Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						Dgjur-------------		LAVGARDAGUR   15.   JAXÚAR   2000-   37

	R A Ð	AUGLÝSINGAR

STYRKIR

Menntamálaráðuneytið


Sérfræðingur á

fjármálasvið

Laust er til umsóknar starf sérfræðings á fjármálasviði

menntamálaráðuneytis. Um er að ræða fullt starf.

Meginviðfangsefni verða við fjárlagagerð og fjárhagslegt

eftirlit. Auk þess er gert ráð fyrir að viðkomandi verði

virkur þátttakandi í framkvæmd á stefnu ráðuneytisins um

gerð árangursstjómunarsamninga við stofnanir á

stjórnsýslusviði menntamálaráðuneytisins.

Viðkomandi þarf að hafa háskólapróf í viðskiptafræði eða

aðra sambærilega menntun. Áhersla er lögð á færni í

mannlegum samskiptum, frumkvæði og fagleg

vinnubrögð. Þekking á skólamálum er æskileg. Laun

greiðast samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Þór Magnússon,

deildarstjóri fjárhagsdeildar.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil

sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150

Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2000.

Menntamálaráðuneytið, 12. janúar 2000.

www.mrn.stjr.is

>3

STARFSMENNTARAÐ

FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTISINS

Starfsmenntastyrkir

félagsmálaráðuneytisins

Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins auglýsir hér

með eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í

atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í

atvinnulífinu.

Styrkir eru veittir til að styðja skipulega starfsmenntun,

undirbúning, náms- og kennslugagnagerð, kennslu og

starísþjálfun. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna

viðfangsefna sem Ijúka á fyrir vorið 2001.

Rétt til að senda umsóknir eiga: Samtök atvinnurekenda

og launafólks, einstök atvinnufyrirtæki, einkaaðilar eða

opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í

atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnugreina og

samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri

framangreindra aðila. Umsóknir frá skólum koma aðeins

til greina þegar um er að ræða samstarf við

framangreinda aðila, einn eða fleiri.

Á árinu 2000 hefur starfsmenntaráð ákveðið að leggja

áherslu á að styðja annars vegar verkefni sem er ætlað

að efla starfsmenntun á landsbyggðinni og hins vegar

starfsmenntun er stuðlar að nýsköpun og hagræðingu.

Hvatt er til samstarfs ólíkra aðila. Gerð náms- og

kennslugagna mun njóta forgangs umfram rekstur

námskeiða.

Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum til

Vinnumálastofnunar, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101

Reykjavík, eigi síðar en 12. febrúar 2000.

Umsóknareyðublöð fást hjá Vinnumálastofnun og þau má

einnig nálgast á heimasíðu Vinnumálastofnunar

(http://www.vinnumalastofnun.is).

Markmið laganna er að hvetja til aukinnar

starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. 1. gr. laganna, m.a.

með að: a) stuðla að aukinni framleiðni; b) stuðla að

bættri verkkunnáttu; c) treysta stöðu einstaklingsins á

vinnumarkaðinum; d) jafna möguleika fólks á

vinnumarkaði og þess fólks sem er tímabundið utan hans

til að afla sér starfsmenntunar, einkum þeirra sem notið

hafa lítillar eða engrar starfsmenntunar fyrir; e) greiða

fyrir hreyfingu starfsmanna úr einni atvinnugrein í aðra og

f) mæta þörfum starfshópa vegna breytinga í

atvinnuháttum.

Starfsmenntaráðfélagsmálaráðuneytisins,

13. janúar2000.

STYRKIR

Menntamálaráðuneytið

Styrkur til háskólanáms í

fornleifafræði í Noregi.

Stjórnvöld í Noregi bjóða fram styrk til handa íslendingi til

háskólanáms og rannsóknarstarfa í fornleifafræði í

norskum háskóla. Styrkurinn er ætlaður fornleifafræðingi

eða nemanda í fornleifafræði sem kominn er nokkuð

áleiðis í háskólanámi. Styrkfjárhæð er 100.000 n.kr. en til

greina kemur að skipta henni milli tveggja umsækjenda.

Með umsókn um styrkinn skulu fylgja upplýsingar um

fyrirhugað nám og rannsóknaráherslur styrkþega.

Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum

prófskírteina og meðmælum, skulu sendar til

menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4,

150 Reykjavík, fyrir 15. febrúar 2000.

Menntamálaráðuneytið, 13. janúar 2000.

www.mrn.stjr.is

Menntamálaráðuneytið

Sænsk-íslenski

samstarfssjóðurinn

Árið 2000 verða veittir úr Sænsk-íslenska

samstarfssjóðnum nokkrir verkefna- og ferðastyrkir.

Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi

Svíþjóðar og íslands á sviði vísinda, menntunar og

menningar.

Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem

fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4 og á

skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07,

112 94 Stockholm, og þangað skulu umsóknir einnig

sendar.

Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2000. Styrkjunum

verður úthlutað í apríl.

7. janúar 2000

Stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins.

Félagsþjónusta Arborgar

Lausar eru til umsóknar eftirtaldar

stöður hjá félagsþjónustu Árborgar:

1. Deildarstjóri stoðþjónustudeildar.

Deildarstjóri hefur m.a. umsjón með heimaþjónustu, liðveislu

og annarri þeirri lögbundnu þjónustu sveitarfélaga, sem fólk

þarf á að halda til að geta sem lengst búið í heimahúsum.

