Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.05.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.05.1997, Blaðsíða 1
t \ Fréttir og þjóðmál Skagafjörður Kuídakastió Kefluðu vaktmann og rændu bíl Sporhundarfundu ungmenni frá Bakkaflöt. Laust fyrir klukkan 01.00 sl. nótt var lögreglunni á Sauðárkróki tilkynnt að ijórir unglingar, tveir piltar og tvær stúlkur, að vistheimilinu Bakkaflöt í Lýtingsstaðahreppi, hefðu tekið bifreið heimilisins traustataki og ekið á brott eftir að hafa bundið og keflað konu sem var þar vaktmaður. Eftir að bílnum hafði verið ekið inn á þjóðveg nr. 1 var stefnan tekin fram Blönduhlíð, í átt til Akur- eyrar, en snúið við eftir að hafa lent í samstuði við bifreið ann- ars gæslumanns sem fylgdist með flóttanum. Lögreglubifreið var ekið í humátt á eftir ung- lingunum og var hraðinn mikill og algjör mildi að ekki urðu slys skv. upplýsingum Lögreglunnar á Sauðárkróki. Unglingarnir óku næst bfln- um um Sigluíjarðarveg út Blönduhlíð og fram í Hegranes þar sem þeir yfírgáfu bflinn. Björgunarsveitarmenn með sporhunda voru fengnir á vett- vang og um kl. 04.00 voru ung- mennin handtekin skammt frá bænum Kárastöðum í Hegra- nesi. Starfsfólk, björgunarsveit- armenn og lögregla fluttu krakkana síðan heim að Bakka- flöt. Þetta er í annað skipti sem ungmenni strjúka frá fyrr- nefndu meðferðarheimili. Dag- ur-Tíminn reyndi að afla upp- lýsinga um líðan vaktkonunnar á Bakkaflöt í gærkvöld en fékk engin svör. BÞ Lífeyrissjóðir Ætlum að afgreiða frumvarpið í haust Halldór Ásgrímsson, utan- ríkisráðherra, segir að stjórnarflokkarnir séu ákveðnir í að afgreiða lífeyris- málin, en hafi þótt rétt að gefa aðilum vinnumarkaðarins meiri tíma, úr því þeir óskuðu eindreg- ið eftir því. „í ljósi þess að þetta mál hefur verið til umfjöllunar svo lengi sem elstu menn muna, þótti stjórnar- meirihlutanum rétt að gefa mönnum svig- rúm til þess að skoða málin bet- ur. Það þýðir hins vegar ekki að það sé tryggt að það verði hægt að sætta þau sjónarmið sem eru uppi í mál- inu, en það er sjálfsagt og nauðsynlegt að reyna að ná eins góðri sátt um máhð og kostur er.“ Halldór segir að það eigi að ljúka málinu fyrir áramót, jafn- vel þótt það náist ekki sátt um það við alla. „Það er eindreginn ásetningur okkar að ljúka þessu máli fyrir næstu áramót og allir sem um þetta mál hafa fjallað, telja það nauðsynlegt. Það er staðrejmd að hér hafa ver- ið að byggjast upp séreignar- sjóðir undanfar- in ár og það veldur ákveðn- um vanda. Þess- ir sjóðir hafa ekki tekið þátt í samtryggingarkerfinu, sem þeir verða að gera. En eftir því sem menn láta þetta dragast lengur, þeim mun erfiðara verður mál- ið.“ -vj Sjá einnig bls.9 Æðarfuglunum á Fnjóskárósum veitti ekki af dúnhiýrri hempu sinni í gær, kuidinn nísti merg og bein og klakaböndin neðan við prests- setrið Laufás minntu á skriðjökla. Spurningin er hvort náttúruleg klæði og þolinmæði varpfugla dug- ar til að sigra kuldabola sem bítur frá sér fram að helginni um landið norðanvert, út vikuna a.m.k. sam- kvæmt veðurspá. Sonur Péturs í Laufási, Þórarinn, var enn vongóð- ur um að úr rættist í gær, en hann sér um að nytja fugiinn í Laufási. Tíkin Sara tjáði sig ekki um málið. BÞ/Mynd GS Tvísýnt með varp Búsifjar framundan Kjá nyfjendum æðarfugla um landið norðanvert? Kuldakastið sem gengur nú yfir landið norðanvert gæti orðið til þess að fuglavarp misferst í nokkrum mæli og þess eru dæmi að mófuglar hafi drepist úr kulda. Köld vor hafa mikil áhrif á af- komu andfugla og spörfuglar eru enn viðkvæmari, að sögn Ólafs Einarssonar, fuglafræð- ings hjá Náttúrufræðistofnun. „Fuglum sem verpa fækkar, eggin verða færri og svo koma þeir færri ungum á legg,“ segir Ólafur Einarsson. Þeir sem nytja æðarfuglinn gætu orðið fyrir nokkrum tekju- missi ef vorið bíður lengur og slógust blaðamenn Dags-Tím- ans í Uð með fjölskyldunni á Laufási við Eyjafjörð í gær og fylgdu Þórarni, elsta afkomanda sr. Péturs og Ingu, þar sem hann leit eftir varpinu. Hreiður á jörðinni eru á fimmta hundr- að og sagði Pétur að varpið í ár hefði hafist um síðustu mánaða- mót. „Ég man eftir því að í hret- um hafa kollurnar látið snjóa yfir sig, þannig að þær eru mjög þrautseigar. Hins vegar er ljóst að ef veðrið lagast ekki, fer eitt- hvað af varpinu forgörðum. Hitastigið er aUtaf niðri við frostmark þannig að það er spurning hve lengi kollan held- ur sér kyrri," sagði Pétur. Vorið 1979 hefur verið borið saman við það sem nú er að gerast en þá féllu fuglar unn- vörpum. Of snemmt er þó að spá fyrir um það, en fuglar sem lifa á skordýrum og öðrum smádýrum fá enga fæðu í shku árferði. Það eru því ekki bara nytjafuglar sem eru í hættu. Við Mývatn verpa 14 anda- tegundir að staðaldri og er varp þar hafið og ætti að ná hámarld á næstu dögum. Töluverður ís er ennþá á vatninu sem bætir ekki líkurnar á að vel muni takast til. „Þetta gæti orðið mjög alvarlegt þótt andfuglar geti reyndar frestað varpinu og endurunnið eggin ef svo má segja,“ sagði Ól- afur Einarsson, fuglafræðingur, um horfurnar þar. BÞ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.