Dagur - 03.05.2000, Blaðsíða 2

Dagur - 03.05.2000, Blaðsíða 2
2 - MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 FRÉTTIR L Espigerðismorðingi fékk 16 ára fangelsi Elís Helgi við dómsuppkvaðninguna. Dómurinn virtist ekki koma honum á óvart og hann undi áframhaldandi gæsluvarðhaldskröfu. 16 áx fyrir morð á gamalli og vamar- lausri kouu. Með volga slóð likams- árása, fíkniefnamis- ferlis, þjófnaðar og skjalafals að baki. EIís Helgi Ævarsson, 25 ára, var í gær dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir morðið á hinni áttræðu Sig- urbjörgu Einarsdóttur á heimili hennar að Espigerði 4 þann 3. desember síðastliðinn og fyrir að stela úr íbúð hennar 2-3 þúsund krónum. Elís tók sér frest til að skoða möguleikann á áfrýjun, en undi kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhaldsvist. Frá fangels- isdómi hans dragast 149 gæslu- varðhaldsdagar, en aftur á móti rauf Elís skilorð vegna eldri þrig- gja mánaða dóms með morðinu og er hann því dæmdur upp. Dómurinn kemur ekki á óvart miðað við málsatvik og kringum- stæður. Morðið var tilefnislaust og hrottalegt og fann Ingibjörg Benediktsdóttir héraðsdómari það eitt til refsilækkunar að Elís hefði verið samvinnufús við rannsóknina og hreinskilinn. Hins vegar taldi Ingibjörg ein- sýnt að Elís hefði aldrei framið verkið allsgáður, þ.e. að ráðast „á gamla varnarlausa konu, sem varð við bón hans um að fá að hringja. Hann átti ekkert sökótt við konuna heldur réð kylfa kasti að hún varð fórnarlamb hans“. Likamsárásir, þjófnaður og skjalafals Eins og rakið hefur verið í Degi er Elís forfallinn fíkniefnaneyt- andi, sem skömmu íyrir morðið hafði fallið eftir meðferð og var á barmi örþrifaráða; íhugaði að fremja sjálfsmorð. Honum fannst sem verið væri að refsa sér með þessari byrði og tók ákvörðun um að fremja einhvern verknað þan- nig að hann ætti skilið þá refs- ingu sem hann væri þegar byrjað- ur að taka út. En EIís var ekki að fremja sitt fyrsta afbrot með morðinu. Auk 6 dómsátta átti hann að baki nokkra refsidóma; sekt fyrir líkamsárás í mars 1991, 4 mánaða skilorðsbundið fang- elsi íyrir þjófnað í apríl 1994, 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals í mars 1998 og 5 mánaða dóm, skilorðsbundinn að hluta, fyrir fíkniefnabrot og líkamsárás í desember 1998. Héraðsdómara þótti að öllu virtu fyllilega sannað að EIís hefði „veist að Sigurbjörgu heit- inni... með hnífi og stungið hana margsinnis og skorið, meðal ann- ars stungu í vinstra eyra sem náði 7 em inn í hálsvefina og endaði í afturvegg koksins, sem Ieiddi konuna til dauða“. Vildi eiga refsingima skilda Engin óyggjandi skýring kom fram um ástæður morðsins, aðr- ar en órar forfallis áfengis- og fíkniefnaneytanda. „Skyndilega hafi kviknað sú hugsun með hon- um að fremja morð þar sem hann sat þarna í íbúðinni [móður sinn- ar]. Hann hafi viljað gera eitt- hvað nógu hræðilegt til að upp- lifa refsingu þá sem hann hafi þurft að ganga í gegnum vegna fíkniefnaneyslu sinnar“. Hann hafi í raun frekar verið að meiða sig en einhvern annan. Hvað sem þessu líður var ekki talið að verknaðurinn hafi verið framinn í geðveikiskasti, enda Elís fyllilega talinn sakhæfur. — FÞG Gen.is krefiir Kára uin 615 Genealogia Islandorum ehf. (Gen.is) og Þorsteinn Jónsson ætt- fræðingur krelja Islenska erfða- greiningu (IE) og Friðrik Skúlason ættfræðing um samtals 615 millj- ónir króna vegna afnota IE og Friðriks á ættfræðigögnum sem stefnendur segjast eiga rétt að. Eru þetta niðja-, stétta- og ábúendatöl og ættfræðibækur, á annað hund- rað talsins, sem Þorsteinn Jónsson og fræðimenn á hans vegum hafa á undanfömum árum unnið upp úr frumgögnum. Málið var tekið íyrir í