Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR 26. JUNI1982. Magnús vinnur ,,skapandi stærðfræöi Hins vegar er ekki eins auðvelt að skipa Magnúsi sjálfum í flokk, finna myndlist hans stað í nútímaheföum. Þegar allir angar hennar hafa veriö gaumgæfðir, kemur í ljós að Magnús hefur f undið sér leiö sem vörðuö er af öUu í senn, gömlu og kjarnmiklu dada, súrrealisma og konseptmynd- list og stundum er erfitt, jafnvel óæskilegt, að greina á milli þessara þátta. Þó held ég að ómaksins vert sé að rýna í þessi verk út frá þeim sjón- vinklum, þó svo að aörar áherslur verði útundan í leiöinni. Nú er dada fremur spurning um hugarfar en formlega endumýjun eöa nýsköpun. Óstýri/átar hugmyndir Og þaö er einmitt í „skapi” margra mynda Magnúsar sem finna má hvatann frá dada, í biksvörtum húmor nokkurra þeirra, í ádrepun- um og fjarstæðukenndri samsuðu ólíkra fyrirbæra. Hvað konseptlist- ina áhrærir, held ég aö hennar gæti fyrst og fremst í framsetningu Magnúsar á þeim efnivið sem hann hefur undir höndum hverju sinni, ekki í inntaki verkanna. Konseptlist- in hefur hugsanlega opnaö augu hans fyrir ákveðinni tegund af lógík og hreinlegri úrvinnslu myndefnis. Hins vegar eru hugmyndir Magnúsar tíðum svo margræðar og óstýrilátar að engin leiö er aö halda þeim njörvuðum í kerfi, eins og gerist í konseptlistinni þegar hún er hvað hörðust. Til skýringar vil ég nefna nr. 9- ’1 „Ný grísk goöafræöi”. Verkið er í þrem hlutum sem mynda kerfi eða myndröð sem „fjallar um þau tengsl séu óbein og í mörgum til- fellum eflaust ómeövituð. Hér á ég ekki viö það pennakrot og þann út- vatnaða Freudisma er gengiö hefur undir nafninu súrrealismi nú í seinni tíð, mest fyrir áhrif Dalis, heldur þá hefð sem hófst með Breton upp úr 1920 og reis hæst í myndum þeirra Emst, De Chirico, Magritte, Gia- cometti, Dominguez, Cornell, kannski Man Ray. I verkum þess- ara höfðingja, er áhugi á orðinu, tungunni, sem rauöur þráöur, þar með einnig menningararfleifð Vesturlanda sem m.a. birtist í viöteknumgoðsögnum (mýtum). Að útlista hugarfóstur En þótt þeir séu svona „menningarlega” sinnaðir er langt því frá að þeir séu uppfullir af lotn- ingu gagnvart myndefni sínu. Tilgangur þeirra er sá að finna bakhliðina á menningunni, hina „sönnu” þýðingu hennar, og afhjúpa um leið þá hræsni sem henni fylgir. Veruleikinn er efniviður þeirra, vopnin eru útúrsnúningar, háö, eró- tík, ágengni, ofskynjanir. Fyrir mörgum þeirra, t.d. Magritte og Corneil, vakir aö gera veruleika myndverka sinna svo áþreifanleg- an, aö áhorfandinn sannfærist um réttmæti hans og mátt. Það geta þeir með því aö útlista hann svo nákvæm- lega, af svo mikilli vandvirkni, aö engan veginn sé hægt að misskilja markmiðið. I þessu er auðvitað þver- sögn : er nokkum tímann hægt að gera draumsýnir eöa hugarfóstur svo raunverulegar að áhorfandinn fallist á þann veruleika sem þau halda fram? Spyr sá sem ekki veit. una almennt. Án þeirrar vitneskju hlýtur áhorfandinn að standa á gati andspænis helftinni af því sem Magnús er aðgera. Myndlist af þessu tagi er kannski ekki í tísku hér, þar sem flestir þekkja Venus sem efnalaug, Apolló sem líkamsrækt