Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR 7. APR1L1984. 4Bíllinní lOOár hraðskreiöra bíla. Þeirra á meðal voru Cadillac, Packard, Chrysler Imperial, Pierce-Arrow, Lincoln og Duesenberg í Bandaríkjunum; Rolls Royce í Bret- landi, Mercedes Benz í Þýskalandi, Bugatti og Isotta-Fraschini á Italiu og Hispano-Suiza á Spáni. I Bandaríkjunum áttu bílaframleið- endumir í stríði við verkalýðsfélögin. Þrír stærstu framleiðendumir, General Motors, Ford og Chrysler, neituðu að viðurkenna verkalýösfélög- in sem samningsaðila. Þetta endaði með verkföllum sem náðu hámarki 1937. En samningar tókust um síðir. Þróun síðustu ára A tímum síðari heimsstyrjaldar- innar tók bílaiðnaðurinn í Bandaríkj- unum ríkan þátt í hergagnaframleiðsl- unni og lét Bandaríkjunum og sam- herjum þeirra gífurlegt magn her- gagna í té. Framleiöendumir samein- uðust um að hanna ný tæki og koma fram með nýjar leiðir til aö spara mannafla og hráefni. Verksmiöjurnar gengu 24 tíma á sólarhring. Milljónir vopna, flugvéla, skriðdreka og bíla voru framleiddár ásamt varahlutum, auk mikils magns af skotfæmm og öðmm birgðum. Að stríðinu loknu sneru bílaframleið- endumir sér að því að framleiða stóra, þægilega og kraftmikla bílá. Meðal breytinga má nefna stærri glugga, bognar framrúður, sterkari vélar, afl- hemla, aflstýri, rafstýrð sæti og rúður bílar. 1930 hafði þetta snúist við og nú voru 90% bíla með lokuð hús sem gerði það að verkum að hægt var aö nota bíl- ana í hvaða veðri sem var. Meðal ann- arra breytinga á þessum ámm má nefna öryggisgler (1926) og samhæfða gírkassa (1928). Herhlar á öll fjögur hjól ásamt vökvabremsum vom orðnir algengir á ámnum fyrir 1930. Til að bæta öryggið komu f ram ljósa- samlokur og eins styrkt þak á bílunum. Eins var mikið gert til þess á þessum árum aö bæta aksturseiginleika bíl- anna og auka þægindi farþeganna. Þar má nefna sjálfvirkt innsog, hjólbarða sem þurftu minni þrýsting, sjálfstæða fjöðmn, yfirgír og aukiö straumlinulag bílanna. Spennustillir kom á rafkerfið 1934 og fyrsta sjálfskiptingin sá dagsinsljós 1937. Aukin velmegun á árunum eftir 1920 varð til þess að auka veg stórra og Með tilkomu færibandanna hjá Ford, sem fyrst vora notuð við smíði T-módelsins árið 1912, styttist framleiðslutíminn úr f jórtán tímum niður í 93 minútur og gerði þar með bílinn að almenningseign. Ford T árgerð 1917. T-módelið var fyrsti bíllinn sem varð svo ódýr að hann gat orðið almenningseign og lagði þar með grandvöllinn að bilaiðnaði nútímans. og loftkælingu. Oryggisatriðum var einnig sinnt í auknum mæli og má nefna bólstruð mælaborð og öryggisbelti. Aðaláhersl- an var nú lögö á samspil línu og lita og ítalskir hönnuðir fóru að láta meira á sérbera. Utan Bandarikjanna varö mesta þróunin í Evrópu. Þar voru það smá- bílamir sem áttu upp á pallboröiö. Fremstir í flokki voru Volkswagen í Þýzkalandi, Renault og Citroén i. Frakklandi ásamt Fiat á Italíu og einnig má þar nefna breska bílaiðnað- inn. Um 1960 fara Japanir að sýna sig fyrir alvöru á vestrænum bílamarkaði og upp úr því fer bílaiðnaðurinn í heim- inum að þróast í þá átt sem við þekkjum hann í dag. Hvað sem líður tali um orkukreppu og aðrar aöstæður í heiminum í dag þá mun sú þróun bílsins, sem hófst fyrir hundrað árum með tilkomu bensín- vélar Ottos, standa enn um sinn og bíll- inn verða áfram okkar helsta samgöngutæki. Það eigum við að þakka þeim frumherjum sem leiddu okkur fyrstu skrefin inn í bilaöldina fyrir hundrað árum. Upphaf bflaaldar á íslandi: Áttatíu ár frá komu fyrsta bfls- ins til landsins Fyrsti billinn sem kom til landsins — Thomsensbíllinn. Mennirnir sem standa við hann era þeir Tómas Jónsson, síðar kaupmaður, Þorkell Clementz vélfræðingur og Dethlev Thomsen kaupmaður, sá er flutti bilinn inn. Myndin er tekin úr bókinni „Bifreiðar á íslandi 1904—1930” eftir Þorleif Jónsson, sem út kom í vetur. Utg. Bílgreinasam- bandið. Fljótlega eftir að bíllinn kóm fram á sjónarsviðið bæði vestan hafs og austan fóru menn hérlendis að gefa þessu nýja samgöngutæki gaum. Islendingar, sem fóru utan, kynntust þessu nýja samgöngutæki fljótt og sáu strax í hendi sér hve miklu þessi tæki gætu breytt hér á landi. Fyrsta umfjöllun á opinberum vett- vangi um bíla hér á landi mun