Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Blaðsíða 4
,± DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982. Góð verðlaun í boði fyrir hlutskörpustu stúlkumar f rægur brezkur leikhússtjóri var látinn dæma myndimar í Teofani-fegurðarsamkeppninni tóku þátt 47 konur en tvær myndir voru af þremur þátttakenda svo myndirnar voru fimmtíu talsins. Yngsti þátttakandi var 16 ára og sá elzti kominn fast að sjötugu. Þáttakendur sem voru alls staðar að af landinu voru valdir þannig aðýmist voru þær beðnar að taka þátt eða þær buðu sig fram sjálfar. Myndirnar voru síðan settar í sígar- ettupakkana. Allir áttu svo að greiða atkvæði um hver þeirra skyldi fá verð- laun. Senda átti inn mynd af þeirri stúlku sem viðkomandi vildi greiða atkvæði sitt. Hver mynd var eitt at- kvæði og senda mátti svo margar myndir sem hver vildi. Árangurinn var svo birtur á alþingishátiðinni 26: júní 1930. Góð verðlaun voru í boði fyrir stúlk- urnar. Fyrstu verðlaun voru 500 krón- ur, dágóður skildingur á þeirra tíma mælikvarða. önnur verðlaun voru 200 krónur og þriðju 100 krónur. Þá voru og góð verðlaun i boði þeim sem gátu safnað saman öllum myndunum fimm- tíu og var það frítt flugfar yfir Reykja- vík sem tók fimmtán mínútur. Hugmyndina að þessari keppni átti brezkt fyrirtæki sem Þórður Svéinsson og Co átti viðskipti við. Þangað voru myndirnar sendar og var frægur brezk- ur leikhússtjóri, Charles B. Cochrane, fenginn til að dæma endanlega og segja til um hverjar stúlknanna hlytu verð- launin. „Vart kominn f rá borði fyrr en ég byrjaði að aura saman í aðra ferð” —segir Öm Johnson, sem fór sína fyrstu flugferð íboði Teofani „ Já, hvort ég man eftir þessu. Ég var að vísu ekki nema 14 ára polli þegar þetta var og ekki byrjaður að reykja. En maður fylgdist vel með hvar væri reykt og þar var verið á vappi tímunum saman til að vera nógu snöggur upp á lagið að grípa tómu sígarettupakkana sem fleygt var ef ske kynni að mynd leyndist þar i.” Það er Örn Johnson, fyrrv. forstjóri sem svo mælir, en hann var svo stál- heppinn að geta safnað Teofani- mynd- unum 50 og komast i flugferð yfir Reykjavík i staðinn. Annars var Örn ekki svo spenntur fyrir stelpunum heldur var það vonin að komast í loft- ið, sem átti hug hans allan. „Þegar þetta var var Tóbakseinka- salan ekki komin til sögunnar. Það hefur því sjálfsagt verið gripið til þess- arar keppni til að auka söluna, enda hreif það. Ég minnist þess að við poll- arnir sátum og fylgdumst með jregar menn festu kaup á Teofanisígarettum og svo var maður snapandi þetta alveg endalaust enda góð verðlaun í boði. Ég man vel eftir deginum, sem ég fór í flugferðina. Þetta var fyrsta flugferð- in mín og maður sat alveg stjarfur enda hafði ég þá strax ódrepandi áhuga á flugvélum og öllu er að því laut. Við fórum með Súlunni, sem var önnur tveggja flugvéla sem hér voru. Hún var á flotholtum og það var lagt upp frá Reykjavíkurhöfn. Það var þýzkur flug- maður sem flaug vélinni, Símon að nafni, og honum til aðstoðar var mað- „I/ið strákarnir fylgdumst irel með hvar væri reykL " örn Johnson. ur að nafni Wind. Þeir sátu fremst fyrir opnum tjöldum en við farþegarnir, sem vorum fjórir, sátum í lokuðum