Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Blaðsíða 18
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. APRIL1984.
! teabriejáf
rrrrnnr*
HÖGG
DEYFAR
HABERG HF.
• Skelfunni Sa — Síml 8*47*88
Útgerðarmenn
Get tekið að mér bát á komandi humarvertíð. Er
vanur humarveiðum. Upplýsingar í síma 28961
eftir kl. 19.
LJÓSRITUNARVÉL
TIL SÖLU
Ljósritunarvél, UBl XAS 300, til sölu.
Vélin verður til sýnis á skrifstofu Rafmagnsveitnanna, Lauga-
vegi 118, frá kl. 10—12 næstu daga.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS,
innkaupadeild,
Laugavegi 118.
CITROEN EIGENDUR
AKIÐ ÁHYGGJULAUSIR UM í SKAF-
RENNINGI JAFNT SEM STÓRGRÝTI
Eigum fyrirliggjandi hlífðarpönnur
undir vél og gírkassa fyrir Citroen
GS og GSA. Ásetning á staðnum.
SÉRHÆFÐIR í FIATOG
CITROEN VIÐGERÐUM
BIFREIÐA
SKEMMUVEGI 4
KOPflVOGI
SIMI 7 7840
Hjúknmarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga við heilsu-
gæslustöðvar eru lausar til umsóknar:
1. Suðureyri, staðan er laus til umsóknar nú
þegar.
2. ísafjörður, staðan veitt frá 1. júní 1984.
3. Selfoss, staðan er veitt frá 1. júní 1984.
4. Kópavogur, 70% staða hjúkrunarfræðings veitt
frá 1. júní 1984.
5. Egilsstaðir, 50% staða hjúkrunarfræðings veitt
frá 1. júní 1984.
6. Þingeyri, staða hjúkrunarfræðings eða ljós-
móður veitt frá 1. september 1984.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu sendast ráðuneytinu fyrir 10. maí
1984.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
28. mars 1984.
BILASYNING KVARTMILUKLÚBBSINS:
EVA TÖFRAÐISÝNINGARGESTI
MVERKSTÆÐIÐ
knastás
„Hvað er þetta rauða skrípi með
krabbamein á bakinu að gera hér,”
sagði ein fín frú, sem kom á bílasýn-
ingu Kvartmíluklúbbsins sem haldin
var um næst síöustu helgi. Átti hún þar
við einn glæsilegasta, dýrasta og kraft-
mesta sportbíl landsins en ekki féll
hann í kramið hjá frúnni. Bílasýningin
var haldin í Kolaportinu, bílageymsl-
unni við Seölabankahúsiö nýja, og var
sýningm ágætlega sótt. A henni voru
allir flottustu og kraftmestu sport-
bílar, kaggar og keppnisbílar á suð-
vesturhorni landsins.
Eúis og á fyrri sýningum Kvart-
miluklúbbsins var aðgöngumiöinn að
sýnmgunni jafnframt atkvæðaseöill og
gátu sýningargestir valið fallegasta
bílinn, verklegasta kvartmílubílinn,
athyglisverðasta bílinn og verklegasta
mótorhjólið. Ekki voru sýningar-
gestirnir jafnhrifnir af öllum bilunum
á sýningunni og sumir nutu sérstakrar
hylli þeirra. Má þar sérstaklega nefna
Evu II en Eva er sérsmíöaður keppnis-
bíll sem kom fyrst fyrir almennings-
sjónir á þessari bíiasýningu. Eigandi
Evu, Valur Vífilsson, hóf smíöi bílsins
fyrir tæpum tveimur árum eftir að
hann hafði velt Evu I út í hrauniö viö
kvartmílubrautina við Straumsvík.
Eva I var Plymouth Barraeuda, sem
Valur hafði byggt upp fyrú- keppnir í
Street Altered flokki, og var það í
fyrstu kvartmílukeppni bílsins sem
hann valt og eyöilagðist. Valur hirti
allt nýtiiegt úr Evu I og notaði í nýja
keppnisbílúin sinn, Evu II, sem er
Plymouth Duster og kemur nú fram á
sjónarsviöið.
