Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.01.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.01.1997, Blaðsíða 1
Stöð 3 Akureyri Fréttastofa til alvar- legrar skoðunar að er ekkert frágengið en við höfum velt upp mögu- leikum um hugsanlegt samstarf. Þetta eru allt vinir mínir og ég er með skrifstofu í sama húsi og þeir. Við getum sagt að vinsemdin sé gagn- kvæm,“ sagði Ingvi Hrafn Jóns- son, fyrr- verandi frétta- stjóri Stöðvar 2 og Sjón- varpsins. Ingvi Hrafn hefur í seinni tíð rekið fyr- irtækið Fjölmiðlun og ráðgjöf og hefur veitt Stöðvar 3 mönnum ráðgjöf síðustu daga. Hugmynd- ir eru uppi um fróttastofu og fréttatengt efni. „Þessi mál eru ekki ljós ennþá, en mér skilst að uppi sé mjög sterkur vilji nýrra eigenda fyrir fréttastofu. Hins vegar er ekki heiglum hent, að setja upp, Ijármagna og halda úti fróttaefni. Menn þurfa að reikna það dæmi vel í botn,“ sagði Ingvi Hrafn. -En er hann þá á leiðinni í fréttastjórastólinn, ef til þessa kemur? „Hann hefur mér hvorki verið boðinn né ég falast eftir hon- um. Hvort ég yrði þeim inn- an handa við skipu- lagningu, er annað mál. Hingað til hefur lítil- lega verið rætt um vikulega þætti eða þá tvisvar í viku.“ Magnús Kristjánsson, sjón- varpsstjóri Stöðvar 3, sagði að ekki væri búið að taka neinar ákvarðanir um fréttastofu. „Þetta er til alvarlegrar skoðun- ar en hvort, hvernig, og þá hve- nær er ekki ljóst.“ BÞ Ingvi Hrafn Jónsson „Skilst aö mjög sterkur vilji sé hjá nýjum eigendum Stöðvar 3 jyrir jréttastoju, Samstarf er hugsanlegt. “ Hestamenn um land allt hafa að undanförnu verið að taka hross sln á hús. Jónas Kristjánsson, hestamaður á Ak- ureyri, var f muggunni f gær að leggja á Óðin f hesthúsahverfi Akureyringa f Breiðholti. M,ndos Stjórnmál Gróska í dónaskap Tveir þingmenn Alþýðubandalagsins neituðu að styðja Grósku, samtök jafnaðarmanna, sem stofnuð voru um helgina. Þingkona Kvennalistans segir fátt nýtt að finna í stefnuskrá samtakanna. Tveir þingmenn Alþýðu- bandalagsins, Hjörleifur Guttormsson og Ögmund- ur Jónasson, neituðu að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við Grósku, samtök jafnaðar- manna, sem stofnuð voru um helgina. „Það er gott að fólk reyni að vinna saman að góðum málefnum, en tak- markið má aldrei verða það eitt að ná völdum og smíða stofnanir utan um eigin völd. Því miður hefur mér fundist þessi sameiningarum- ræða einkennast alltof mikið af því. Það er innihaldið sem skiptir máli og þar til búið er að sannfæra mig um að ég eigi hugmyndalega samleið með þessu, þá stend óg til hlið- ar,“ segir ögmundur. Samfylking félagshyggjuafl- anna var aðalefni samráðsfund- ar Kvennalistans, sem haldinn var á laugardaginn. „Það eru mjög skiptar skoðanir innan Kvennalistans um þetta sam- starf, en varð þó niðurstaðan að halda áfram í viðræðum í svokölluðum Margrétarhópi," segir Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona. Hún segist ekki hafa fengið að sjá stuðningsyfirlýs- inguna við Grósku, sem hún hafi þó verið beðin um að ljá nafn sitt og er afar ósátt við framkomu Gróskumanna. „Hvernig þau tala og þessar yfirlýsingar t.d um stjórnmála- menn, sem spyrji ekki réttra spurninga. Mér fmnst þetta bara dónaskapur." Og Kristín segir fátt nýtt í stefnuskrá Grósku. „Mér finnst þetta ákaf- lega hefðbundið og sé fáar nýj- ar hugmyndir. Þetta fólk er að saka stjórnmálamenn um að spyrja ekki einu sinni réttu spurninganna, en óg fæ ekki séð að þau séu að því. Þetta er allt saman mjög gamalkunn- ugt.“ -vj - sjá einnig bls. 6 og 9 Kjarasamningar Allt upp í loft Deila Rafiðnaðarsambands ís- lands við VSÍ vegna vinnu- staðasamnings rafiðnaðarmanna við byggingu loðnuverksmiðju í Helguvík, leiddi til þess að fyrir- huguðum fundi Qögurra lands- sambanda innan ASÍ við VSÍ um fyrirtækjasamninga var aflýst í gær. Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, segir að deilan við VSÍ snúist um það hvort félagsmönnum RSÍ í Helguvík só greitt samkvæmt ákvæðisvinnu eða tímakaupi. Hann segir út í hött að ætla að ræða gerð rammasamnings um fyrirtækjasamninga á sama tíma og VSÍ virðir ekki gerða samn- inga þar að lútandi. Snær Karlsson hjá VSÍ sagði að fulltrúar hefðu ákveðið að slá öllum frekari viðræðum á frest við samtök atvinnurekenda eftir að formaður RSÍ hafði alhoðað þátttöku sína í viðræðunum. -grh Krlstín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista „Mér finnst þetta ákajlega hejðbundið og sé fáar nýjar hug- myndir í stefnu Grósku, “ Lífið í landinu Útivistar- tími unglinga FAXNÚMER AUGLÝSINGADEILDARIR 5516270

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.