klefa. Ég man að ég var eini farþeginn um borð, sem hafði fengið ferðina í verð- laun, hinir þurftu að borga 15 krónur, og þótti þeim ég hafa himin höndum tekið að komast frítt með. Það var flogið yfir Reykjavík, alveg ógleyman- ieg ferð, og svo lent að fimmtán mínút- um liðnum aftur á Reykjavikurhöfn. Mér þótti þessi ferð svo skemmtileg að mér fannst ég aldrei hafa upplifað annað eins. Svo gaman þótti mér að ég var vart kominn frá borði en ég byrjaði að aura saman í aðra ferð,” sagði örn Johnson. „Mór fannst hún ekkort oiga að vera að þessu." Sóra Grímur Grímsson. „Ég skildi ekkertí henniað veraað þessu” — segirbróðirfyrstu fegurðardrottningar íslands Séra Grímur Grimsson er tvíbura- bróðir Hildar Grímsdóttur, þeirrar er fór með sigur af hólmi i fegurðarsam- keppninni, þá átján ára gömul. Hvað þótti honum um þátttöku systur sinn- ar í keppninni? ,,Mér þótti það satt að segja hálf- ieiðinlegt og fannst hún ekkert eiga að vera að þessu. Við vorum ekki nema átján ára þegar þetta var, bara unglingar og þá er maður alltaf svo viðkvæmur. En þegar ég hugsa um þetta nú skil ég hreint ekki að mér skyldi þykja þetta leiðinlegt.” Mannstu tildrög þess að Hildur fór út i þetta? „Þetta var auglýst og hún ákvað að taka þátt alveg upp á eigin spýtur. Hún hefur alltaf verið svo sjálfstæð. Þegar þetta var var hún, eins og það var kallað, „pige í huset”, svo hún bjó ekki heima. Ég vissi ekkert um þetta fyrr en hún var orðin þátttak- andi í keppninni, en hún hefur sjálf- sagt rætt málið við mömmu.” — Hvernig var talað um þetta í bænum? ,,Þaö var nú eins og allt annað, sumir voru hrifnir af þessu, aðrir gagnrýndu þetta mjög. Það má eigin- lega segja að Ameríka hafi veriö að halda innreið sína hingað með þessu, keppni eins og þessi var að ameriskri fyrirmynd held ég áreiðanlega.” — Hvernig var talað um þær stúlk- ur sem þátt tóku í keppninni? ,,Það var upp og ofan. Það var talsvert grin gert að eldri konum sem þátt tóku.konumko.nnumaf léttasta skeiði, en ungu stúlkurnar stóðu al- vegutan við slikt umtal.” — 500 krónur hefur þótt dágóöur skildingur á þessum árum? „Já, þú getur rétt ímyndað þér. Á þessum árum var verkamaður í góðri verkamannavinnu með svona 300 krónurámánuði.” — Veiztu hvernig Hildur eyddi þessum peningum? ,,Hún fór vel með þessa aura og Sigurður bróðir okkar geymdi þá fyr- ir hana. Ég man ekki til þess að hún keypti sér neitt sérstakt fyrir aurana heldur hafi þeir orðið eyðslufé henn- ar síðar meir,” sagði séra Grimur Grímsson. „Menn áttu það tilaðbenda amann og fíissa” —segir Sigurbjörg Lárusdóftir, sem hlaut önnur verðlaun í Teofani-fegurðarsamkeppninni Sigurbjörg Lárusdóttir var einn þátt- takenda í Teofani-fegurðarsamkeppn- inni, þá 21 árs. Birtust af henni tvær myndir og hafði hún erindi sem erfiði því hún lenti í öðru sæti og fékk 200 krónur. „Hvers vegna ég tók þátt í þessu? Ég var eiginlega nörruð út í þetta og sá strax eftir því, þannig að það birtust myndir af mér aðeins í fyrstu sending- unni. Þannig var að ég vann á Símstöð- inni á þessum árum. Þar vann með mér stúlka sem var gift Birni Ólafssyni, sið- ar ráðherra, en hann vann hjá Þórði Sveinssyni og Company. Hann kom einhvern tima að sækja