Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1982, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1982, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ —VÍSIR____225.TBL. —72. og 8. ÁRG. — MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 1982. Húsfélagsformaður kærður fyrir að hafa sölsað und- ir sig íbúð húsfélagsins — sjabls.2 Flugleiðaauglýsing vekur umtal í Svíþ jóð: Eru íslenskar stúlkur „fúsar og fallegar?” —rangfærslur, segir fuHtrúi flugfélagsins — sjánánarábls.5 ,,Sjálfri finnst mér ósköp ósmekk- l§gt að „selja” grunlausar íslenskar stúlkur sænskum körlum eins og Reykjavík sé ný Bankok.” Svo segir sænskur blaðamaður í grein í útbreiddasta blaði Svíþjóðar á laugardag. Blaöamaðurinn, kona að nafni Gisela Fridén, fór í helgarreisu meö Flugleiðum til Reykjavíkur og skrifaði grein í framhaldi af þeirri reynslu sinni. Greinin er mjög neikvæð fyrir Flugleiðir og ísland. „Það kemur mér á óvart að konan skuli rangfæra svona mikið,” sagði Hans Indriöason, forstöðumaöur norðursvæöis Flugleiða, umgreinina. „Bæklingurinn sem við gefum út er mjög smekklegur og vel úr garði gerður. I honum er veriö að reyna að benda á hið fjölbreytta skemmtanalíf sem hér er og er á heimsmælikvarða, að minu áliti. Rangfærslur um Lækjarbrekku eru að sjálfsögðu mjög óréttlátar því við vitum hvernig veitingastaður það er, mjög smekklegur og frambærilegur. Og að sjálfsögðu sjá allir rangfærslur um bensínverðið. Þannig að frúin hefur haft allt á hornum sér frá því hún kom og þar til hún fór. Siglfirðingar reikna með áframhaldandi uppsögnum „Menn reikna með áframhaldandi uppsögnum af hálfu Síldarverk- smiðjanna,” sagði heimildarmaður DV á Siglufirði í morgun. „Það er sí- fellt að færast á ógæfuhliðina hjá þessu fyrirtæki, sem flestum finnst þó að hafi skyldum að gegna við þennan bæ. önnur fyrirtæki gera lít- ið að því að segja upp fólki og fara yfirleitt þá leiðina aö færa fólk í létt- ari störf. Menn skilja heldur ekki í því að mikill fjárskortur sé, þaö sést aö minnsta kosti ekki á öðrum fram- kvæmdum á vegum félagsins.” Ekki hefur heyrst um neinar nýjar aðgerðir af hálfu Verkalýðsfélagsins Vöku og bæjarstjórn Siglufjaröar hefur ekki látið málið til sín taka. -JBH Forsíða Flugleiöabœklingsins umdeilda. Viö höfum látið kanna hvers konar fólk hefur látið bóka sig í þessar ferðir. Það er mest hjónafólk á aldrinum 35 til 45. Það sýnir að hinn venjulegi Svíi skilur auglýsingaherferð okkar á þann hátt sem meint er og sett fram,” sagði Hans Indriöason. -KMU. Spassky kominn aftur Boris Spassky, fyrrum heims- meistari í skák, tefldi í gær fjöltefli við 26 manna sveit sem að mestu var skipuö starfsmönnum ríkisbank- anna. Spassky vann 14 skákir, gerði 8 jafntefli en tapaði 4 skákum fyrir þeim Birni Þorsteinssyni, Gunnari Gunnarssyni, Jóhanni Erni Sigur- jónssyni og Hilmari Karlssyni. Til- efni komu Spasskys til landsins er einvígi hans og Friðriks Olafssonar sem hefjast mun siðdegis í dag. Tefldar verða f jórar skákir en úrslit- in verða ekki kunngerð fyrr en í fyrsta tölublaöi tímaritsins Storöar, sem koma mun út í byrjun næsta árs. ÖEF DV-mynd GVA Slóttanos, nýr togari Dýrfirðinga, varsjó- settur á Akureyri á laugardag. Eigandi er Fáfnir hf. á Þingeyri. Skipið er smiðað hjá Slippstöðinni. Á myndinni gefur Áslaug Jonsdóttir skipinu nafn. DVmiynd GS/Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.