Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Blaðsíða 21
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. APRIL1984..
21
!|KÓttír
íþrótti
íþróttir
íþróttir
- markaskorarinn mikli:
snillingur”
rdun/’ sagði Udo Latteck, þjálfari Bayern Miinchen
Ásgeir
vann
einvígið
Gerd „Bomber" Muller.
þaö fáránlegt aö tala um söluna á
„Siggi” sem algjör mistök. Þaö gera
aðeins þeir sem þekkja ekki baksviðið,
eins og Udo Latteck,” sagði Breitner.
Blaðamenn voru þá fljótir að spyrja
hann um baksviðið. — „Þegar Siggi”
var keyptur til Bayem samþykkti
hann að leika á vinstri vængnum. Þeg-
ar hann svo kom til okkar var hann
ekki ánægður með þá stöðu. Hann vildi
helst stjórna spilinu hjá Bayern. Það
var ekki pláss fyrir tvo stjómendur — í
sama liðinu og þess vegna skildu
leiðir,” sagði Breitner, sem stjómaði
leik Bayem þegar Ásgeir var hjá
félaginu.
Blöð hér í Miinchen eru full af frá-
sögnum um Ásgeir sem átti snilldar-
leik — og þá má geta þess að öll blöð í
V-Þýskalandi völdu hann í lið
vikunnar, hann var maður dagsins hjá
flestum þeirra og þá skoraði hann
einnig mark dagsins — með
þrumuskoti af 20 m færi — jöfnunar-
mark Stuttgart 2—2. —HO/-SOS.
Auðvelt
hjá Fram
Fram sigraði Ármann örugglega í
Reykjavikurmótinu í knattspyrau i
leik sem fram fór á Melavellinum i
gærkvöldi. Staðan i leikhléi var 2—0 og
það var Guðmundur Torfason sem
skoraði bæði mörk Fram.
Næsti leikur fer fram í kvöld og
leika þá Fylkir og Vikingur og hefst
leikurinn kl. 18.30 á Melavelli. _SK.
NDSMET
Dn hefur sett 25 íslandsmet
/erslun okkar að Laugavegi 69
iginn 10. apríl frá kl. 14-18 og
jóð ráð í sambandi við val á
og skóm.
Fitness,
stærðir
5-111/2,
kr. 1.170,-
Frá Hilmari Oddssyni —
fréttamanni DV í Miinchen: —
Asgeir Sigurvinsson átti snilldar-
leik með Stuttgart hér gegn Bayera
og vann hann einvígið við danska
leikmanninn Sören Lerby sem
stenst ekki samanburð við Ásgeir.
Blöð hér segja að Lerby, sem var
keyptur tfl að taka stöðu Paul
Breitner hjá Bayera, komist ekki
með tærnar þar sem Ásgeir hefur
bælana.
Ásgeir var spurður um hvort
leikurinn gegn Bayem hefði ekki
verið sæt hefnd. Ásgeir sem er
mjög hógvær og látlaus í öllum
viötölum — vill greinilega ekki ýfa
upp gömul sár þó aö hann sé eflaust
sár og beiskur yfir hvemig var
farið með hann hjá Bayern, sagði
að hann neitaði því ekki að það
hefði verið ánægjulegt að skora
jöfnunarmarkið 2—2 gegn Bayern.
— Eg hugsa ekki um það mark sem
hefnd. Ef hægt cr að tala um befnd, þá
átti hún sér stað fyrr í vetur i Stuttgart
þar sem við uunum Bayern 1—0, sagði
Ásgeir, sem er litið fyrir að básúna sitt á-
gæti í blööum. Hann hefur hingað til sýnt
sina getu á leikvellinum en ekki barið
bumbur í biöðum. Já, látleysi Ásgeirs
hefur gert hann enn vínsælli hér í V-
Þýskalandi — hann er manngerð sem V-
Þjéðverjar kunna að meta. -HO/-SOf^j|
Asgeir Sigurvinsson - talinn besti stjórnandinn / v-þýsku knatt-
spymunni.
