Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. C Kjallarinn þeim hefir tekist að hlaða upp öflugt gjörningaver — eða andlega forarvilpu, sem hópsál þeirra veltir sér upp úr öllum stundum. Það verður ekki sagt, að þar fyrirfinnist ekkert annaðen kjötkropparnir. Nú þegar ASÍ hefir samið við vinnuveitendur og fjöldamörg félög hafa samþykkt þá samninga, kemur formaður Alþýðusambands Vest- fjarða og segir þetta vonda samninga — litlar sem engar kjarabætur og Vestfirðingar sætti sig ekki við slíkt samkomulag. Vafalaust munu margir hér telja þetta of litlar kjarabætur. Og nú kemur rúsínan í pylsuenda Vestfirðingsins: — Hitaveita og rafmagn á höfuðborgarsvæðinu var svo miklu ódýrara en þar vestra, að þennan mun varð að jafna. Sem sagt kjarabætur þeirra skyldu verða tilsvarandi kjaraskerðing hér syðra. Langt getur nú ósvífnin gengið, þó að þetta sé að visu það, sem alltaf er að gerast, mun það þó varla hafa komið svo berlega fram í kjarasamningum fyrr. Og þetta var að heyra, að væri sameiginleg krafa vestfirskra launþega og vinnuveitenda, og hingað voru heiðursmennirnir komnir til að tala við ríkisstjórnina. Svo að það eru mestu líkur til, að fólk á höfuðborgarsvæðinu þurfi ekki sjálft að hafa fyrir að ráðstafa kjarabótunum. — Þeir geta svo sem fengið uppfylltar hinar og aðrar kröfur, mennirnir með fimmfalda kosningaréttinn. — En skammt mun sá réttur duga til að gera ómenni að mönnum. Ef nokkurs staðar er til annað eins skrípaþjóðfélag og hið íslenska væri gaman að vita, hvar það er. Allar árásir á lífskjör fólks hér nálgast, satt að segja, ofsóknir. — Er það kannski gert í þeim tilgangi að skapahér ómanneskjulegt mannlíf og auka stéttamismun? — Það er augljóst mál, að hversu svívirðilegar árásir, sem hér eru gerðar á lífskjör fólks, verður þó alltaf allstór hópur auðmanna. — En með sama áframhaldi verður að sjálfsögðu hópur fátæklinga enn stærri. Og það mega þeir vita, sem nú vinna skefjalaust að niðurlægingu höfuðborgarinnar. Vinna jafnframt að niðurlægingu allra þjóðarinnar. Til er málsháttur, sem hljóðar svo: Eftir höfðinu dansa limirnir, en vissulega gætum við sagt nú í dag — Eftir limunum dansar höfuðið. Kannski er ekki óeðlilegt, að slíkt á- stand verði eitthvað undarlegt og lítið um heilbrigðan hugsanagang. — Er það ef til vill þess vegna að þjóðfélagið okkar er orðið ófrýnilegt skrímsli, sem berst við sjálft sig? „Við borgum ekki" Mér var annars að detta nokkuð í hug, sem gæti orðið skemmtileg tilbreyting hjá okkur. — Hvernig væri að hætta að láta þessi gjöld til lénsveldisins koma með hinu og öðru móti á reikningum eða vörum, er við kaupum, — eins og verðjöfnunar- gjald og greiðslur í lífeyrissjóð bænda. En þess í stað láta heiðurs- mennina sækja þetta eins og einu sinni eða tvisvar á ári? Og þá sýnist mér vel við hæft að þeir komi í einu samfloti alls staðar að af landinu og gangi í skrúðgöngu um borgina. Að sjálfsögðu raðað eftir mannvirðingum. — Ráðherar fyrst, þá þingforsetar, tvöfaldir alþingis- menn, þ.e. alþingismenn, sem eru bændur, einfaldir alþingismenn iðjuhöldar, útgerðarmenn, kaupmenn og einfaldir bændur og þannig áfram niður metorðastigann, uns allt liðið er komið á sinn stað. Fyrr á öldum fór það fólk sem ekki gat bjargað sér til þeirra byggðarlaga, sem það hélt að gætu hjálpað því. En kröfðust þess ekki, að gefendurnir sendu gjafirnar heim til þess. Hvernig væri að fólk á höfuðborgarsvæðinu kæmi með þá uppástungu, að þessi háttur yrði tekinn upp að nýju? Og ef það væri ekki fáanlegt segði einfaldlega: — „Við borgum ekki, við borgum ekki.” Aðalheiður Jónsdóttir. • 3 PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 29.^30. NÓVEMBER 1981 Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík mun á næstunni ráðstafa: a. 14 nýjum ibúðum/ sem eru í byggingu við Kambasel i Reykjavík b. Eldri ibúðum sem koma til endursölu fyrri hluta ársins 1982 Þeir# sem hafa hug á að kaupa þessar íbúðir, skulu senda umsóknir á sérstökum eyðublöðum, sem afhent verða á skrifstofu Stjórnar verkamannabústaða að Suðurlandsbraut 30/ Reykjavík. Á skrifstof- unni verða veittar almennar upplýsingar um greiðslukjör og skilmála sbr. lög nr. 51/1980. Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl.9-12 og 13-16. Allar fyrri umsóknir/ um íbúðir eru felldar úr gildiog þarf því að end- urnýja þæo vilji menn koma til álita við úthlutun. Umsóknum skal skila eigi síðar en 11. desember n.k. Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík X Hilmar murari er verðugur fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur, það hefur hann sýnt með störfum sínum sem varaborgarfulltrúi á undanförnum árum. Hilmar hefur um langt árabil starfað innan verkalýðs- hreyfingarinnar, m.a. setið í miðstjórn Alþýðusambands íslands og er í Verkalýðs- ráði Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur Hilmar sinnt málefnum íþróttahreyfingarinnar og er formaður Knattspyrnu- félagsins FRAM. Tryggjum Hilmari Guðlaugssyni ÖRUGGT SÆTI í borgarstjórn Reykjavíkur með því að kjósa hann í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins nú um helgina. STUÐNINGSMENN Upplýsingasími 37750 COU er framhjóladrifinn. COLT er sparneytinn (eyösla 7I./100 km.). COLT er rúmgóöur. Komiö, skoðið og reynsluakið COLT 1981 frá MITSUBISHI. COIT er fáanlegur 3 og 5 dyra. Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn. Sá hesti frá JAPAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.