsson. Skjaldborg gefur út.