Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1982, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1982, Blaðsíða 36
DV. ÞRIDJUDAGUR 23. NOVEMBER1982. 36 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL „ Guðsorðabækurnar eru yfirleitt ódýrar, "segir Bragi Kristfónsson, en bókin sem hann gluggar í þarna kostar einar litlar 30.000 krónur. Þetta er útgáfa Peringskiölds af Heimskringlu frá 17. öld. Mynd BH. „Feikileg virðingarstaða að selja gamlar bækur'’ „Menn eru aö furða sig á því hvað það eru margar fornbókaverslanir í Reykjavík en það er ekkert skrítið. Það eru s vona 3—5.000 titlar til sölu hjá forlögum landsins til samans. En á þessari öld einni hafa verið gefnar út á Islandi milli 50.000 og 100.000 bækur og mikið af því efni er enn í gildi þótt það sé uppselt,” segir Bragi Kristjónsson í Bókavörðunni. —Hvers konar fólk er þaö sem sæk iir þessar verslanir helst? „Þaö er nú viss kjarni sem alltaf er á ferðinni og fylgist grannt með því sem kemur inn. Safnaramir láta okkur vita af hlutum sem þá vanhagar um og eru að leita að en mest er þetta fólk sem ætlar að kaupa ódýrar bækur til lestrar ogafþreyingar.” ' — Af hverju ákvarðast verðlagið aðallega? „Aldurinn skiptir miklu en það er ekki bara hann. Guðsorðabækur frá fyrri öldum eru til dæmis yfirleitt ódýrar og þær sem eru frá síöustu öld eru oftast nær einskis virði. Það stafar af því aö í nærfellt 250 ár voru gefnar út — segir Bragi Krist jónsson bokakaupmaður Bækurnar breytast og mennirnir með. Bækur Baldur Hermannsson 5—6 bækur á ári, næstum einvörðungu guösoröabækur nema örfáar um nátt- úrufræði. Sjaldgæfar bækur eru alltaf dýrari, svo og þær sem eru vel með farnar.” — Vildirðu selja nýjar bækur? ,,Æ nei, það held ég ekki. Ef ég kemst yfb- bók í sellófan þá er ég snöggur að rífa það utan af henni, ég vil ekki sjá þetta bölvað drasl. Það eru svo mikil samskipti kringum gamlar bækur, menn eru látiaust að hringja og spyrjast fyrir, stundum utan úr heimi. Erlendis er þetta feikileg virðingar- staða að selja gamlar bækur, í Sviss og Þýskalandi eru þeir með doktor á doktor ofan. Þetta er líka afar virðu- legur bransi i Ameríku og Englandi og ríkar tradis jónir í honum.’ ’ — Finnst þér Islendingar ekki sýna starfinu tilhlýðilega virðingu? „Það er nú kannski út af þessari and- styggilegu nafngift. Fombókasali — þetta minnir strax á skransala eða brotajámsala. Fólk fær einhverja dul- vitaða óbeit á stéttinni út af þessu klaufalega nafni. Ég vil kalla okkur bókakaupmenn.” Og í þeim svifum kom ung kona stormandi inn og bað hann blessaðan að hafa uppi áBólu-Hjálmari fyrir sig. Þá ætti hún allan flokkinn.... Miðdrymbis á Hverfisgötu Miðdrymbis á Hverfisgötunni stendur Bókavaröan, víöfeðmur sal- ur og bjartur með tugþúsundir gam- alla bóka og nýrra á hillum og gólfi. Henni á aðra hönd er nýtisku kvik- myndahús meö ótal sali og æsispenn- andi sýningar fram á nætur. Þar næst kemur vegleg myndbandaleiga, fjörmikið dekurbarn nútímans, og skammt undan er önnur mynd- bandaleiga. Bókavarðan stendur þama álengdar eins og varöturn virðu- legrar menningar sem þverskallast við að hörfa, umkringd víghreiðrum tískufjölmiðlanna og berst við þá vægðarlausri baráttu um sálirnar í brjóstum vegfarenda og krónumar í vösum þeirra. ,JEn hörðust er þó samkeppnin frá vinsölunni þama hinumegin,” segir Bragi Kristjónsson bókakaupmaður. „Ofterumennaðvelkja því fyrirsér hvort þeir eigi nú að eyða krónunum hér eða þar og oft er þetta ansi mikið sálarstríð. Þeir sem koma hingað til mín fara nú sjaldnast þangað á eftir.” Hvers konar töfrar em það sem draga mennina á vit hinna fornu bóka af þvílíkum krafti að sjálfur Bakkus konungur lýtur í lægra haldi? Er það þráin eftir varan- legum verðmætum — þrá þeirra manna sem notið hafa froðunnar af sýndarmenningu nútímans og þarfn- ast nú bóka eins og ungur svallari þarfnast fjörefna eftir annasama helgi? Auglýsingaskrum bókaforlaganna nær ekki inn í þennan varðtum til þess að villa um og blekkja. Hér em allar bækur laugaðar sínu rétta ljósi, góöar bækur era góðar,vondar bækur vondar, tíminn hefur skilið hismið frá kjamanum. Héma ræður lögmál hins frjálsa markaöar: Sjald- gæfar bækur kosta mikið, algengar bækur er hægt að fá fyrir lítið, gott lesefni, góðir höfundar og gott ásig- komulag er einnig metiö að verð- leikum. Fombókasalan er varðturn bók- menntanna en hún er einnig bólvirki hins frjáisa markaðar og tollheimtu- menn hins opinbera fá hér engu ráðið um verðlag, tap og hagnað. Forn- bókasalan er afskekktur heimur þótt honum sé fyrir komið við eina höfuð- götu borgarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.