Dagur - 10.05.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 10.05.2000, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000 - 9 r^nr. ÍÞRÓTTIR Þrjú rauð á Elland Road Slaguriim urn þriðja sætið í ensku deildinni milli Leeds og Liver- pool heldur áfram fram í síðustu umferð, eftir að Leeds náði aðeins 1- 1 jafntefli gegn Ev- erton á heimavelli sín- um Elland Road í fyrra- kvöld. Aðeins eins stig munur er á liðunum fyrir síðustu umferð- ina og er spennan því mikil. Ekkert annað en sigur gegn West Ham í síðustu umferð ensku úr- valsdeildarinnar getur trj'ggt Leeds United þriðja sætið í deild- inni og þar með meistaradeildar- sæti að ári, eftir að Iiðið náði að- eins 1-1 jafntefli gegn Everton í miklum baráttuleik á Elland Road í fyrrakvöld. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið hjá Andy D¥Urso hræðilegum dómara leiksins, en það voru þeir Richard Dunne og Don Hutchison hjá Ev- erton og Michael Duberry hjá Lecds, auk þess sem sjö leikmenn voru bókaðir, þar af sex frá Ev- erton. Leeds er þar með aftur komið í þriðja sæti deildarinnar með 68 stig, eða einu stigi meira en Liverpool sem er í fjórða sætinu með 67 stig, en markahlutfall Liverpool sem á sfðasta leik gegn Rradford á sunnudaginn, er mun betra. Þess vegna dugar Leeds ekkert annað en sigur gegn West Ham á Upton Park þegar liðin mætast á sunnudaginn. 21. iuark Bridges Það var markamaskínan Michacl Bridges sem kom Leeds yfir f leiknum gegn Everton í lyrrakvöld, þegar hann skoraði sitt 21. mark á leiktíðinni á 29. mínútu leiksins, eftir slæm mistök David Weir í Ev- ertonvörninni. Wier Ieit eitt augnablik af Bridges og þá notaði Lee Bowyer tækifærið og sendi langa stungusendingu í gegnum vörnina. Bridges var á réttum stað og hamraði boltann í netið fram- hjá Paul Gerrard, markverði Ev- erton. Það var nokkuð gegn gangi leiksins, en Everton, sem hefur ekki unnið leik á Elland Road síð- an árið 1952, Iék mun bctur í fyrri hálfleik án þess þó að ógna mark- inu. Leeds missti flugið Leeds kom meira inn í Ieikinn í upphafi seinni hólfleiks og var það helst fyrir einstaklingsframtak Kewells að meira líf færðist í sókn- arleikinn. Það dugði þó ekki til, því á 59. mínútu urðu Nigel Martins f marki Leeds á herfileg mistök, sem urðu til þess að Nick Barmby tókst að jafna leikinn fyrir Ev- erton. Boltinn barst inn í teiginn þar sem Martin kom vaðandi út, en einhverra hluta vegna skoppaði hann yfir enska landsliðsmark- vörðinn og þar með komst Barmby á auðan sjó og sendi boltann ör- ugglega í netið. Eftir markið misstu leikmenn Lceds fiugið og tókst því ekki að bæta við marki, þrátt fyrir að vera manni fleiri í heilar tíu mínútur. Staðan Arsenal, sem þegar hefur tryggt sér annað sætið í deildinni fékk Sheffield Wednesday í heimsókn á Highbury í gærkvöld og sjáum við stöðuna fyrir þann leik hér að neð- an: Man. Utd 37 27 7 3 96:45 88 Arsenal 36 22 6 8 68:36 72 Leeds 37 21 5 11 58:43 68 Liverpool 37 19 10 8 51:29 67 Chelsea 37 17 11 9 49:34 62 Aston Villa 37 15 13 9 46:34 58 Sunderland 37 16 10 1 1 56:53 58 Leicester 37 16 7 14 55:51 55 WestHam 37 15 9 13 52:53 54 Everton 37 12 14 1 1 59:47 50 Tottenham 37 14 8 15 54:48 50 Newcastle 37 13 10 14 59:52 49 Middlesbr. 37 13 10 14 44:52 49 Coventry 37 12 8 17 47:53 44 Southampt. 37 11 8 18 43:62 41 Derby 37 9 11 17 44:53 38 Wimbledon 37 7 12 18 46:72 33 Bradford 37 8 9 20 37:68 33 Sheff. Wed. 36 7 6 23 31:67 27 Watford 37 5 6 26 34:77 21 Síðasta umferð á suunudag Aston Villa - Man. Utd Bradford - Liverpool Chclsea - Derby Coventry - Watford Everton - Middlesbr. Newcastle - Arsenal Sheffield W. - Leicester Southampt. - Wimbledon Tottenham - Sunderland West Ham - Leeds Valur og Grindavík í urslitaleiMim Grindavík og Valur tryggöu sér uin helg- ina réttinn til að leika til úrslita í deildarbík- arkeppni karla í knatt- spymn. Grindvíkingar unnu 7-1 stórsigur á Leiftri frá Ólafsfirði þegar liðin mættust í undanúrslitum deildar- bikarsins, í Reykjaneshöllinni á sunnudaginn.Eftir að hafa unnið Keflvíkinga 5-1 í 8-liða úrslitun- um mættu Grindvíkingar fullir sjálfstrausts í leikinn gegn Leiftri og sýndu þar enn einu sinni hvers þeir eru megnugir. Það létti þeim líka