Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1982, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1982.
TEPP1SAUMUÐ
ÚR TAUBÚIUM
—semsíöan eru stoppuð upp
Verslunin Virka sf. hefur um
tveggja ára skeið haldið námskeið i
bútasaumi. Algengast er að nem-
endur saumi teppi á einu námskeiði,
sem varir í sex vikur, þrjá tíma í senn.
Farið er í gegn um grundvallaratriði,
nemendur gera prufur af algengustu
mynstrunum. Prufurnar eru það
stórar að þær er hægt að nýta í púða
eða að útbúa fieiri prufur sem síðar
er hægt að sauma saman í teppi.
Námskeiðin eru öll kvöld frá
mánudegi til fimmtudags frá kl. 20—
23, einnig á mánudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 17—20. Eftirmiðdags-
námskeið kosta 450 kr. en kvöldnám-
skeið kr. 500.
Helgi Þór Axelsson og Guðfinna
Helgadóttir, eigendur Virku sf.,
fengu hingað til lands Marti Michell,
en hún á eitt stærsta safn antik búta-
saumsteppa sem fyrir finnst. Hún
kom með um 40 teppi sem eru nú til
sýnis á Kjarvalsstöðum, ásamt vinnu
nemenda frá Virku. Á sýningunni
verður litið vinnuhorn, þar sem gestir
geta tekið þátt í gerð bómullar-
myndaramma undir leiðsögn frú
Marti Michell eða Guðfinnu Helga-
dóttur sem kennir á námskeiðum hjá
Virku.
Klippum niður
ónýtar flíkur
Áður fyrr voru barnaföt saumuð
upp úr fötum fullorðinna og þegar
börnin höfðu slitið sínum, þá voru
heillegustu fletirnir klipptir út í búta
og þeim safnað saman til að búa til
teppi og aðra hluti. Þegar auðveldara
reyndist að fá bómull varð þetta
tómstundagaman eða list og hlutirnir
gjarnan notaðir til gjafa. Sauma-
skapur á þessum teppum er gömul
hefð en ávallt koma upp nýjar
hugmyndir og nú er mikið lagt upp úr
fallegum litasamselningum sem hæfa
heimilunum.
í ver/.luninni Virku fást yfir 600
tegundir af efni sem er flutt inn frá
Bandaríkjunum. Ákveðinn þéttleiki
verður að vera á hvern fersentimetra,
svo vattstungan haldi sér betur. Það
er þægilegt að kaupa kassa með til-
Þessir hlutir eru tilsniðnir i pökkum og kostar hver pakki um 120 krónur.
búnu efni sem þarf i eitt teppi. Kostar
efni í eitt tepi frá 500 krónum allt upp
i 900 krónur ef um tvlbreitt rúmteppi
er að ræða. Efnisstrangarnir eru 115
cm breiðir og kostar metrinn 44—50
krónur en vatterað efni 119 kr.
metrinn. Það er því hagstæðara að
kaupa efnið og klippa það niður
Á byrjendanámskeiðunum sem Virka heldur er kemt að búa til púða, en marga
slika búta mætti nota i eitt teppL Allt efni sem þarf i púða fæst tilbúið i pakka og
kostar frá 80—160 krónur.
5 mýs i kassa kosta 375 krónur og þrir ungar i pakka kosta um 90 krónur. Lítil
stykki sem á eftir að saurna saman kosta frá 38 krónum.
DV-myndir Ragnhildur Ragnars.
sjálfur ef hægt er að nýta afklippurn-
ar í aðra hluti. Ótal blöð og bækur,
sem sýna bútasaumsgerð, eru fáan-
legar. Þær eru á ensku og kosta frá
30—129 krónur. Það er vel reynandi
að vinna eftir þeim, einkum ef fólk
þekkir eitthvað til slíkrar handa-
vinnu.
Guðfinna Helgadóttir hefur lert bútasaum í Bandarfkjunum og kennt hér á nám-
skeiðum. Teppið á myndinni er eftir einn nemanda hennar.
