Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.01.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.01.1997, Blaðsíða 1
Sjónvarp/Tölva Sj onvarpskaupmenn klaga undan tölvunum j ónvarpstækj akaupmenn eiga á næstunni von á niður- stöðu Samkeppnisstofnunar vegna erindis þeirra frá síðasta ári. Þeir telja að þeim og tölvu- sölum sé mismunað. Af sjón- varpstækjum eru greiddir háir tollar og vörugjald. Af tölvum engin slík gjöld. Og rúsínan í pylsuendanum: Tölvan er í æ rikara mæli notuð sem sjónvarp og hljómflutningstæki á heimil- um með hljóm- og myndgæðum sem stöðugt batna með nýrri tækni. Til að nota tölvu sem sjón- varp þarf einfalt kort í vélina og kostar það innan við 10 þúsund krónur. Sölu á þessum kortum eiga tölvusalar að tilkynna til innheimtudeildar Ríkisútvarps- ins. En margir kaupa kortin er- lendis frá, og kaupmenn þar hafa aldrei heyrt á RÚV minnst. Árgjald hjá RÚV kostar 24.000 krónur. Kaup á tölvu gerast sífellt hagstæðari, þær kosta liðlega 100 þúsund krón- ur en vandað sjónvarpstæki allt að 170 þúsund. Undandráttur frá Ríkisútvarpinu er því fljótur að skila sér til þeirra sem láta hjá líða að greiða afnotagjaldið og komast upp með það. Theódór S. Georgsson lög- maður, innheimtustjóri RÚV, sagði í gær að tölvusalar hefðu tilkynnt kortakaup í einhverjum mæli. Hann sagði að varla mxmdu fjölskyldur endast til að horfa á sjónvarp á tölvuskjá. -JBP Reykjavíkurflugvöllur Halldór í hreramingum aftur Farþegum með Fokkervél sem var að koma frá Akur- eyri í gær leist ekkert á blikuna þegar vélin þurfti skyndilega að hætta við lendingu rétt áður en hjólin snertu brautina. Vélin þurfti að fljúga einn hring áður en hún gat lent. Ástæðan fyrir þessu var sú að of lítið bil var á milli Fokkserins og annarrar vélar sem lenti á undan. Meðal farþega í vélinni var Halldór Blöndal samgönguráð- herra. Samfarþegar sögðu að ráðherra hafi ekki verið skemmt þegar flugmennirnir gáfu allt í botn, vélin hækkaði flugið og sveigði frá brautinni. Ráðherrann slapp eins og kunnugt er með skrekkinn þeg- ar snjóflóð féll á veginn til Ól- afsfjarðar rétt eftir að hann átti þar leið um fyrir skömmu. í Flugturninum var sagt að þetta væri ekki óeðlilegt og ekki hætta á ferðum. Of lítið bil var á milli Fokkersins og vélar sem lenti á undan honum. Auk þess var Fokkerinn ekki biiinn að fá heimild tif lendingar. Fleira var ekki sagt um málið. -grh næstu tölvubúð má festa kaup á einföldu tölvuspjaldi sem komið er fyrir í vélinni, - og tölvan hefur bætt við sig móttöku á sjónvarpsstöðvum. Jón Magnússon sölumaður í Tölvutækjum-Bókvali sýnir gripina. Hann segir að flestir útbúi tölvuna svona sem annað sjónvarpstæki heimilisins. Stórstígar framfarir eru á þessu sviði og kaupmenn áhyggjufullir. Sjá frétt að ofan. Mynd: JHF Vodka Vodkasmygl 5% af sölu ÁTVR Ein „gámaflaska“ á móti hverjum 20 seldum afÁTVR Um 24.000 flöskur af vodka sem áætlað er að smyglað hafí verið í tveim gámum samsvara um 5% af árssölu ÁTVR á vodka - eða 1 „gámaflösku" á móti hverjum 20 flöskum sem ÁTVR seldi á nýliðnu ári. Vodkasala ÁTVR var alls 370 þúsund lítrar á ár- inu, sem samsvarar kringum 490 þúsund þriggja pela flösk- um. Þar sem vodka slagar hátt í helming allrar sölu ÁTVR á sterkum drykkjum má ljóst vera að þessi „frjálsi innflutn- ingur“ hefur verið mjög stór í sniðum. „Já, þetta er greinilega gert af dugnaði. Og með ólíkindum ef þetta magn fer út um allar trissur án þess að það sé þá einhver sterkur dreifingaraðili, enda munu ein- hverjir veitingamenn tengjast þessu,“ sagði Höskuldur Jóns- son, forstjóri ÁTVR. Var menn þá ekkert farið að renna í grun um þessa nýju samkeppni, ekki síst þar sem gámavodkinn virð- ist af tegund sem ekki er seldur í Ríkinu ? „Eins og málin standa nú, þá er áfengissalan ekki lengur öll hjá okkur. Á síðasta ári fjar- aði salan til veitingahúsanna undan okkur, svona hægt og sígandi, þannig að það var ákaflega erfitt fyrir okkur að gera okkur grein fyrir því hve- nær söluminnkun væri á ferð- inni sem rekja mætti til breyttra viðskiptahátta veitingastaða - þ.e.a.s. þeirra hátta að hætta að skipta við okkur - og hvenær væri komin í gang önnur sam- keppni sem tæki af okkur við- skiptin. Það er eins með tegundirn- ar, að við vitum ekki hvaða teg- undir áfengisheildsalarnir flytja inn. Það er fullt af áfengi á veit- ingahúsunum sem ég hef aldrei séð og er örugglega komið þangað eftir öllum löglegum leiðum. Þannig að þótt ég hefði séð svona vodkaflöskur (JENK- INGS) á veitingahúsi þá hefði ég hiklaust gert ráð fyrir að þetta væri ný tegund sem annað hvort veitingahúsið eða heild- sah flytti inn,“ sagði Höskuldur. Höskuldur Jónsson Forstjóri ATVR „Með ólíkindum ef þetta magn fer út um allar trissur án þess að það sé einhver sterkur dreijingar- aðili, “ ís»endingaþættir Fylgja blaðinu í dag Lífið í landinu Jóhannes kominn á Dag-Tímann Bls 10-11 Jón Viðar svarar fyrir sig

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.