„Niðurstaða lyfja-
prófsins neikvæð”
segja Gyffi og Garðar Gíslasynir um lyfjapróf ið sem þeir fóru í í Svíþjóð
DV hefur borist eftirfarandi bréf frá
lyftingamönnunum Gylfa og Garðari
Gíslasonum frá Ákureyri vegna
greinar þar sem rætt var við Alfreð
Þorsteinsson, formann lyfjanefndar
ÍSÍ. Þar var haft eftir Alfreð að þeir
bræður hefðu verið kallaðir öðru sinni i
lyfjapróf vegna gruns um að annar
bróðirinn hefði gefið þvagsýni fyrir
báða. Bréf þeirra bræðra fer hér á
eftir:
,,Síöan að við komum til Svíþjóðar í
september 1983 höfum við keppt á
tveimur lyftingamótum þar sem lyf ja-
próf hafa farið fram. Fyrst á Norður-
landameistaramóti unglinga í nóvem-
ber 1983 og síðan á Sweden Cup 26.
febrúar sl. Síðamefnt mót var hugsað
sem nokkurs konar úrtökumót fyrir
væntanlega Olympíukandidata Islands
í lyftingum, en úr því varð ekki þar
sem bræðumir Baldur og Birgir Borg-
þórssynir vom meiddir á þeim tíma.
Islenska lyfjanefndin stóð fyrir lyfja-
prófi á íslensku keppendunum á þessu
AstonVilla með
nýjaauglýsingu
Áston Vilia befur gert auglýsingasamning
við japanska skriivélafyrirtækið Mita’s og
fær Villa 250 þás. sterlingspund fyrir
samnínginn. Féiagið hyggst nota þá pcninga
til að endurnýja samning einn sinna bestu
leikmanna Gary Shaw sem mörg félög hafa
haft augastað á — eins og Juventus og Real
Madrid.
-SOS
móti og í það fómm við bræöur ásamt
Haraldi Olafssyni, eins og fyrir okkur
var lagt. Stóðu yfir okkur tveir læknar
(annar kona) og horfðu á okkur pissa i
glösin.
Nú fyrir nokkm var hafin mikil
lyfjaeftirlitsherferð meöal sænskra
íþróttamanna og var sagt í blöðunum
að á næstu dögum yrðu 700 íþrótta-
menn kallaðir í próf. Við vorum
boðaðir til lyfjaprófs ásamt 3 öðrum
lyftingarmönnum úr okkar klúbb auk
fjölda annarra íþróttamanna. Við
spurðum af hverju við væmm kallaðir
fyrir og fengum þau svör að við
kepptum og æfðum með sænkum
klúbbi og teldumst því sænskir íþrótta-
menn. Okkur var sagt að niðurstaða
prófsins eftir Sweden Cup mótið væri
neikvæð (neikvæð niðurstaða í lyfja-
prófi merkir að ekkert sé athugavert,
innskot blm.) og lyfjanefnd ISI fengi
senda skriflega niöurstöðu. Utkoman
úr síöara prófinu sem við vorum
kallaðir í verður að sjálfsögöu neikvæð
eins og alltaf þegar við förum í lyfja-
próf.
Ummæli Alfreðs Þorsteinssonar í
DV þykja okkur hlægileg og hörmum
við þennan misskilning og sendum
honum og öðrum íslenskum íþrótta-
mönnum íþróttakveðjur.
Gylf i Gíslason
Garðar Gislason
^nniv^juivg Jl
ef innihald bréfs þeirra bræðra er á rökum
reistsegir Alf reð Þorsteinsson, form.
lyfjanefndar ÍSÍ
I„Þessar upplýsingar sem ég fékk
frá Sviþjóð komu f rá yf irumsjónar-
Imönnum lyfjaeftirlitsmála lí
Svíþjóð,” sagði Alfreð Þorsteins-
Ison, formaður lyf janefndar ÍSÍ, er
við bárum undir hann innihald
Ibréfsins frá þeim Gylfa og Garðari
Gislasonum.