og Artemis sem nærbuxnagerð. Sérstaklega fjölbreytileg og skap- andi er notkun Magnúsar á orðum, hugtökum og í framhaldi af því, á dæmisögum. Einstök hugtök tekur hann að sér að endurvinna í mynd- formi. Stærðfræði Bibiíunnar I mynd eins og, ,Heiöin há og Fjall- iö eina” er viss útþvældur frasi tek- inn fyrir og myndræn samsvörun hans útlistuð. I ööru tilfelli, eins og í „Fjarskinn, buskinn” myndunum og vegamyndunum, reynir Magnús að sýna fram á hvernig ýmis stefnu- eöa hreyfingarhugtök gætu litið út í mynd. I þriöja tilfellinu gefur hann sér tilbrigði við vel þekkt fyrirbæri, fugl, fjall, regnbogi: „Soldiö lúinn fugl, þreytt fjall, lasinn regnbogi” og túlkar þau í því ástandi. Tilgangur hans gæti verið sá sami og heim- spekingsins Wittgensteins, „að gera opinbera þá fjarstæðu sem felst í málinu”. Ekki er síöur skemmtileg meðferð Magnúsar á sögunni af fjöörinni sem varð aö ótal hænum og brauðinu og fiskunum sem margfölduðust í Nýja testamentinu, en þeim hefur hann einfaldlega breytt í myndræna stærðfræði. Manni dettur í hug „patafýsík” Alfreds Jarry eöa skapandi vísindi Duchamps, þar sem MAGMJS VAMt HER Hugleiðingar um myndlist Magniisar Tótiiassoiiar á Kjarvalsstöðum Sýning Magnúsar Tómassonar að Kjarvalsstöðum sætir tíðindum fyrir margra hluta sakir. I fyrsta lagi er hún fyrsta yfirlitssýning sem opin- ber liststofnun á Islandi heldur lista- manni úr SUM hópnum sáluga. Guð láti gott á vita. Margir úr þeim hópi og í tengslum við hann eiga nú að baki mikið starf og tveir þeirra listamanna, þeir Jón Gunnar Áma- son og Magnús Pálsson, eru komnir á sextugsaldui inn og tími til kominn að gera úttekt á ferli þeirra. 1 öðru lagi er sýningin sú eina á Listahátíð sem nokkurn veginn uppfyllir þær kröfur sem gera á til myndlistarsýninga á þessum tvíær- ingi. Hún gerir allt í senn, veitir innsýn í myndheim íslensks lista- manns, er yfirgripsmikil og nýstár- Myndlisl á Listahátíð Aðalstelnn Ingólfsson leg. Flest myndlistaráhugafólk hlýtur að hverfa af henni með nýja upplifun í sálarkirnunni. Sjaidséð fyrirbæri Ekki sakar að Magnúsi hefur með aðstoö Þóru Kristjánsdóttur tekist það sem fáum öðrum hefur lukkast, að búa til nothæfa sýningaraðstöðu úr göngum og fundarsal Kjarvals- staöa. I þriðja lagi er myndlist Magnúsar svo sérstök í íslenskri myndlistar- hefð og sjaldséð þar aö auki, að kost- bær áhorfandi hlýtur að fagna því að fá af henni sæmilega heillega mynd. Varla kemur annað slíkt tækifæri í bráð, svo mikið nostur og tilstand sem fylgir sýningu af þessu tagi. Þó væri rangt að tala hér um yfir- litssýningu í hefðbundnum skilningi Myndlistarlegar rætur Magnúsar liggja lengra aftur í tímann en þessi sýning gefur vísbendingu um — í húsa- og bátamyndahefð listamanna á borð viö Einar Baldvinsson, Vetur- liöa og Jóhannes Geir. Þaöan fer hann yfir í málverk meö augljósu poppívafi og ég held að óhætt sé aö segja að Magnús byrji feril sinn í StJM undir merki Oldenburgs, a.m.k. í námunda viö hann, sjá risa- niðursuðurdósimar og risavöxnu flugumar. Umsagnir um samtímann Þó rær hann ekki á alveg sömu mið og Claes hinn sænski því í ýkjum þessara verka Magnúsar