hana i vinnuna og þá atti hann okkur nokkrum út í þetta.” — Var það verðlaunanna vegna? „Nei, alls ekki. Ég vissi ekki fyrr en löngu seinna að það voru verðlaun í boði.” — Þú segir að þú hafir strax séð eftir þessu? ,,Já, ég vildi draga mig út úr keppn- inni en það var þá of seint. Þannig var að myndirnar voru sendar út og þar voru þær settar í pakkana. Fyrsta send- ingin var á leiðinni þegaT ég ætlaði að draga mínar myndir til baka en ég gat þó komið því þannig fyrir að myndir af mér birtust ekki í fleiri sendingum.” — Hvers vegna vildir þú draga þig til baka? ,,Ja, ég fór beint úr vinnunni til LoftS' ljósmyndara. Hárið á mér var hálfljótt, greiðslan ekki nógu fín, að mér fannst, svo mér þóttu myndirnar hreinlega vondar.” — Af hverju voru tvær myndir af þér í keppninni? ,,Það var Loftur sem réð því, ég hafði þar enga hönd í bagga.” — Úrslitin voru kynnt á Þingvöllum. Varst þú þar? „Nei, mér fannst þetta allt hálf asna- legt og vildi helzt ekki koma nálægt þessu.” — Gerðir þú þér einhverjar vonir um verðlaun? ,,Nei, langt frá því, en þegar Björn var að reyna að fá okkur stelpurnar í þetta þá sagðist hann þora að leggja hausinn á sér að veði að einhver okkar yrði í efstu sætunum.” — Voru það laglegustu stúlkurnar sem tóku þátt í þessu? „Ég veit það ekki, nei, ég held ekki. fólk myndast svo misjafnlega. Lagleg- asta stúlka getur verið forljót á mynd og svo öfugt.” — Varðst þú fyrir einhverri áreitni vegna þátttöku þinnar í keppninni? „Ekki beinlínis, og þó. . . menn áttu það til að taka upp pakka af Teofani og benda svo á mann og flissa. Menn voru þröngsýnir i þá daga og gagnrýndu þetta margir, í dag þætti þetta ekkert tiltökumál” — Var gert grin að ykkur fyrir vikið? Sigurbjörg Lárusdóttir eins og hún ieit út þegar hún tók þátt í keppn- inni. „Það kom fyrir.” — Reyktir þú á þessum árum? ,,Nei, það hef ég aldrei gert. En ég get ekki neitað því að ég reyndi að byrja að reykja og það oft, einmitt Teofani. Teofani sígaretturnar voru léttar og því mjög heppilegar fyrir dömur.” — Minnistu þess að keppnin hafi verið gerð að blaðamat? „Nei, það var lítið um keppnina fjallað í blöðunum.” — Þú fékkst 200 krónur í verðlaun. Það hefur verið töluverð búbót á þessum tíma? ,,Já, mikil ósköp. Þegar þetta var hafði ég 152 krónur á mánuði. Þetta voru því rúm mánaðarlaun svo það munaði um minna.” — Mamstu hvernig þú eyddir þess- um aurum? ,,Nei, ég man það ekki, ég held ég hafi baraeytt í einhverjar nauðsynjar.” — Voru það laglegustu stúlkurnar sem unnu? „Það held ég ekki. Myndirnar voru dæmdar úti í Englandi og þær voru jafnmisjafnar og þær voru margar. Sá sem dæmdi hafði auðvitað aldrei séð okkur og vissi ekkert hvernig við litum út.” — Hildur Grímsdóttir vann. Fannst þér það verðskuldaður sigur? ,,Ég veit það ekki. Hildur var ósköp sæt og venjuleg stelpa. Hún var litii, grönn og vel vaxin og snyrtileg en ekk- ert sérstök held ég. Annars þekkti ég hana nánastekkert.” — Ef þú værir komin aftur til ársins 1930 með þá reynslu sem þú hefur nú, tækirðu þátt í svona keppni? „Nei, ég held ekki. Mér finnast þess- ar keppnir hreinlega asnalegar,” sagði Sigurbjörg Lárusdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.