I„Ef þetta er rétt sem þeir segja í
bréfi þessu lýsi ég fyrstur manna
yfir ánægju minni með það. Þá eru
það gleðitíðindi. Við í lyfjanefnd
erum alls ekki að vona að einhverj-
ir íþróttamenn noti lyf samfara
iþróttaiðkun. En ég vil taka það
skýrt fram aö enn höfum við ekki
fengið niðurstöður frá Sviþjóð og á
meðan svo er getum viö ekki fuUyrt
neitt í þessu máli,” sagði Alfreð
Þorsteinsson. -SK.
Sveinn
erúr
leik
3
3 1
Sveinn Bragason, hinn lúnkni leik-
maður íslandsmeistara FH í handknatt-
leik, endaði keppnistimabilið á heldur
dapurlegan bátt. I ieik FH og Vals á
laugardag tognaði bann illa og getur
ekki leikið með FH-liðinu í síðustu leikj-
um þess um næstu helgi.
-SK.
Ásgeir varð
eftir í Miinchen
— Frá Hilmari Oddssyni — frétta-
manni DV í Miinchen:
— Þegar leikmenn Stuttgart lögðu á
stað heim á leið frá Miinchen stóð einn
leikmaður eftir og kvaddi þá. Það var ts-
lendingurinn Ásgeir Sigurvinsson, fyrr-
um leikmaður Bayera Miinchen. Ásgeir
var eftir þar sem hann ætlaði að eyða
kvöldstund með fyrrum félögum sínum
hjá Bayern sem hann hefur regiuiega
samband við.
Tveir bestu félagar hans í Miinchen —
landsliðsmennirair Klaus Augenthaler
og Woifgang Dremler, höfðu samband
við Ásgeir í sl. viku og buðu honum að
vera eftir i Miinchen. Ásgeir dvaldist
heima hjá Augenthaler. -HO/-SOS
Valsmenn í
IHF-keppnina
FH-ingar leika í Evrópukeppni
meistaraliða næsta keppnistimabil þar
sem þeir báru sigur úr býtum í úrslita-
keppninni um íslandsmeistaratitilinn.
Það verða Valsmenn sem keppa í IHF-
bikarkeppninni þar sem þeir urðu í öðru
sæti í 1. deildarkeppninni — á eftir FH-
ingum. -SOS
Bilbaotapaði
Spánarmeistararair Atletico Bilbao
máttu þola tap 0—2 í Sevilia — fyrir Real
Betis. Argentínumaðurinn Gabriel
Caldero var hetja Betis, skoraði eitt
mark og lagði upp hitt.
Real Madrid lagði Real Murcia að
velli 3—2 í Madrid. Það var Juanito sem
skoraði sigurmarkið úr vítaspymu en
Santillana og Ricardo Gallego skoruðu
hin mörkin.
Barcelona lagði Real Zaragoza að
velli 1—0. Carrasco skoraði markið eftir
að Vitaller, markvörður Zaragoza hafði
ekki náð að halda föstum skalla frá
Diego Maradona.
Bilbao og Real Madrid eru með 43
stig, Barcelona 42 og Atletico Madrid 40.
-SOS
Jafntef li á
Goodison Park
Everton og Arsenal gerður jafntefli
0—0 á Goodison Park í gærkvöldi í ensku
1. deildarkeppninni. Tveir leikir fóru
fram i 3. deild. Bouraemouth vann
Buraley 1—0 og Port Vale lagði Orient að
velli 2—0. -SOS
Hoddle
undir
hnífinn
Glenn Hoddle — enski landsliðs-
maðurinn hjá Tottenham, var skorinn
upp við meiðslum á hásin á sjúkrahúsi í
London í gær. Meiðsli á hásin hafa háð
honum tvö sl. ár. Hoddle mun þvi ekki
leika meira með Tottenham í vetur en
reiknað er með að hann verði orðinn
góður í júní og geti farið með enska
landsliðinu i keppnisferð til S-Ameríku.
-SOS
íþróttir
íþróttir