hafa veriö á Alþingi 1903. Urðu þar nokkrar umræður um þetta nýja samgöngutæki og varö úr að Alþingi veitti 2000 króna styrk til kaupa á mótorvagni er reyna skyldi hér á landi. Var samið við Dethlev Thomsen kaupmann og konsúl í Reykjavik um að hann fengi slíkan vagn sendan frá útlöndum til reynslu á vegum við Reykjavík. BQakaupin mættu nokkurri andspymu, enda ekki nema von þar sem svo stutt var þá síðan bílar komu til sögunnar og þeir ekki búnir að sh'ta barnsskónum. Það var síðan 20. júní 1904, eða fyrir tæpum 80 árum, að Dethlev Thomsen kom til Reykjavíkur með gufuskipinu Kong Tryggve og hafði þá meðferöis litinn fólksbíl sem hann hafði keypt í Danmörku. Ekki var bíllinn nýr og heldur var hann vélarvana, aðeins með um sjö hestafla vél. Það kom þó ekki í veg fyrir að hafnar væru tilraunir með bílinn og ekið um Reykjavík og nágrenni og síðar allt austur að Eyrarbakka og Stokkseyri. Ymis vandkvæði urðu á vegi þessarar fyrstu tilraunar til bílaútgerðar á Islandi, hjólbarðar dugöu illa og erfitt var um viðgerðir. Thomsensbíllinn mun hafa verið af Cudellgerð, smíðaður í Þýskalandi rétt eftir aldamótin. Cudell-bílaverksmiðjumar smiðuðu fyrstu árin bíla eftir teikningu og leyfi frá De Dion í Frakklandi. Tilraunin með Thomsensbílinn mun hafa staðið hér á landi í tvö ár, eða frá því hann kom og fram á sumarið 1905, en þá mun hann hafa verið sendur aftur úr landi. Næsta tilraun til bílaútgerðar á Islandi var gerð norður í Eyjafirði. Það var árið 1907 að Magnús Sigurðsson bóndi á Grund í Eyjafirði keypti vörubíl af gerðinni N.A.G. frá Þýskalandi og kom bíllinn til landsins í nóvember 1907. Grundarbíllinn var að mörgu leyti óhentugur til notkunar hér á landi. Hann var óhemju þungur, eöa tæp fjögur tonn að þyngd, en mjög vélar- vana. Var bíllinn notaöur til flutninga á fólki og vörum frá Akureyri að Grund. Var bíllinn notaöur fram á árið 1909 en þá lagt vegna þess hve óhentug- ur hann var og eins vantaði á hann hjólbaröa. Urðu örlög hans þau sömu og Thomsensbílsins, hann var sendur aftur úr landi. Þessar tvær fyrstu tilraunir til bíla- reksturs á Islandi misheppnuöust því að mestu leyti. Orsaka er helst aö leita í því að báðir þessir bilar voru gamlir og næsta úreltir þegar þeir komu til landsins. Næsti bíll, sem til landsins kom, var ekki á vegum Islendinga heldur var það Austinbíll skosku útgerðarmann- annan Bookless sem þeir komu með til Hafnarfjarðarsumarið 1913. Það sama ár sameinuðust nokkrir Islendingar í Vesturheimi um að kaupa Fordbíl og flytja til Islands. Var þetta gert að tilstuðlan séra Jakobs O. Lárussonar sem þá gegndi prestsþjón- ustu í Islendingabyggðunum fyrir vestan. Þessi fyrsti Fordbíll kom til landsins 20. júni, eða sama dag og Thomsens- bíllinn hafði komiö níu árum áður. Með bílnum komu tveir þeirra manna sem bundist höföu samtökum um kaupin, þeir Sveinn Oddsson og Jón Sigmunds- son. Var bíllinn kenndur við Svein upp frá því. Koma þessa bíla til landsins varð til þess að opna augu manna til fulls fyrir notagildi bílsins fyrir landsmenn. Urðu margir til þess aö taka sér far með bílnum og var farið víða, jafnvel langt austur um sveitir. Bílaöldin var gengin ígarðá Islandi. Fyrr í vetur kom út merkt ritverk Guðlaugs Jónssonar um upphaf bíla- aldar á Islandi, Bifreiöar á Islandi 1904—1930, í tveimur bindum, útgef- andi Bílgreinasambandið. Einnig kom út um sama leyti bókin Bílar á Islandi í myndum og máli 1904—1922 eftir Kristin Snæland, útgefandi bókaút- gáfan Om og Orlygur. Báðar þessar bækur veita góða innsýn í upphafstíma bílsins hérlendis og er sjálfsagt fyrir þá sem áhuga hafa á bílum að verða sér úti um þessar bækur því þar er hafsjófróöleiks aðfinna. Allt frá því er Fordbíll þeirra Vestur- heimsmanna kom til landsins hefur landnám bilsins staöiö yfir. Bílum fjölgaði mjög ört og áriö 1930 voru komnir liðlega fimmtán hundruð bílar til landsins. Tegundum fjölgaöi mikið og voru fluttir inn bílar bæði frá Vest- urheimiogEvrópu. Þessi öra f jölgun bíla strax í upphafi bílaaldar hefur gert sitt til að festa bílinn í sessi sem samgöngutæki og jafnvel gert sitt til þess að samgöngu- tæki eins og járnbrautir áttu ekki upp á pallborðið h já Islendingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.