Sem fyrr sagöi hrifust sýningargest-
ir mjög af Evu og kusu hana verkleg-
asta kvartmílubílinn og athyglisverð-
asta bílinn á sýningunni. Valur hyggst
teppa á Evu í kvartmílu og sand-
spyrnu og bíða áhugamenn um
akstursíþróttir spenntir eftir aö sjá
Evu í keppni. Ekki voru þó allir eins
hrifnir af Evu II og sagöi einn sýning-
argestanna aö hún liti út erns og risafíll
heföi stigið ofan á hana en bíllinn er
smíöaður á keppnisgrind og er mjög
lágur til að minnka loftmótstööuna og
auka kvartmíiuaksturseiginleika
hans.
Corvetta fallegasti bíllinn
Þaö voru fleiri bílar sem féllu vel í
kramið hjá áhorfendum. Á sýningunni
var önnur tveggja Corvetta Islendinga
og var hún kosin fallegasti bíllinn á
sýningunni. Er þaö þriðja árið í röö
sem Vettan er kosin fallegasti bíUinn á
bílasýningu Kvartmíluklúbbsins. Cor-
vetta þessi var smíðuð upphaflega 1969
en endursmíðuö eftir umferðaróhapp
hér á landi og lauk þeirri smíði um vor-
Áhorfendur á bílasýnlngu Kvartmíluklúbbsms féllu greinilega alveg fyrir ’69
Corvettunni því þeir kusu hana faUegasta bilinn á sýningunni, þriðja árið í röð, og
í annað sætið, bæði sem verklegasta kvartmíIubUinn og athyglisverðasta bUinn.
VW Scorpion mótorhjólið hans Ölafs Gíslasonar var kostið verklegasta mótorhjól-
ið á sýningunni og er það annað árið i röð sem það slær í gegn.
ið ’82. Corvettan hefur verið framleidd
með plastboddíi frá upphafi en áriö
1969 var hægt að velja um átta vélar í
Vettunni og var sú kraftmesta þeirra
650 hestöfl, en meðal standard-
útbúnaðar í Corvettunni eru diska-
bremsur viö öll hjól, sjálfstæö fjöörun
á öUum hjólum, aflbremsur og afl-
stýri. I dag er öldin önnur því að kaup-
endur nýrra bíla fá í mesta lagi að
velja um það hvort þeir hafi útvarp í
bílnum eða ekki og fæstir nýir bílar
hafa vélar sem ná hundrað hestöflum.
Vilhjálmur Ástráðsson sýndi ’55
Fordinn sinn og naut hann vinsælda,
svo sem hann hefur ávaUt gert á öUum
þeim bílasýningum sem hann hefur
verið á. Sjálfsagt rifjast upp ljúfar
endurminningar um sílsabeygjur í
Austurstrætinu, spymur á Kanavegin-
um og Austurstrætisdætur á rúntinum
hjá mörgum þegar þeir virða ”55
Fordinn fyrir sér, gamlan og virðu-
legan. Ekki skemmir þaö fyrir að vita
að í húddinu á honum hvílir 460 kúbika
Ford vél, nógu kraftmikil til að k veikja
í báöum afturdekkjunum undir Fordin-
um og skilja liðið eftir á búkkum, eins
og gæjamir segja. Á sýningunni var
annar Ford sem hreif áhorfendur. Var
það’62 Ford Galaxie, sem Guðmundur
Guðmundsson sýndi. Var Guömundur
greinilega búinn að leggja óhemju-
vinnu í aö gera bílinn upp. Var búið að
slípa hverja einustu skrúfu og hvert
stykki í bílnum upp og annaöhvort
Kristjánssona.
