DAGBLADID & Vf SIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. Kjallarirm AðalheiðurJónsdóttir þeim hefir tekist að hlaða upp öflugt gjömingaver eða andlega forarvilpu, sem hópsál þeirra veltir sér upp úr öllum stundum. Það verður ekki sagt, að þar fyrirfinnist ekkert annað en kjötkropparnir. Nú þegar ASÍ hefir samið við vinnuveitendur og fjöldamörg félög hafa samþykkt þá samninga, kemur formaður Alþýðusambands Vest- fjarða og segir þetta vonda samninga litlar sem engar kjarabætur og Vestfirðingar sætti sig ekki við slíkt samkomulag. Vafalaust munu margir hér telja þetta of litlar kjarabætur. Og nú kemur rúsínan í pylsuenda Vestfirðingsins: Hitaveita og rafmagn á höfuðborgarsvæðinu var svo miklu ódýrara en þar vestra, að þennan mun varð að jafna. Sem sagt kjarabætur þeirra skyldu verða tilsvarandi kjaraskerðing hér syðra. Langt getur nú ósvífnin gengið, þó að þetta sé að visu það, sem alltaf er að gerast, mun það þó varla hafa komið svo berlega fram í kjarasamningum fyrr. Og þetta var að heyra, að væri sameiginleg krafa vestfirskra launþega og vinnuveitenda, og hingað voru heiðursmennirnir komnir til að tala við rikisstjórnina. Svo að það eru mestu líkur til, að fólk á höfuðborgarsvæðinu þurfi ekki sjálft að hafa fyrir að ráðstafa kjarabótunum. Þeir geta svo sem fengið uppfylltar hinar og aðrar kröfur, mennirnir með fimmfalda kosningaréttinn. En skammt mun sá réttur duga til að gera ómenni að mönnum. Ef nbkkurs staðar er til annað eins skrípaþjóðfélag og hið íslenska væri gaman að vita, hvar það er. Allar árásir á lífskjör fólks hér nálgast, satt að segja, ofsóknir. Er það kannski gert í þeim tilgangi að skapa hér ómanneskjulegt mannlif og auka stéttamismun? Það er augljóst mál, að hversu svívirðilegar árásir, sem hér eru gerðar á lífskjör fólks, verður þó alltaf allstór hópur auðmanna. En með sama áframhaldi verður að sjálfsögðu hópur fátæklinga enn stærri. Og það mega þeir vita, sem nú vinna skefjalaust að niðurlægingu höfuðborgarinnar. Vinna jafnframt að niðurlægingu allra þjóðarinnar. Til er málsháttur, sem hljóðar svo: Eftir höfðinu dansa limirnir, en vissulega gætum við sagt nú í dag Eftir limunum dansar höfuðið. Kannski er ekki óeðlilegt, að slikt á- stand verði eitthvað undarlegt og lítið um heilbrigðan hugsanagang. Er það ef til vill þess vegna að þjóðfélagið okkar er orðið ófrýnilegt skrímsli, sem berst við sjálft sig? Við borgum ekki" Mér var annars að detta nokkuð í hug, sem gæti orðið skemmtileg tilbreyting hjá okkur. Hvernig væri að hætta að láta þessi gjöld til lénsveldisins koma með hinu og öðru móti á reikningum eða vörum, er við kaupum, eins og verðjöfnunar- gjald og greiðslur í lífeyrissjóð bænda. En þess í stað láta heiðurs- mennina sækja þetta eins og einu sinni eða tvisvar á ári? Og þá sýnist mér vel við hæfi að þeir komi í einu samfloti alls staðar að af landinu og gangi í skrúðgöngu um borgina. Að sjálfsögðu raðað eftir mannvirðingum. Ráðherar fyrst, þá þingforsetar, tvöfaldir alþingis- menn, þ.e. alþingismenn, sem eru bændur, einfaldir alþingismenn iðjuhöldar, útgerðarmenn, kaupmenn og einfaldir bændur og þannig áfram niður metorðastigann, uns allt liðið er komið á sinn stað. Fyrr á öldum fór það fólk sem ekki gat bjargað sér til þeirra byggðarlaga, sem það hélt að gætu hjálpað því. En kröfðust þess ekki, að gefendurnir sendu gjafirnar lieiiii til þess. Hvernig væri að fólk á höfuðborgarsvæðinu kæmi með þá uppástungu, að þessi háttur yrði tekinn upp að nýju? Og ef það væri ekki fáanlegt segði einfaldlega: Við borgum ekki, við borgum ekki." Aðalheiður Jónsdóttir. X Hilmar Guðlaugg^on ^l^^w^^u^^mMnuMH l J múrari er verðugur fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur, það hefur hann sýnt með störfum sínum sem varaborgarfulltrúi á undanförnum árum. Hilmar hefur um langt árabil starfað innan verkalýðs- hreyfingarinnar, m.a. setið í miðstjórn Alþýðusambands íslands o'g er í Verkalýðs- ráði Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur Hilmar sinnt málefnum íþróttahreyfingarinnar og er formaður Knattspyrnu- félagsins FRAM. Tryggjum Hilmari Guðlaugssyni ÖRUGGT SÆTI í borgarstjórn Reykjavíkur með því að kjósa hann í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins nú um helgina. STUÐNINGSMENN Upplýsingasími 37750 & Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík mun á næstunni ráðstafa: a. 14 nýjum íbúðum, sem eru í byggingu við Kambasel í Reykjavík b. Eldri ibúðum sem koma til endursölu fyrri hluta arsins 1982 Þeir, sem hafa hug á að kaupa þessar íbúðir, skulu senda umsóknir á sérstökum eyðublööum, sem afhent verða á skrifstofu Stjórnar verkamannabústaða að Suðurlandsbraut 30, Reykjavík. Á skrifstof- unni verða veittar almennar upplýsingar um greiðslukjör og skilmála sbr. lög nr. 51/1980. Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl.9-12 og 13-16. Allar fyrri umsóknir, um íbúðir eru felldar úr gildi og þarf þvi að end- urnýja þær, vilji menn koma til álita við úthlutun. Umsóknum skal skila eigi síðar en 11. desember n.k. Stfórn verkamannabústaða í Reykjavík SVARIÐ við orkukreppu og veröbólgu COLT er framhjóladrifinn. COLT er sparneytinn (eyðsla 71./100 km.). COIX er rúmgóður. COIT er fáanlegur 3 og 5 dyra. Sá besti frá JÆPAN Komið, skoöiö og reynsluakið COLT1981 frá MITSUBISHI. Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn. eHEKlAHF Laugavegi17Q-172 Sími 2124Q