Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 26. MAl 1984. 9 Frá þingslitum. — Þingið hljóp heim án þess að samþykkja vilja fólksins i útvarpsmálum. DV-mynd GVA. Megiim vid ráða okk ar eigin útvarpi? Viljum við ekki ákveða sjólf, hvað við hlustum á í útvarpi eða sjáum í sjónvarpi? Þeir stjórnmálamenn, sem ráða, telja, að við eigum ekki að ráða sjólf, jafnvel svo einfðldum hlut. Okkur sé ekki treystandi. Þess í stað þurfi einhverjar nefndir og ráð til að hafa fyrir okkur vit. Þetta gerist enn, þótt videoleigur séu á hverju strái og fjölmargir Islendingar eigi nú þegar videotæki. Þetta gerist á Islandi vordaga 1984, þótt jafnvel forhertustu stjórn- málamenn viðurkenni, að stjómvöld hér geti ekki lengi staöið gegn þróun- inni. Við getum brátt haft samband við - gervihnetti, sem senda sjónvarpsefni frá öðmm löndum. Viöa um land liggja kapalkerfi. Landsmenn hafa haft vit fyrir stjóm- málamönnunum og reyna að fylgja þróuninni þótt hiö pólitíska afl sé sem lík í lestinni. Varðhundarnir svœfðu frumvarpið Ungir sjálfstæðismenn boðuðu til fundar í fyrradag og ræddu: „Frjálst útvarp — hvert verður framhaldið?” Utvarpslagafrumvarp mennta- málaráðherra var „svæft” í þinginu. Það gekk þó aöeins skammt i átt til frjálsræðis. Varðhundum kerfisins á Alþingi tókst samt að svæfa frumvarpið i þettasinn. Hér verður byggt á ummælum fundarmanna í fyrradag og hugleiðingum, sem vöknuöu við áheyrn um frelsi fólksins i landinu. Fólk hef ur í mörg ár lýst í skoðana- könnunum fylgi við fr jálst útvarp. Það þarf stefnufestu til aö endur- flytja frumvörp um slfk mál ár eftir ár eins og sumir þingmenn hafa gert. Frumvörp þeirra hafa aldrei komið til atkvæðagreiðslu á Alþingi. Alltaf hafa verið nógu margir á þingi, sem vildu hneppa vilja fólks- ins i þessu máli í spennitreyju. Þaö þarf þvi árvekni til þess að slik mál ,,deyi” ekki, einfaldlega. A fundinum var skorað á frjáls- lynda stjómmálamenn að standa saman til að koma auknu frelsi í þessu máli gegnum þingið fyrír ára- mót. Menn skyldu hafa hugfast, að í út- varpslagafrumvarpi Ragnhildar Helgadóttur felst að vísu aukið frelsi en engan veginn nægilega aukið frelsi. Aö minum dómi gengur frumvarpið alltof skammt í frjáls- ræðisátt. Frelsiö, sem þaö boðar, dugir neytendum ekki. Hvert frumvarpið af öðru Guðmundur H. Garðarsson flutti I apríl 1977 frumvarp um að hnekkja einokun Ríkisútvarpsins. Hann endurflutti frumvarpið á næsta þingi. Þá sáu menn í verkfalli opin- berra starfsmanna, hvemig var að vera án útvarps og sjónvarps. Páll Pétursson, sem nú er for- maður þingflokks Framsóknar, geröi gys aö frumvarpi Guömundar og kallaði frjálshyggjuna „orðlepp”. A þinginu 1978—79 flutti Ellert B. Schram frumvarp um að heimila landshlutasamtökum útvarpsrekst- ur. Guðmundur H. Garðarsson, Friðrik Sophusson, Albert Guömundsson og Olafur G. Einars- son endurfluttu frumvarp Guðmundar um frelsi í þessum málum. Friðrik Sophusson og fleiri fluttu um þetta frumvarp á þinginu 1981— 82. Að stofni til var það í ætt við fyrri frumvörp Guðmundar H. Garðars- sonar. Þessi mál voru öll svæfð. Síðan gerist það i september 1981, aö Ingvar Gislason, þáverandi menntamálaráðherra, skipar nefnd, útvarpslaganefnd, í máliö. Frum- varp um frelsi í útvarpsrekstri var flutt á þinginu 1982—83 og svæft. Nefndin skilaði áliti i október 1982 og lagði drög að frumvarpi, sem gerði ráð fyrir afnámi einkaréttar Ríkisút- varpsins en töluvert takmörkuðu frelsi. Astæða er til að ætla, að framsóknarmenn hafi lagzt á málið síðan. Það er ekki fyrr en nýlega, að Ragnhildur Helgadóttir mennta- málaráðherra flytur frumvarp, sem byggir á nefndarálitinu. Það frum- varp hefur nú enn verið stöðvað, sem voru örlög svo margra fyrri frjáls- ræðisfrumvarpa eins og hér hefur verið rakið. Jón Baldvin Hannibalsson flutti á þinginu 1982—83 óbreyttan fyrsta hluta af drögum útvarpslaganefndar ífrumvarpsforml. l.aniiaiMlaiis- pislillinn Hankur Helgason aðstoðarritstjóri Hér hafa ýmsir merkir menn komiö við sögu. Engu að síöur er það enn rikjandi sjónarmið á Alþingi, aö almenningur i landinu sé ekki nógu viti borinn til að ráða sjálfur, hvaða útvarps- og sjónvarpsefni hann hefur. Hið óhjákvæmilega verður veruleiki Þeir, sem vilja fr jálsræði í þessum málum, benda á, að timinn hlýtur að vinna með þeim. Hið óhjákvæmilega verður veruleiki, hvað sem stjóm- málamennirnir segja. Hið óhjákvæmilega hefur þegar orðið veruleiki með kapalkerfum víða um land og videokerfum í fjölbýlishús- um, svo dæmi séu nefnd. Frjálslyndir segja kannski, að i þessarí umferð komumst viö ekki lengra en sem nemur útvarpslaga- frumvarpi Ragnhildar. Þó er bent á breytingartillögur, sem fram komu á síðasta þingi, frá Friðriki Sophus- syni og Guðmundi H. Gai’ðarssyni ann- ars vegar og ennfremur frá Kristínu S. Kvaran og Guömundi Einarssyni. Þessar tillögur hnigu i átt til meira frjálsræðis en frumvarpið gekk út á. Frumvarp Ragnhildar ber okkur ekki alla leið aö fyrirheitna landinu. Megum við ekki ráðstafa þessu sjálf án afskipta misviturra stjórnmáa- manna? spurði Friðrik Friöriksson 1. varaformaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna á fyrrgreindum fundi. Þróunin hefur gengið í þá átt að veita einstaklingum og frjálsum samtökum þeirra meira frelsi. A Islandi hefur á fáum árum oröiö gifurleg aukning i útgáfu ýmiss konar sérrita, sagði Guömundur Einarsson þingmaður á fundinum. Hópar gera vart við sig á markaðn- um, og markaðurinn svarar. Þetta mun gerast í f jölmiölun hér á landi, en útvarpslögin hindra. Við getum ekki byggt um okkur girðingu. Guömundur sagöi, aö í stað þess að byrja með frumvarp, sem takmarkar frelsi, ættum viö aö byrja með hreint borð og hindranalaust. Siðan gætum við spurt okkur, hvers vegna ætti að setja einhverjar hindranir hér og þar. Hvers vegna má til dæmis ung- mennafélag fyrir norðan ékki setja upp útvarp, þótt sveitarstjórn þar sé á móti því? Samkvæmt útvarpslaga- frumvarpinu þyrfti f élagið samþykki sveitarstjómar. Blaðaréttarnefnd? Einhver stærsta hindrunin samkvæmt frumvarpinu yrði póli- tiskt skipuð útvarpsréttarnefnd, sem á að hafa hönd i bagga með öllum sköpuðum hlutum. Segjum sem svo, sagði Guðmundur, að viö værum stödd fyrir 100—200 árum og veltum fyrir okkur blaöaútgáfu, sem væri tæknilega möguleg. Ættum við þá að skipa „blaðaréttarnefnd”, sem ráðskaðist með, hvaða blöð væru gefin út og hvaða auglýsingatekjur þau hefðu? Ætti nefnd frá ríkinu aö ákveða, hvort gefa mætti út blað í Svarfaðardal og ákveða auglýsinga- taxtaþess? Samkomulags- grundvöllur? Halldór Blöndal alþingismaður sagði á áðurnefndum fundi, að núverandi útvarpslagafrumvarp væri samkomulagsgrundvöllur á þinginu. Menn kæmust ekki lengra í þessari umferö. Til dæmis óttaðist Alþýðuflokkurinn „tök afturhalds- ins”, yrði fjölmiðlun frjálsari. Fulltrúar Alþýöubandalags og Kvennalista óttuöust, að grundvelli yrði þá kippt undan rekstri Ríkisút- varpsins. Sjálfstæðisflokkur plús Bandalag jafnaöarmanna væru í minnihluta á þinginu, þótt þeir gætu kannski náð saman, um að ganga lengra. Utvarpslögin yrðu áfram rædd nú á sumarmánuðum fyrir forgöngu Ragnhildar Helgadóttur. Mönnum væri ljóst, að ógerningur væri annaö en að slaka á klónni með einkarétt Ríkisútvarpsins. Jón Baldvin Hannibalsson alþingismaður sagði á fundinum, að sumir óttuðust ofurvald „peninga- fursta og gróðapunga” á markaðn- um, yrði frelsi aukið mun meira. Hins vegar væri tæknilegu rökin fyrir auknu frelsi gild svo og þau rök, að Ríkisútvarpið hefði gott af sam- keppni. Takmarkað frelsi væri óhjá- kvæmilegt. Utvarpslagafrumvarpið gæti orðið samkomulagsgrundvöllur i þinginu. Þannig var niðurstaðan, að ekki væri þingmeirihluti fyrir því að ganga að ráði lengra en hið mjög svo takmarkaða útvarpslagafrumvarp gerir ráð fyrir. Dlu heilli virðist svo sem fólkið i landinu fái ekki nema i litlu ráðið því, hvað það heyrir í út- varpi eða sér í sjónvarpi. DV greindi í vikunni frá kapalvæðingu í Evrópu. I flestum ríkjum Vestur-Evrópu ryðst nútíminn fram. Jafnvel franskir sósíalistar taka þátt í fram- förunum. Islendingar virðast ætla að dragast aftur úr, svo um munar, ráði ríkjandi stjómmálaviðhorf ferð. Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.