Mörg mótorhjól voru á sýningunni
en mesta athygli þeirra vakti þríhjól
sem Olafur Þ. Gíslason frá Akranesi
smiöaði sér úr gömlum VW og vara-
hlutum sem hann keypti frá Banda-
ríkjunum. Var VW Scorpion hjólið
hans kosið verklegasta mótorhjólið á
sýningunni og er þaö í annaö sinn sem
hjóliö og Olafur hljóta þann titil. Þá
vakti Kawazaki GPZ 1100 mótorhjóUð
hans Lúðvíks Vilhelmssonar einnig
mikla athygli en Lúðvik á Islands-
metið í mótorhjólaflokki í kvartmílu.
Setti hann það á Kawanum síðastliðið
haust er. þá fór hann kvartmíluna á
10,75 sek.
Úrslit atkvæðagreiðslnanna
FaUegasti bílUnn:
1. sæti Chevrolet Corvette Stmgray L-
36, eig. Jóhann Kristjánsson og Lilja
Oddsdóttú.
2. sæti Ford Galaxie árg. ’62, eig. Guð-
mundur Guömundsson.
3. sæti Ford árg. ’55, eig. Vilhjálmur
Ástráðsson.
Verklegasti kvartmílubílUnn:
1. sæti ,,Eva II” Plymouth Duster, eig.
ValurVífilsson.
2. sæti Chevrolet Corvette Stingray L-
36, eig. Jóhann og Lilja.
3. sæti Ford Púito 351 cid., eig. Gylfi
Pálsson.
Tilboösverö
Eva II hreppti tvo titla á sýningunni en hún var kostin verklegasti og athyglis-
verðasti bíllinn. Eva II er sérsmíðaður kvartmílu- og sandspyrnubíll sem á án efa
eftir að gera garðinn frægan í kcppnum í sumar.
Id'dId d n n ■|
u u u DQD DDD |
■ I
Svalahuröir úr oregonpine meö
lœsingu, húnum og þéttilistum.
Verö írá kr. 5.654,-
Útihuröir úr oregonpine.
Verö írá kr. 6.390,-
Bílskúrshuröir,
gluggar og gluggaíög.
Gildir til 1.05.84.
TRESMIÐJAN MOSFELL H.F
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
króma það eöa mála. Var bílúnn
óvenju snyrtilegur.
Margir Chrysler-bflar
Sérstaklega var skemmtilegt að sjá
hversu íslenskir Chrysleráhugamenn
stóðu sig vel á sýningunni, því á henni
voru sýnishom af flestum merkileg-
ustu tegundum Chrysierverksmiðj-
anna. Og ekki voru Plymmamir og
Dodgamir með neinar saumavélar í
húddinu. Jöfnuðust flestar þeirra á við
10 vélar í meðal japönsku hrísgrjóna-
fati. Meðal Chrysleranna á sýningunni
voru bílar sem vöktu sérstaka athygli.
Má þar t.d. nefna Dodge Chargerana
þeirra Gunnlaugs Emilssonar og
Jónasar Harðarsonar, Plymouth Road
Runnerinn hans Sigurjóns Andersens,
bráöfallegan Dodge Super Bee og 440
kúbika Dodge Challangerinn bræðr-
anna Þórhalls og Aðalbjöms
Athyglisverðasti bíllúin:
1. sæti ,,Eva II” Plymouth Duster, eig.
Valur Vífilsson.
2. sæti Chevrolet Corvette Stúigray L-
36.
3. sæti Ford Galaxie ’62, eig.
Guðmundur Guömundsson.
V erklegasta mótorhjólið:
1. sæti VW Scorpion, eig. Olafur Þ.
Gislason.
2. sæti Kawazaki GPZ1100, eig. Lúövík
Vilhelmsson.
3. sæti Honda 250 ATC, eig. Honda um-
boðiö.
Sigurvegararnir í hverjum flokki fá
til varðveislu veglega farandbikara
sem verslunin Ur og klukkur við
Laugaveginn gaf Kvartmíluklúbbnum
fyrir nokkrum árum.
Jóhann A. Kristjánsson.