Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Blaðsíða 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR 23. MARS1983. Tílefnislaust samningsbrot — segir Ragnar Halldórsson um yf irvinnubannið í álverinu Yfirvinnubann verkamanna í ál- verinu í Straumsvík, sem gekk í gildi á sunnudaginn, hefur enn engin áhrif haft á rekstur verksmiöjunnar. En aö sögn Ragnars Halldórssonar, for- stjóra Isal, má búast við að áhrifa þess kunni aö gæta í framtíðinni í þá átt aö draga verði úr framleiöslunni. Yfirvinnubannið var sem kunnugt er sett vegna mikils vinnuálags og ó- þrifa í kerskála álversins. Ragnar Halldórsson sagöi í sam- tali við DV að ástandið væri að þessu leyti mun betra en það hefði veriö fyrir mánuði. Vinnuálagið og óþrifin hefðu stafað af tímabundnum erfið- leikum. Rafskaut hefðu blotnað og skemmst og því hefðu sum kerin þurft að standa opin. Ragnar sagði ennfremur að það hefði verið löngu ljóst aö starfsfólki myndi verða fækkað. Ráðningartími margra hefði hins vegar veriö framlengdur og hefði verkalýðsfélagið kvartað und- an því. Það væri því undariegt þegar verkalýðsfélagið kvartaði einnig undan því að ráðningartími þeirra sem búiö væri að segja upp hefði verið f ramlengdur enn lengur. Ragnar sagðist álíta að boðun yfir- vinnubannsins væri bæöi tilefnislaus og auk þess brot á samningum. OEF Atvinnuleysisdagar: Fækkm ntilli mánaóa, fjölgun milli ára Skráðum atvinnuleysisdögum hér á landi fækkaði um 15 þúsund í febrúarmánuöi síöastliönum miðað við mánuðinn á undan. Atvinnu- lausum fækkaði samtímis um 720 á landinuöllu. Rösklega 36 þúsund atvinnuleysis- dagar voru skráöir í febrúar og jafngildir það að 1676 manns hafi verið skráðir atvinnulausir allan mánuöinn, sem svarar til 1,6 af hundraöi af áætluöum mannafla á vinnumarkaðnum. I janúar í ár voru hins vegar skráðir um 51 þúsund at- vinnuleysisdagar sem jafngildir 2400 manns eða 2,2 af hundraði mann- afla. Miðað viö sama tíma í fyrra er þetta þó engan veginn glæsilegur árangur. I febrúarmánuði þá voru skráðir á landinu rösklega 20 þúsund atvinnuleysisdagar eða um 16 þús- und færri en nú. Glansinn fer svo gjörsamlega af þeim tölum sem birtar eru nú ef miðað er við meðaltal skráðra at- vinnuleysisdaga í febrúarmánuði árin 1975—1982 en það hljóðar upp á 14 þúsund daga. Gefur þetta glögga mynd af því ástandi er ríkir á at- vinnumarkaðnum hérlendis um þessar mundir. JBKS Vöruskiptajöfnuður: Hagstæður í febrúar Vöruskipta jöfnuður landsmanna stofu Islands. var hgstæöur um 260 milljónir króna Janúarmánuöur var Islendingum ífebrúar. Verömætiútflutningsnam óhagstæðari. Séu tveir fyrstu um 1.250 milljónum króna en verð- mánuðirnir lagðir saman er vöru- mæti innflutnings um 990 milljónum skiptajöfnuöurinn óhagstæður um 80 króna. Þessar upplýsingar koma milljónirkróna. fram í fréttatilkynningu frá Hag- -KMU riAMC VILTU 5 í nýjan — nýrri — eldri — ^ S dýrari — édýrari Komdu á þeim gamla og veldu sjálfur. ÚRVALAF NOTUÐUM BÍLUM Á FRÁBÆRUM KJÖRUM Fíat132'78 Ford Torino '72 Wagoneer '72 Fíat 125P '77 Chevrolet pickup '74 Scout '74 Fíat 127 '74 Wagoneer '74 Trabant station '79 Ford Cortina '75 Wagoneer '75 Fíat 126 '75 OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-18. OPIÐ SUNNUDAG KL. 13-18. FIAT EINKAUMBOD A ÍSLANDI EGILL OAVHt SIGl/ROSSOH hf. // W|| U |H| MSSON MIDJUVEGI4, KÖPAVOGI, SÍMAR 77202 - 77200 /f V ll_l lUrtLlllUUUIV SMIÐJUVEGI 4 KOP- SIMAR 77200 - 77720. t 1 # t & ■ÆeæB£aB&é | JHB huÍbB ^ ámi, ŒJ < Fi fp ‘ H/ 1 jMjHO-. «■ • 'fw'' gmm 1 1 'H í t %L’ J mjý. * 'tfZ m-t v&æ'í ' > ‘Jwl £ k '-2 • É- W* Wf Ijl Mezzoforte tekur lagið fyrir breska áhorfendur í þættinum Top Of The Pops í síðustu viku. Talið er að um 12 miiljónir manna horfi á þátt þennan í viku hverri. Eins og sjá má er myndin tekin af sjónvarpsskermi en BBC neitar ljósmyndurum alfarið um að taka myndir í upptökusölum sínum. DV-mynd Einar Ólason Mezzoforte: UTLA PLATAN MEÐAL TÍU EFSTU A BRESKA LIST- ANUMINNAN TÍÐAR — segja sérfróðir Að dómi sérfróöra manna er þaö næsta víst að litla platan meö Mezzo- forte, sem aö undanförnu hefur þeyst upp breska vinsældalistann, verði komin í hóp tíu vinsælustu platna þarlendis áður en langt um h'ður. Byggir þessi spádómur á því að þessa vikuna færðist platan upp um 12 sæti, úr 29. í 17. og það án þess að áhrifa þáttarins Top Of The Pops sé farið að gæta að ráði í sölunni, en sem kunnugt er kom Mezzoforte f ram í þessum þætti í síðustu viku. Að öllu jöfnu hefur þessi þáttur síður en svo slæm áhrif á plötu- sölu þeirra listamanna sem þarkoma fram. En það er ekki bara litla plata Mezzoforte, sem selst í Bretlandi. Stóra platan er einnig á hraöri leið upp sölulistann og situr þessa vikuna í 28. sæti hans en var í 43. sæti í fyrri viku. Til að fylgja þessum vinsældum hljómsveitarinnar eftir hafa Steinar h/f ákveðið að gefa út tveggja laga plötu í næsta mánuði og verða lögin á henni tekin af stóru plötunni Surprise Surprise eins og lögin á þeirri smá- skífu, sem nú er hvað vinsælust. I maí- mánuöi næstkomandi verða síðan tekin upp glæný lög á litla plötu. Á þannig að halda Bretum við efnið þangað til hljómleikaferö Mezzoforte hefst þar í landi í j úní. -SþS Laxárfélagið ályktar: Engar veiði- heimildir til Færeyinga — meðan þeir stunda laxveiðar í sjó laxveiði í ám á norðausturhorni Islands sem miklar líkur benda til að stafi af mjög auknum laxveiöum Færeyinga í hafinu milli Islands og Færeyja. Skorar fundurinn því á stjórnvöld að fella niöur allar veiðiheimildir Færeyinga innan fisk- veiðilögsögu Islands þar til laxveið- um þessum verður hætt,” segir í ályktuninni. Stjórn Laxárfélagsins skipa nú: Sigurður Samúelsson, Reykjavík, formaður, Gísli Konráðsson, Akur- eyri, Helgi Bjarnason, Húsavík, Jóhannes Kristjánsson, Akureyri, Ölafur Benediktsson, Akureyri og önundur Ásgeirsson, Reykjavík. -KMU „Aðalfundur Laxárfélagsins samþykkir að skora á ríkisstjómina að beita sér fyrir alþjóðasamþykkt um bann við laxveiði í sjó,” segir í ályktun sem félag um Laxá í Þing- eyjarsýslu hefur sent forsætisráð- herra. Félög stangveiðimanna á Akureyri og Húsavík em í Laxár- félaginu. „Fundurinn telur orðið augljóst að laxveiði í sjó byggist nú mest á ræktun fisksins og því sé eölilegt að þeir, sem til slíkrar ræktunar stofna, eigi að njóta ávaxta erfiðis síns og tilkostnaðar. Sérstaklega vill fundurinn vekja athygli á hinni stórfelldu minnkun á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.