róðurinn að Hlynur Jóhanns- son fékk að líta rauða spjaldið strax á 47. mínútu og rnunar um minna. Sverrir Þór Sverrisson gerði fyrsta mark Grindvíkinga strax á 7. mínútu, en fimm mínút- um síðarjafnaði Hlynur Jóhanns- son. En Adam var ekki lengi í Paradís, því þremur mínútum síð- ar kom Skotinn Scott Ramsey, Grindvíldngum aftur yfir. Öðrum þremur mínútum síðar fengu Lciftursmenn dæmda vítaspyTnu, en Albert Sævarsson varði spyrn- una frá Alexandre Santos. Grind- víkingar byrjuðu seinni hálfleik- inn eins og þeir enduðu þann fyTri og strax á 47. mínútu var Sverrir Þór að komast í gegnum vörn Leiftursmanna, þegar Hlynur braut á honum og fékk þar að líta áðurnefnt rautt spjald. Brotið var rétt utan vítateigs og skoraði Scott Ramsey beint úr aukaspyrnunni. Fjögur mörk Grindvíkinga fylgdu í kjölfarið, sem þeir Paul McShane, Scott Ramsey, Ólafur Bjarnason og Sinisa Kekic skoruðu. Mills altnr hetja Valsmanna Bandaríski markvörðurinn Jon Mills, sem var hetja Valsmanna í 8-liða úrslitunum gegn FH á dög- unum, þar sem hann varði þijár vítaspyrnur í vitaspyrnukeppni, var aftur hetja Valmanna í undan- úrslitaleiknum gegn Fylki, þar sem hann varði spyrnu frá Þór- halli Dan Jóhannssyni og try’ggði sínum mönnum þar meðlO-9 sig- ur á Fylki. Staðan var jöfn 1-1 eft- ir venjulegan Ieiktíma, þar sem Adolf Sveinsson kom Valsmönn- um yfir á 19. mínútu, en Hrafn- kell Helgason jafnaði fyrir Fylki tíu mínútum síðar. í framlcnging- unni skoruðu liðin sitt hvort markið, Ómar Valdimarsson fyrir Fylki, áður en Arnór Guðjohnsen, besti maður Valsara, jafnaði met- in. Fylkismenn höfðu sótt stíft í lok framlengingarinnar, en tókst ekki að bæta við marki og því var gripið til vítaspyrnukeppninnar, sem endaði 10-9 fyrir Val. Grinda- vík og Valur mætast á laugardag- inn í úrslitaleik deildarbikarsins á gervigrasinu í Laugardal. Erla og Teitur best í körfunui Erla Þorsteinsdóttir og Teitur Örlygsson, körfuknattleiksmenn ársins. Þau Teitur Örfygsson, Njarðvík og Erla Þor- steinsdóttir, Keflavík, voru valin leikmenn ársins á lokahófí körfuknatfleikmanna sem haldið var um helgina. Teitur Örlygsson, leikmaður Njarðvíkinga, var valinn körfuknattleiksmaður ársins í fjórða sinn á ferlinum á lokahófi KKI sem haldið var á föstudags- kvöldið. Teitur sem varð einnig fyr- ir valinu árin 1989, 1992 og 1996, var auk þess valinn í lið ársins og er það í ellefta skipti á tólf árum sem hann er valinn í Iiðið. Auk Teits voru eftirtaldir valdir í Iið árs- ins: Fannar Ólafsson, Keflavík, Friðrik Stefánsson, Njarðvík, Ólaf- ur Ormsson, KR og Svavar Birgis- son, Tindastóli. Hjá konunum var Erla Þor- steinsdóttir, Kefiavík, valin leik- kona ársins, en auk hennar voru eftirtaldar valdar í lið -ársins: Alda Leif Jónsdóttir, IS, Hanna Kjart- ansdóttir, KR, Sólveig Gunnlaugs- dóttir, UMFG og Guðbjörg Norð- fjörð, KR. Bestu nýliðarnir voru valdir þau Birna Eiríksdóttir, Tindastóli og Ægir Hrafn Jónsson, IA og hlaut Ægir Örlygsbikarinn sem nú var veittur besta nýliðanum í Epson- deildinni til minningar um Örlyg Sturluson. Af dómurunum var Leifur Garð- arsson, Haukum, valinn sá besti og er það annað árið í röð sem hann er valinn bestur. Efnilegast dómarinn var svo valinn Rúnar B. Gíslason, Tindastóli. Þjálfarar ársins voru valdir þeir Ósvaldur Knúdsen hjá kvennaliði ÍS og Valur Ingimundarson hjá karlaliði Tindastóls. Bestu erlendu Ieikmennirnir voru valdir þau Ebony Dickinson, leikmaður KFl og Brenton Birmingham, leikmaður Grindvík- inga. Besti árangux Íslajndsmótsins Besta vítanýting: Alda Leif Jónsdóttir, Keflavík 86,8% Birgir Mikaelsson, Skallagr. 88,1% Flest stig: Ebony Dickinson, KFÍ 32,1 Brenton Birmingham, UMFG 32,1 Flest varin skot: Alda Leif Jónsdóttir, ÍS 2,7 Friðrik Stefánsson, UMFN 1,9 Flest fráköst: Ebony Dickinson, KFÍ 18,7 Clifton Buch, KFI 14,2 Besta nýiing 3ja stiga: Kristín Blöndal, Kefiavík 39,5% Brenton Birmingham, UMFG 48,5% Flestir stolnir boltar: Alda Leif Jónsdóttir, Kefiavík 4,7 Brandon Titus, Hamri 3,9 Flestar stoðsendingar: Alda Leif Jónsdóttir, Kefiavík 4,9 Anna M. Sveinsdóttir, Keflavík 4,9 Kristín Blöndal, Keflavík 4,9 Tómas Holton, Skallagrím 7,1

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.