Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Blaðsíða 10
22 - Fimmtudagur 8. maí 1997
BUVELAPROFUN A HVANNEYRI
iOíXgur-íExmirat
Pöttinger sláttuvél
Gerð: Cat disc 29.
Framleiðandi: Alois Pöttinger
Maachinenfabrik GmbH.
Innilytjandi: Bújöfur hf.
Sláttuvélin Pöttinger Cat disc
29 var reynd af Bútækni-
deild Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins sumarið 1996.
Hún var notuð alls í 34 klst.
Sláttuvélin er tengd á þrítengi
dráttarvélar og lyft í flutnings-
stöðu lóðrétt hægra megin aftan
við dráttarvél. Hún vegur 560 kg.
Sláttuvélin reyndist að jafnaði slá
hreint og jafnt og var stubbhæð í
sláttufari að meðaltali 53 mm og
fráviksstuðull 37% við ökuhraða
á bilinu 6,0-16,7 km/klst í fyrri
slætti, en 51 mm með fráviks-
stuðul 41% í seinni slætti.
Sláttunánd er stillt með lengd
yfirtengis. Sláttubúnaður vélar-
innar fylgdi vel ójöfnum landsins.
Vinnslubreidd vélarinnar er 2,8
m. Ætla verður að lágmarki 50
kW (68 hö) dráttarvél fyrir
M-Hale
sláttuvélina til að fullnýta af-
kastagetu hennar. Aðeins bar á
að reimdrif í aflfærslu gæf! eftir
við mesta álag. Þrátt fyrir fremur
mikla vinnslubreidd lætur vébn
tiltölulega vel að stjórn og þyngd
hennar ætti ekki að raska þunga-
hlutföllum meðalstórra dráttar-
véla í flutningi sé lyftihæðin hæfi-
leg. Hlífðardúkar vélarinnar eru
léttir og hættir til að leggjast
undan vindi og er þá sláttubún-
aður óvarinn. Dagleg umhirða er
fljótleg. í lok reynslutímans var
ekki unnt að merkja óeðlilegt slit
á vélinni og aðeins einn sláttu-
hnífur brotnaði. Engar bilanir
komu fram á reynslutímanum.
Vélin virðist vera traustbyggð og
vönduð að allri gerð. -ohr
Ballo-Dan
heymatari
Gerð: Ballo Dan TS.
Framleiðandi: Doubiel Record
Trading, Danmörku.
lnnflytjandi: Vélar og þjónusta hf.
Ballo Dan TS heymatari fyrir
heyrúllur var reyndur af
Bútæknideild Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins sumarið 1995
og veturinn 1996 og notaður alls
við mötun á um 280 heyrúllum
bæði við hirðingu og gjafir. Mat-
arinn er ætlaður til að mata hey
úr heyrúllum af breytilegri stærð
og á ólíku þurrkstigi. Honum er
ætlað að vinna staðbundið til
dreifingar á heyfóðri úr heyrúll-
um í flutningatæki eða á færi-
band. Hann er knúinn með ein-
fasa rafmótor og vegur um 590
kg. Ekki er hægt að stjórna
hraða á mötunarbandi en hafa
má nokkur áhrif á mötunarhraða
með hallastillingu á bakhlið tæk-
isins. Matarinn rífur heyið úr
böggunum og skilar því í nokkuð
samfelldan heystreng hvort held-
ur í fóðurvagn eða annað flutn-
ingatæki t.d. blásara við hirðingu
á þurrheyi. Mælingar voru gerð-
ar á afköstum matarans og voru
þau á bilinu 4-10 rúllubaggar á
klst. allt háð aðstæðum og þurrk-
stigi rúllanna. þau afköst sam-
svara oft um 1,3-3,5 tonnum af
þurrheyi á klst. Athuganir á
vinnu við gjafir í gripahúsum
sýndu 20% styttri tíma við gjafir
en að skera rúllurnar og moka í
fóðurvagn. Til að koma mataran-
um við í gripahúsum þarf gott
rými þar sem sjálft tækið þarf
um 6 m2. Ef færa á baggana í
tækið með dráttarvél þarf burð-
arþol gólfa að vera mikið. Þegar
unnið er við heymokstur nálægt
mataranum t.d. mötun í vagn
eða heyblásara þarf að gæta sér-
stakrar varúðar með tilliti til
slysahættu og nauðsynlegt er að
hafa öryggistreng á tækinu. Mat-
arinn er traustlega smíðaður og
ekki var vart neinna bilana á
reynslutímanum. -ohr
hj&mm
RULLUHNIFAR
HEYTÆTLUR
VELAR&
ÞJÉNUSTAhf
LLUBINDIVELAR
JÁRNHÁLSI 2,110 REYKJAVÍK, SÍMI 587 6500
ÓSEYR11A, 603 AKUREYRI, SÍMI 461 4040
Itp fóður
3 ára
Getum nú boðið eftirfarandi hráefni til heimablöndunar:
• Heilt og valsað bygg
• Fiskimjöl
■ Hágæða loðnumjöl
• Sojamjöl
• Próteinblanda
■ Magnesíumblanda fyrir kýr Framleitt af Vitfoss í Danmörku
• Vítamín- og steinefnablanda fyrir svín Framleitt af Vitfoss í
Danmörku
Einnig tilbúnar blöndur fyrir svín:
■ TP Súper START
• TP Smágrísir
• TP Eldisgrísir
• TP Gyltur
Fyrir kornbændur:
• Komvalsar, margar stærðir
• Komþurrkarar
Ennfremur getum Við boðið lausnir og ráðgjöf varðandi nýbyggingu og
breytingar eða endumýjun svínahúsa, einnig öll tæki og innréttingar til
heimablöndunar fyrir svína- og kúabú. Tækin eru frá Skiold A/S í
Danmörku.
TP Fóður ehf. Köllunarklettsvegi 4, sími 588 9191
TP Fóður ehf. skrifstofa, Lynghálsi 9, sími 587 9191