DV-mynd Eirikur Jónsson.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
11 tonn á víku af íslenzkum „frönskum”
BORGAR SIG AÐ FLYTJAINN
KARTÖFLUR TIL VINNSLU
„Þetta gengur alveg Ijómandi vel og seljum það nærri því allt saman,”
Við liamleiðum núna um 11 tonn á viku sagði Karl Gunnlaugsson kaupfélags-
É: *•..
m. ' i|fÉ
stjóri í Kaupfélagi Svalbarðseyrar.
Núna um mánaðamótin hafði kaup-
félagið búið til og selt „franskar
kartöflur” í eitt ár.
Ástæðan fyrir þvi að við höfðum
samband við Karl var að fyrir nokkru
kom fram í síðunni að fluttar væru inn
kartöflur til Svalbarðseyrar sern færu í
þessa framleiðslu. Lék okkur hugur á
því að vita hvort þetta borgaði sig
fremur en að flytja inn tilbúnar
„franskar”.
,,Já, ég held að þetta borgi sig. Við
vinnum úr okkar kartöflum en urðum
að flytja inn til viðbótar vegna þess að
svo mikið fór undir snjó í görðunum í
haust,” sagði Karl.
Þeir Svalbarðseyringar hafa fyrst og
fremst verið að selja heimilunum
„franskar kartöflur”. Núna eru þeir
Við fáum ekki betur séð eftir mikla og
flókna útreikninga bæði á tölvu og blaði
en hvert mannsbarn borði 48 grömm af
fslenzkum „frönskum kartöflum” á
hverri viku. DV-mynd Einar Ólason.
hins vegar að byrja að selja þær á veit-
ingahúsin. Þar er náttúrlega hinn stóri
markaður og önnur eins ókjör og við
kaupum af „frönskum” á veiting-
húsum.
Svalbarðseyringar annast sjálfir
dreifingu kartaflnanna um allt land ut-
an Stór-Reykjavíkursvæðisins. Þar er
það Grænmetisverzlun landbúnaðarins
sem dreifir.
Við spurðum Karl að lokum hvort
von væri á fjölbreyttari frámleiðslu að
norðan, svo sem alveg tilbúnum
kartöfluflögum og öðru slíku
„snakki”.
„Nei, það er allt önnur framleiðsla
sem krefst allt annars vélakosts. Við
erutn eingöngu með vélar fyrir
„franskar” og förum ekki út í frekari
framleiðslu,” sagði hann.
Þykkbæingar hyggjast hins vegar
fara að framleiða soðnar kartöflur i
bitum. Þá eru kartöflurnar hálfsoðnar,
pakkaðar í lofttæmdar umbúðir og
settar á markað. Þegar þær eru
keyptar síðan aðeins að bregða
þeim í pott. Erlendis njóta slíkar
kartöflur sívaxandi vinsælda eftir því
sem tími til heimilisstarfa minnkar.
-AS
Ánægð
meðbók-
halds-
bókina
S.H. skrifar:
Beztu þakkir fyrir allt gamalt og
gott. Um leið og ég þakka ykkur fyrir
heimilisdagbókina langar mig að
segja ykkur að ég er mjög ánægð með
uppsetningu hennar núna. Munar þar
öllu niðurröðun vikunnar á hverri
blaðsiðu.
Vinsamlegast reynið framvegis að
gefa út nýja bók á réttum tíma. Það
munaði minnstu að allt bókhaldið
færi til fj... hjá mér vegna þess hve
útkoma hennar dróst. Ég skrifa alla
eyðslu i bókina en nota siðan vegg-
spjaldið „spari” og færi inn á það
allan mánuðinn í heild.
Svar:
Beztu þakkir fyrir bréfið og hlý orð
í okkar garð. Útgáfustjórnin tekur
núna næstu daga ákvörðun um
næstu heimilisdagbók þannig að ef
allt fer að óskurn ætti hún að geta
komið á réttum tima.
DS