Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 19.APRÍL 1982.
23
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Jóhannes
stendur'
sig vel
Stuttgart vill kaupa
Asgeir Sigurvinsson
Baií^aÆsa — til að taka stöðu landslidsmannsins Hansa Miiller
Jóhannes Eðvaldsson hefur staðið
sig vel með Hannover 96 að undan-
förnu og 6 félagið möguleika á að
tryggja sér sæti i 1. deildarkeppninni i
V-Þýzkalandi.
Staðan er nú þessi hjá efstu félögun-
um i 2. deild:
Offenbach 32 19 5 8 63:52 43
Schalke 04 32 15 11 6 55:31 41
Hertha 30 16 6 8 66:39 38
1960MUnchen 32 16 6 10 69:45 38
Hannover 32 16 6 10 63:45 38
Fortuna Köln er í níunda sæti með 35
stig. Tvö efstu liðin fara beint upp í 1.
deild en þriðja liðið þarf að leika við
þriðja neðsta liðið í 1. deild um sæti í
deildinni.
Viggó/-SOS
• Asgeir Sigurvlnsson — fer hann til
Stnttgart?
Frá Viggó Sigurössyni — frétta-
manni DV í V-Þýzkalandi. — Blöð hér
í V-Þýzkalandi segja frá þvi i morgun
að Stuttgart, eitt af beztu félagsliðum
V-Þjóðverja, vilji kaupa Ásgeir Sigur-
vinsson frá Bayern Munchen. Ekki eru
nefndar neinar peningaupphæðir í þvi
sambandi þar sem viðræður félaganna
eru greinilega á byrjunarstigi.
Blöðin hér segja að ef Ásgeir fari til
Stuttgart muni hann taka stöðu lands-
liðsmannsins Hansa Múller á miöjunni.
MÍiller, sem hefur verið meiddur að
undanfömu, hefur mikinn hug á að
gerast leikmaður á Ítalíu og hefur hann
fengið tilboð frá félögum þar. Þá
bendir allt til að Frakkinn Didier Six
fari einnig frá Stuttgart.
Það er vitað að Ásgeir hefur mikinn
hug á að fara frá Bayern að öllu
óbreyttu þar sem Pal Csernai, þjálfari
Bayern, hefur haldið honum úti í kuld-
anum af óskiljanlegum ástæðum og að
hann hefur verið á móti Ásgeiri.
Það þarf ekki að efa að Ásgeir mun
sóma sér vel hjá Stuttgart, sem hefur
verið eitt af toppliðum V-Þýzkalands
undanfarin ár. Með liðinu leika lands-
liðstvíburarnir sterku, þeir Karl-Heinz
Förster og Bernd Förster, sem hafa
nýlega skrifað undir nýjan samning við
félagið, og i sókninni leikur landsliðs-
maðurinn Dieter Míiller, sem er einn
marksæknasti leikmaður V-Þýzka-
lands.
Það er ljóst að miklar breytingar eru
i vændum hjá Stuttgart, því að þjálfar-
inn Jurgen Sundermann verður látinn
hætta.
Bræðumirskoruðu
fyrirFram
Framarar tryggðu sér aukastig i
Reykjavikurmótinu f knattspyrnu
þegar þeir unnu öruggan sigur (3:0)
yfir Fylki. Það voru bræðurnir
Bryngeir og Guðmundur Torfasyn-
ir sem skoruðu mörk Fram. Bryn-
geir skoraði eitt og Guðmundur
tvö. Guðmundur Baldursson,
landsliðsmarkvörður lék ekki með
Fram, en stöðu hans tók 17 ára ný-
liöi, Friðrik Friðriksson. -SOS
STAÐAN
Staðan er þessi i Reykjavikur-
mótinu í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar:
Fram—Fylkir 3:0
Víkingur—Þróttur 3:0
Víkingur 2 2 0 0 4:0 5
Fram 2 1 1 0 4:1 4
KR 2 1 0 1 4:1 3
Fylkir 3 1 1 1 2:4 3
Valur 2 0 1 1 1:2 1
Ármann 2 0 1 1 1:4 1
Þróttur 1 0 0 1 0:3 0
Markhæstu menn:
Óskar Ingimundarson, KR
BryngeirTorfason, Fram
Guðmundur Torfason, Fram
Heimir Karlsson, Víkingi
FH-ingar unnu
Haukalétt...
FH-ingar unnu öruggan sígur
(3—0) yfir Haukum í Litlu-bikar-
keppninni i knattspyrnu, þegar þeir
mættust á Kaplakrikavellinum.
FH-ingar höfðu mikla yfirburði og
skoruðu þeir Pálmi Jónsson,
Guðmundur Hilmarsson og Viðar
Halldórsson mörk FH.
Breiðablik og Akranes gerðu
jafntefli 1 — 1 i Kópavogi. Svein-
björn Hákonarson skoraði mark
Skagamanna, en Trausti Ómarsson
jafnaði fyrir Blikana. -SOS.
Víðismenn í
banastuði...
Leikmenn Viðis frá Garði —
undir stjóm Hauks Hafsteinssonar,
eru i banastuði i Suðurnesjamótinu.
Þeir unnu Reyni frá Sandgerði 3—1
í Garði um helgina. Ari Haukur
Arason byrjaðl á þvi að skora fyrir
Reyni, en þeir Björgvin Björgvins-
son, Guðmundur Knútsson og
Ólafur Róbertsson skoruöu fyrir
Víði.
Njarðvík vann Grindavík 1—0 og
skoraði Ómar Hafsteinsson mark-
ið. Njarðvíkingar hafa fengið tvo
nýja miðvallarspilara — þá Hilm-
ar Hjálmarsson frá Keflavík og
Benedikt Hreinsson frá Breiðablik.
Staðan er nú þessi í Suöurnesja-
mótinu:
VíðirG. 4 3 1 0 6—2 7
Njarðvík 4 2 0 2 4—5 4
ReynirS. 4 112 7—6 3
Grindavík 4 0 2 2 1—5 2
Markhæstu menn:
Ari H. Arason, Reyni S 4
Guömundur Knútsson, Víði 3
-sos
Atlantik býður upp á úrval gististaða, þar á meðal er íbúðahótelið vinsæla, Royal Playa de Palma.
Á Mallorka er nær allt sem hugurinn girnist, og ýmislegt um að vera. Pantið tímanlega, svo þér
missið ekki af óskaferðinni.
Brottfarardaqar:
11. maí 15. júní 6. júlí 17. ágúst I 7. september
29. maí 27. júlí 28. september
FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐA RHÚSINU HALLVEIG ARSITG 1, SÍMAR 28388 - 28580