Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 1
RITSTJÓRNSÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIDSLA SÍMI 27022
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
246. TBL. — 72. og 8. ARG. — FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1982.
Þverfjallssendir óvirkur
meðan TF MAO var á lofti
Takmarkaðir möguleikar f lugmannsins á að ná sambandi
Flugfjarskiptasendirinn á Þver-
fjalli fyrir ofan Súgandafjörö féll út
einhvem tímann milli klukkan 6:24
og 7:00 á þriöjudagsmorgun. Kom
stöðin ekki inn aftur fyrr en klukkan
9:12.
Piper Apache-flugvélin TF-MAD
f ór í loftið frá Suöureyri klukkan 6:08
þennan sama morgun. Sást síöast til
vélarinnar á lofti um klukkan.7:30.
Þaö virðist því vera ljóst að flug-
vélin, sem nú er týnd, hefur aö öllum
líkindum ekki geta náö sambandi viö
neina stöð á jöröu niöri hluta þess
tíma sem hún var á lofti þennan
morgun. Flugvélin heföi hugsanlega
geta beöiö aðrar flugvélar, hafi ein-
hverjar veriö á flugi, um aö bera
upplýsingar á milli.
Fjarskiptasendinum á Þverfjalli
er ætlaö aö þjóna Vestfjörðum.
Umræddan morgun var varaafl-
stöðin á Þverfjalli í gangi þar sem
rafmagn frá almenna kerfinu hafði
brugöist. Er taliö aö skýringuna
megi finna í öryggjum.
Vararafstööin datt hins vegar út af
einhverjum ástæöum um
morguninn. Þar með varö fjar-
skiptasendirinn rafmagnslaus.-KMU
Otrúlegustu
hlutirá
ódýranhátt
— sjá Neytendur
bls. 6 og 7
Vonandiáttþú
ekkiheimaá
bíiastæöinu
— sjá Lesendur
bls. 16 og 17
Ljósmynduní
Dægradvöl
— sjá bls. 36 og37
---------------á berum klettunum er standa i sjó fram og Austfjarðaþokan rís við sjóndeiidarhring. Mannvera stend-
ur einsömul og má sín lítils i samanburðinum. D V mynd Einar Ólason.
Sjómenn æfir vegna
framgöngu tollgæslunnar
—framf ylgjum reglum af f estu, segir tollgæslan
Farmenn sem komið hafa á hafnir
hér á suðvesturlandi undanfarið eru
nú æfir af reiði út í tollgæsluna.
Tollgæslumenn ganga svo hart fram
í leit aö menn muna vart annað eins.
Að sögn sjómanna hefur verið lagt
hald á ótrúlegustu hluti, svo sém
uppteknar vínflöskur og vindlinga-
pakka og útvörp hafa verið
innsigluð. Telja sjómenn að veriö sé
að ofsækja þá og halda því fram að
þessar aðgerðir séu skipanir frá toll-
yfirvöldum.
Hermann Guömundsson, fulltrúi
tollstjóra, sagöi í samtali við blaðið
aö hér væri um hreinustu ýkjur aö
ræöa. Skýringin á þessu væri sú aö
sjómenn heföu undanfarið verið aö
smáauka leyfilegan skammt sinn af
áfengi og tóbaki. Ákveðnar reglur
eru í giidi um hversu mikið menn
mega hafa af slíkum vamingi í
fórum sínum. Hermann sagði að hér
væri aöeins veriö að framfylgja
starfsreglum tollvaröa af festu.
Þetta mál væri því á hreinu af hálfu
tollgæslunnar. „Þessar sögur
sjómanna, að um skipulagöar of-
sóknir sé að ræöa á hendur þeim,
eiga ekki við nein rök aö styðjast,”
sagði Hermann Guömundsson, full-
trúitollgæslustjóra. ' -PÁ.