Hann metur þjónustustörf notenda og veitir starfsfólki

leiðbeiningar og stuðning. Óskað er eftir umsóknum frá

félagsráðgjöfum, sálfræðingum, þroskaþjálfum eða fólki með

aðra háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis eða

uppeldismála.

2. Starfsmaður í fjölskyldudeild.

Viðkomandi starfsmaður sinnir fjárhagsaðstoð og ráðgjöf

tengda henni. Hann sinnir einnig úrvinnslu barnaverndarmála í

samvinnu við deildarstjóra fjölskyldudeildar. Óskað er eftir

umsóknum frá félagsráðgjöfum, en til greina kemur einnig að

ráða starfsmann með aðra menntun sem nýtist í starfinu eða

starfsmann með reynslu af vinnu með einstaklingsmál.

í Árborg er í gildi starfsmannastefna og er hægt að kynna

sér hana á heimasíðu Árborgar, vefslóð www.arborg.is.

í sveitarfélaginu Árborg er í gildi kjarasamningur á milli

Launanefndar sveitarfélaga og Stéttarfélags ísl. félagsráðgjafa

og er deildarstjórastaðan launuð skv. Ifl. 4 en almennir

félagsráðgjafar eru launaðir skv. Ifl.2. Ef ráðinn verður

starfsmaður með aðra menntun verður gengið frá launakjörum

í samræmi við starfsmannastefnuna.

Sveitarfólagið Árborg varð til við sameiningu sveitarfélaga í

júní 1998 og er íbúafjöldi þess um 5.700 manns. Þrír

þéttbýliskjarnar eru í sveitarfélaginu, þ.e. Selfoss, Eyrarbakki

og Stokkseyri. Yfirstjórn sveitarfélagsins er með aðsetur á

Selfossi.

Félagsþjónustan starfar í umboði félagsmálanefndar og er

deildarskipt í fjölskyldudeild, stoðþjónustudeild og

húsnæðisdeild.

Umsóknir skulu berast félagsmálastjóra Árborgar í síðasta

lagi 20. janúar 2000.

Félagsmálastjóra veitir einnig nánari upplýsingar ef óskað er

ísíma480 1900.

Félagsmálastjóri Árborgar,

Ólöf Thorarensen.

ORLOFSHOSNÆÐI

Orlofshúsnæði

sumarið 2000

Stjórn Orlofssjóðs Kennarasambands íslands

óskar eftir að taka á leigu orlofshúsnæði til

endurleigu næsta sumar fyrir félagsmenn

Kennarasambands íslands.

Sérstaklega er óskað eftir sumarbústöðum og

íbúðarhúsnæði í þéttbýliskjörnum.

Tilboð berist til skrifstofu Kennarasambands

íslands merkt

Orlofssjóður Kennarasambands íslands,

Laufásvegi 81,

101 Reykjavík

Fax: 562 3470

Netfang:orlof@ki.is

Nánari upplýsingar gefa:

Hilmar Ingólfsson v.s. 565-7033

Helgi Már Eggertsson s. 861-5531

Valgeir Gestsson s. 898-7705

UMSðKNIR

Lánatryggingasjóður

kvenna

auglýsir eftir umsóknum

Meginmarkmið Lánatryggingasjóðs kvenna er að styðja

konur til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita

ábyrgðir á allt að helming lána sem þær taka hjá

lánastofnun til að fjármagna tiltekið verkefni.

Ábyrgðin er veitt á grundvelli mats á arðsemi

viðskiptahugmyndarinnar.

Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári, febrúar og júlí.

Lánatryggingasjóður kvenna er tilraunaverkefni til

þriggja ára. Að verkefninu standa

félagsmálaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið og

Reykjavíkurborg. Vinnumálastofnun annast umsýslu

sjóðsins.

Skilyrði fyrir ábyrgðarveitingu eru m.a.

eftirfarandi:

•     að verkefnið sé í eigu kvenna og stjórnað af konum

•     að ábyrgð sé verkefnatengd þ.e. ábyrgðir eru veittar

vegna ákveðinna nýsköpunarverkefna, en ekki eru

veittar ábyrgðir vegna t.d. rekstrarlána til starfandi

fyrirtækja

•     að verkefnið sé á byrjunarstigi

•     að minnsta lán sé 1,0 m.kr. og minnsta lánatrygging

0,5 m.kr.

Ekki er um að ræða sérstök umsóknareyðublöð, en

umsókn skulu fylgja:

•     Framkvæmda- og fjárhagsáætlun fyrir verkefnið

•     Ársreikningar og skattaskýrsla sl. tveggja ára

Nánari upplýsingar eru veittar í Vinnumálastofnun og á

skrifstofu Byggðastofnunar.

Umsóknarfrestur um lánatryggingu er til 25. febrúar

2000 og ber að skila umsóknum til

Vinnumálastofnunar, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu eða til

Byggðastofnunar í Reykjavík.

Lánatryggingasjóður kvenna

Byggðastofnun

Kristján Þór Guðfinnsson

Engjateigur 3

105 Reykjavik

Sími 560-5400

Bréfsími 560-5499

Lánatryggingasjóður kvenna

Vinnumálastofnun

Margrét Kr. Gunnarsdóttir

Hafnarhúsið, Tryggvagötu

101  Reykjavík

Sími 511 2500

Bréfsimi 511 2520

Netfang kristjan@bygg.is          Netfang margret.gunnarsdottir@vmst.stjr.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40