er e.t.v. meir um galgopalegan húmor og aggressjón en beinar skírskotanir til neysluþ jóöf élagsins. Þau einkenni er aö finna í mörgum verka hans til þessa dags, aö vísu í dempaöri og ísmeygilegri mynd. I langflestum verkum Magnúsar, jafnvel þeim sem hanga saman á flóknum ljóðrænum líkingum eða eru bara „lousy-sneddy”, svo notuð séu orð listamannsins sjálfs, er að finna einhverja umsögn, sem svo aftur grundvallast á sterkri siðferðisvit- und hans, nálægt því að vera það sem Jónatan Swift nefndi „indignatio”. I sýningarskrá ber Magnús hins vegar af sér allar siða- predikanir, sem em allt annað fyrir- bæri. Hvörf verða síðan í myndlist Magnúsar í kringum 1968—69 með fyrstu bókunum sem fæða af sér frumhugmyndir þeirra sýniljóða sem hann hefur verið að fást við síöan. Þau hvörf em útgangspunktur sýningarinnar að Kjarvalsstöðum, að mínu mati réttilega, því í þessum sýniljóðum og öðrum náskyldum verkum haslar Magnús sér völl í ís- lenskri myndlist fyriralvöru. Óvenjuieg þrautseigja Einbeiting hans að þessari af- mörkuðu tegund myndlistar, þessu þrönga sjónhorni (sem hann sjálfur minnist á í formála), hefur að sönnu verið orðuð viö einhæfni, jafnvel einæði, en má þá allt að einu flokka undir óvenjulega þrautseigju. eldinn, eða réttara sagt eyðilegg- ingamátt eldsins og þar með mann- eskjunnar. Taugar til súrrealisma En þau nöfn sem Magnús gefur myndunum þremur, Prómeþeus, - ur Ur MÖgu ffugmina Herostratos, Tmman : sá sem gaf mannkyni eldinn, sá sem brenndi Artemishofið til að veröa frægur og sá sem lét eyða Hiroshima og Naga- saki í báli vítis — þessi nöfn opna svo margar gáttir inn í menningarsög- una fyrir sæmilega upplýstan áhorf- anda að ekkert myndrænt kerfi getur hamið þau til lengdar. Þó sýnist mér sem Magnús hafi e.t.v. sterkastar taugar til hinnar súrrealísku hefðar í myndlist, þótt Og Artemis er nærbuxnagerð En þetta er útúrdúr sem ætlaö var það hlutverk að benda á ákveðnar hliðstæður, sameiginlegt hugarfar, fremur en að fella myndlist Magnúsar inn í tiltekiö hólf. r r: í r'*. Allt um það verður því ekki neitaö að list hans er ákaflega hugræn, intellektúel, og gerir talsverðar kröfurtil áhorfandans. Honum nægir ekki að bera skynbragð á form og al- menna listræna uppbyggingu mynd- verks, hið skynræna , heldur ætlast listamaðurinn til þess aö hann sé sæmilega upplýstur txm goðsagnir, menningarleg stórvirki eins og pýra- míöann, um Biblíusögur, um flug- spekúlasjónir Leonardos og listasög- ýmsum viöteknum hefðum í raunvís- indum er umsnúið, með fjarstæðu- kenndum f orsendum. Goðsögnin um fíugið Mesta stórvirki Magnúsar hin síðari ár er samt útsetning hans á (Ljósmyndir: Jóhanna Ólasdóttir). sögu flugsins, þar sem hann tekur fyrir tilraunir mannsins til að fljúga og býr til sína eigin goðsögn úr þeim efnivið. Og því ekki þaö? Tilburðir ungs manns aftur í fomeskju til að fljúga hafa eflaust ekki verið burðug- ir, en þær náðu sennilega að geta af sér hina undursamlegu goðsögn af Ikarosi. Þannig verða goðsagnir ein- faldlega til og sköpun þeirra hefur ætíð verið talin með æðstu listum. AI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.