Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 7
DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982.
7
Skemmtilegir skúlptír-
ar á Kjarvalsstöðum
„Þetta er mest allt unnið í leir þó ég
noti mikið önnur efni með, svo sem
gler, gifs og fleira, sagði Steinunn
Þórarinsdóttir, ung listakona, sem í
dag opnar sýningu á skúlptúrum að
Kjarvalsstöðum.
„Viðfangsefnið í öllum myndum er
svipað, það er hugleiðingar um mann-
inn, bæði sem einstakling og hóp-
veru,” segir Steinunn, sem sýndi fyrst
verk sín fyrir þremur árum. Hún hefur
stundað nám bæði í Englandi og á
Ítalíu og hlaut á síðasta ári starfslaun,
„semkomu sérmjögvel.”
„Það er mjög erfítt að ætla sér að
lifa af þessu, svo yfirleitt er maður
neyddur til að vinna annað með,”
sagði Steinunn. Hún starfaði síðast við
leiðbeiningar- og kennslustörf á
Kleppsspítala og þótti góð reynsla en
þreytandi starf fyrir skapandi lista-
mann til lengdar.
Undanfarna fjóra mánuði hefur
Steinunn helgað sig skúlptúrnum ein-
göngu. Eru öll verkin á sýningunni ný-
leg og til sölu. Er sýningin hvort
tveggja, látlaus og óvenjuleg og einnig
skemmtilega upp sett. Það er því vel til
vinnandi að koma við hjá Steinunni
einhverntíma fyrir 14. marz en þá lýkur
sýningunni.
Framtíð Vogaskóla óviss:
Lausn á næsta leiti?
Skúlptúrar Steinunnar eru af öllum stærðum og gerðum. Hér er hún innan um verk
sem hengt er i loftið og kallast „Draumur”.
-DV-mynd E.Ó.
„Málið verður tekið fyrir á fundi
fræðsluráðs á mánudag, að öllum
likindum,” íagði Kristján J. Gunnars-
son, fræðslustjóri Reykjavíkurborgar,
í samtali við DV. Honum barst bréf frá
íbúum Vogahverfis fyrir skömmu þar
sem þess var farið á leit að Vogaskóli
yrði rekinn áfram í núverandi mynd.
Eins og kunnugt er hefur verið
ákveðið af fræðsluráði að breytingar
verði á rekstri skólans, þannig að
kennsla 4. til 9. bekkjar verði flutt yfir í
Langholtsskóla. Hefur þessi ákvörðun
valdið miklunt úlfaþyt meðal íbúa
Vogahverfis.
„Ég get ekkert sagt um nú hver verð-
ur niðurstaða fundarins á mánudag en
ekki þykir mér ólíklegt að þær breyt-
ingar verði gerðar á skólahaldinu sem
gera kleift að fresta frekari ákvörðun
um framtíð Vogaskóla,” sagði Kristján
J. Gunnarsson. —KÞ
Sá sem verður fyrstur að sporðrenna
þessum skammti af góðborgurum og
frönskum kartöflum fær nýjan bil i
verðlaun. DV-mynd Friðþjðfur.
Hver
verður
fyrstur
að borða?
Sunddeild Ármanns ætlar í
samvinnu við skyndibitastaðinn Góð-
borgarann, Hagamel 67, að standa fyr-
ir allnýstárlegri keppni i næsta mánuði.
Er það keppni í hraðáti. Fær sá sem
fljótastur er að sporðrenna þrem góð-
borgurum, einum skammti af frönsk-
um kartöflum og drekka úr einu glasi
af Coca Cola vegleg verðlaun.
Sá sem nær bezta tímanum ekur á
brott á nýjum Suzuki Alto að verðmæti
79.000 krónur. Sá sem verður með
bezta tímann þegar keppnin er hálfnuð,
eða þann 12.marz, fær einnig verðlaun.
Eru það NEC— litsjónvarps-útvarps
og kassettusamstæða. Auk þess eru 10
önnur verðlaun í boði í þessari hraðáts-
keppni hjá Góðborgaranum.
Fyrsti keppnisdagur er á sunnudag-
inn á milli kl. 14 og 15. Síðan verður
keppl mánudagana 1., 8., 15. og 22.
marz og fimmtudagana 5., 12., 19. og
26. marz á milli kl. 20 og 22. Síðasti
keppnisdagur verður sunnudagurinn
28. marz og þá verða verðlaunin af-
hent. Þáttfökugjalder 250 krónur en
keppanda er heimilt að keppa oftar en
einu sinni og þá gegn hálfu gjaldi.
—kl p—
NÝS OG GtöRSREVTTW
FORDESCORT
Lágmarks loftmótstaða:
Nýi Escortinn er með straumlínulagaða yfir-
byggingu, sem minnkar loftmótstöðuna og þar
með benzíneyðsluna. Þar að auki leggst loft-
streymið þannig, að afturrúðan helst hrein.
Frábærir aksturseiginleikar:
Framhjóladrif, mikil sporvídd og sjálfstæð
fjöðrun á hverju hjóli gefa bílnum einstakt
veggrip og rásfestu.
Nákvæmt tannstangarstýri og aflhemlar með
álagsjafnara auka ötyggi í akstri.
ísqorntæki í sérflokki.
Escortinn er einstaklega auðveldur í akstri.
Stýri, hemlar og vél svara viðbrögðum öku-
mannsins á augabragði. Allir rofar eru vel stað-
settir, mælar em vel merktir og endurkasta ekki
Ijósi. Sæti em stillanleg'og veita góðan
stuðning.
en kraftmiklar vélan
Escortinn kemur með alveg nýjum 1300 og
1600 vélum, sem sameina mikið afl og
ótrúlega litla benzíneyðslu. Vélarnar em með
rafeindakveikju, sem sparar mikið viðhald.
1300 69hö/DIN”) eyðsla 6.0 l.pr.100 km.
1600 96hö/DÍN”) eyðsia 6.9 i.pr.100 km.
”) miðað við 90 km./klst.
Góð nýting
á farþega- og farangursrými:
Þverliggjandi vél og sjálfstæð fjöðrun á hverju
hjóli gefa möguleika á 5 rúmgóðum sætum og
stærri farangursgeymslu. Aftursæti má leggja
fram og auka farangursrými til muna. r
Ford Escort er fáanlegur 3 og 5 dyra auk
station-útgáfu.
Ford Escort - Þýzkur gæðabfll.
Verð:
Ford Escort GL 5 dyra
Kr. 137.000.-
Ford Escort GL Station
Kr. 138.000.-
Ford Escort XR3
Kr. 163.000.-
Ford Escort - Bfllinn sem var kosinn bfll ársins í Evrópu og Bandaríkjunum á síðasta ári.
Sveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 SIMI 85100
DV102