Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.06.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.06.1997, Blaðsíða 1
LIFIÐ I LANDINU Miðvikudagur 4. júní 1997 - 80. og 81. árgangur -102. tölublað Blað sprækur Jón Oddsson frjáls- íþróttamaður kepp- ir í langstökki og þrístökki á Smá- þjóðaleikunum. Tuttugu ár eru frá því hann varfyrst valinn í landsliðið. etta er svolítið spurning um andlegu hliðina, að vera sprækur og hafa gaman af þessu, vera ekki að stressa sig of mikið yfir þessu en vera samt nógu spenntur með adrenalínið í gangi. Mönn- um er misvel gefið að ná þess- um hlutum fram á réttum tíma. Sumir virðast alltaf geta fram- kallað þetta í keppni en aðrir eiga erfiðara með það,“ segir frjálsíþróttamaðurinn ijölhæfi Jón Oddsson. Jón heitir fullu nafni Jón Halldór Oddsson, fæddur 1958 á ísafirði og al- inn þar upp við íþróttaiðkun frá fyrstu tíð. Hann er íþróttamaður góður, hefur komið nálægt mörgum íþróttagreinum, keppt í knatt- spyrnu með ísafirði og KR og leikið með landsliðinu í fótbolta. Hann hefur náð langt í frjálsum íþróttum og ætlar að halda merki íslendinga á lofti á Smáþjóðaleikunum ásamt hin- um frjálsíþróttamönnunum í landshðinu. Jón hefur verið vahnn í landsUðið í frjálsum íþróttum frá 1977 fyrir utan nokkur ár eftir slæm meiðsl árið 1984. Hann hélt áfram í fótboltanum en varð að endingu að hætta vegna meiðslanna og hellti sér út í frjálsar. Hann sækir æfingar síðdegis og á kvöldin og þjálfar tvo imga og efnilega íþrótta- menn, Bjarna Þór Traustason í langstökki og Rakel Tryggva- dóttur í þrístökki. Hann býr með hlauparanum frækna, Mörtu Ernstdóttur. Marta og Jón eiga von á barni í haust og tekur hún því ekki þátt í Smá- þjóðaleikunum. Gerðu lukku Jón fluttist tii Reykjavíkur um tvítugt, fór í Háskóla íslands og fór að æfa knattspyrnu með KR og körfu með íþróttafélagi stúd- enta. Hann náði meira að segja svo langt að fara til Barcelona að spUa í Evrópukeppni bikar- hafa og er talsvert montinn af. Hann kom fyrst nálægt fijálsum árið 1976 þegar þeir fóru nokkrir fótboltastrákar á árlegt héraðsmót á Núpi í Dýrafirði. Þeir mættu aftur og gerðu stormandi lukku. Haustið 1980 ákvað Jón að snúa sér alfarið að frjálsum en hann var í KR á þessum tíma og segir að það hafi verið „mór- alskt leiðinlegt ár. Síðan kitlaði alltaf að maður var búinn að ná ágætis ár- angri í frjáls- um,“ segir hann. Hann keppti þó í knattspyrnu með ísfirðing- unum sumarið 1981 og kom- ust þeir upp í fyrstu deild. Hann æfði frjálsar á vet- urna, keppti innanhúss og fór á fullu í fót- boltann á sumrin allt þar til hann lagði knattspyrnuskóna alfarið á hiUuna. „Árið 1987 var mér boðið á mót og það var um leið úrtöku- mót fyrir landskeppni þannig að ég datt óvart inn í landsliðið aftur," segir Jón. Úr magni í gæði Jón keppir í langstökki og þrí- „Árið 1987 var mér boðið á mót og það var um leið úr- tókumót fyrir landskeppni þann- ig að ég datt óvart inn í landsliðið aftur.“ Jón Oddsson frjálsíþróttamaður keppir í langstökki og þrístökki á Smáþjóðaleikunum. Hann keppti með lands- liðinu í knattspyrnu í tveimur leikjum á árum áður en var fyrst valinn í landsliðið í frjálsum fyrir 20 árum. Myn&.E.ót. stökki í dag og á morgun en tekur sér ekkert frí frá vinnu. Hann segir að það sé margt sem hafi áhrif á þjálfunina og árangurinn. Hann hafi æfing- arnar í miklu magni á ákveðnu tímabiU. Þeim sé síðan fækkað og meira hugsað um gæðin, tæknin sé fínpússuð og þá sé farið að „hvila og létta og reyna að vera léttur og ferskur þegar þar að kemur. Síðan er alltaf spurning hvernig til tekst, hvort maður hittir á það. Stundum er maður of seinn og þá er maður frekar þungur á sér,“ útskýrir hann. Jóni líst vel á leikana og von- ar að veðrið vérði skaplegt meðan þeir standa. Keppnin verði ábyggilega hörð í lang- stökkinu en í þrístökkinu sé það einn keppandi frá Kýpur sem beri af. Hann telur að ekki hafi verið nógu vel búið að íslensku keppendimum enda hafi endur- bygging Laugardalsvallar kom- ið niður á þeim. Völlurinn hafi verið lokaður stóran hluta vetr- arins og mórallinn því ekki nógu góður. Móralskt erfitt „Þetta hefur verið erfitt, bæði aðstaðan sem slík og stemmn- ingin. Helmingurinn af æfing- unum er það að hittast, æfa saman og peppa hvort annað upp. Stemmningin hefur verið mjög döpur en það hefur batn- að síðustu tvær vikurnar. Það er ágætis stemmning núna. Það þarf að byggja spennuna upp gegnum langan tíma til að liðið nái sem bestum árangri. Okkur finnst hálfpartinn hafa gleymst að undirbúa íþróttamennina,' segir hann. -GHS

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.