héraðs- dómi í gær og er að vænta frá stefnendum beiðni um dómkvadda matsmenn. Stefnendur telja að IE og Friðrik hafi slegið lögvemdaðar upplýsingar þeirra inn í tölvu í ábataskyni, m.a. til rannsókna á mmjomr Óhæfilegir viðsMptahættir Lögmenn stefnenda, Ragnar Aðal- steinsson og Olafur Garðarsson, telja að hinir stefndu hafi unnið sér til bótaskyldu með ágangi á höfundarrétt stefnenda. Einnig telja þeir að aðgerðir stefndu brjóti í bága við 20. grein samkeppn- islaga, þar sem segir:„ÓheimiIt er að hafast nokkuð það að sem brýt- ur í bága við góða viðskiptahætti í atvinnustarfsemi eins og þeir em tíðkaðir eða eitthvað það sem óhæfilegt er gagnvart hagsmunum neytenda". Bótakrafan sundurliðast þannig að stefndu eigi að greiða Gen.is 293 milljónir og Þorsteini sömu upphæð auk 29 milljón króna miskabóta. — FÞG Kári Stefánsson. arfgengi sjúkdóma og enga tilraun gert til þess að bæta þessum aðil- um það tjón sem þeir verði óhjá- kvæmilega fyrir. Blindir mdtmæla símahækkim Á nýlegum aðalfundi Blindrafé- lagsins var samþykkt ályktun þar sem fyrirhuguðum gjaldskrár- hækkunum Landssímans I. júlí nk. er mótmælt harðlega. Blind- ir hvetja samgönguráðherra til að beita sér gegn hækkunum á afnotagjöldum öryrkja þannig að þær komi ekki tíl framkvæmda. „Það er siðferðilega óverjandi að fyrirtæki í eigu ríkisins hækki af- notagjöld hjá tekjulægstu öryrkj- um og ellilífeyrisþegum á sama tíma og fyrirtækið skilar umtals- verðum hagnaði," segir í álykt- uninni. VIÐSKIPTI FBA eykur gróðaim íim 133% Hagnaður af rekstri FBA fyrstu þrjá mánuði ársins nam 842 millj. kr. fyrir skatta, eða 545 millj. kr. eftir reiluiaða skatta. Hagnaður fyrir skatta fyrstu þrjá mánuði sl. árs nam 362 milljón- um króna fyrir skatta og er vöxtur hagnaðar fyrir skatta frá sama tíma í fyrra því 133%. Hafi menn haldið að Búnaðarbankinn hafi stækkað mikið, um milljarð á mánuði, þá stækkaði FBA enn meir fyrstu þrjá mánuði árs- ins, eða um tæpa 14 milljarða. I leildareignir FBA námu 106 milljörðum í lok mars sl. en eignimar í árslok voru metnar á rúma 92 milljarða. Hlut- hafar f FBA eru nú 4.338 talsins. í gær og dag fá þeir til sín ávísanir vegna arðgreiðslu ársins 1999, en félagið greiðir 1.224 millj. kr. í arð. Hvatt til samveru með 10. bekldngum í tilefni þess að samræmdum prófum lýkur í grunnskólum Iandsins í dag hafa ýmsir málsmetandi aðilar sent hvatningu til foreldra að eyða degin- um og kvöldinu með börnum sínum, til að forða þeim frá drykkju í fögn- uði prófloka. Hvatningin kemur frá ITR, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Félagsþjónustunni í Reykjavík, lögreglunni, SAMFOK, Heimili og skóla, Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar um afbrota- og fíkniefnavamir og verkefninu Island án eiturlyíja. Mörg dæmi eru um unglinga sem taka fyrsta sopann á þessum degi eða næstu helgar á eftir próflokum og telja þessir aðilar mildlvægt að koma í veg fyrir drykkjuna með öllum tiltækum ráðum. Foreldrar eru því hvattir til að eyða deginum með börnum sínum eða stuðla að því að þau fari f skipulagðar ferðir, scm víða er boðið upp á. Einiskip bætir við sig Eimskip vinnur að kaupum eða þurrleigu á gámaskipi til áætlanasiglinga. Gert er ráð fyrir að skipið vcrði í siglingum á suðurleið þ.e. á milli Islands og hafna í Bretlandi og meginlandi Evrópu. Burðargeta skipsins yrði ð vera um 700 gámaeiningar og kæmi það í stað leiguskips með erlendri áhöfn sem félagið hefur verið með í rekstri um skeið. Samtals er Eimskip mcð 9 skip í föstum áætlunarsiglingum, þar af þrjú leiguskip með erlend- um áhöfnum. Alls eru starfandi um 140 íslenskir sjómenn hjá félaginu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.