Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 28
28 DV. LAUGARDAGUR 26. MAl 1984. Starf rafveitustjóra I meö aðsetri á Djúpavogi er laust til umsóknar Umsóknir meö upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist til Rafmagnsveitna ríkisins, Þverklettum 2, Egilsstöö- um, eða starfsmannahalds Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga- vegi 118,105 Reykjavík, fyrir 15. júní nk. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í akstur malarslitlags á Mýrdalssandi (5.500 m3). Verkinu skal lokið 15. júní 1984. Utboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins í Reykjavík, á Selfossi og í Vík í Mýrdal frá og með 28. maí nk. Skila skal til- boðum fyrir kl. 14.00 þann 4. júní 1984. VEGAMÁLASTJÖRI Nauðungaruppboð sem auglýst var í 116., 119. og 122. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Kjarrhólma 6 — hluta —, þingl. eign Ómars Magnússonar og Þórveigar Gísladóttur, fer fram aö kröfu Landsbanka tslands, Einars Viðar hrl., Ólafs Axclssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka islands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 30. maí 1984 kl. 14.15. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 134., 136. og 140. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Engihjalla 17 — hluta —, þingl. eign Þorvaröar Einarssonar, fer l'ram að kröfu Veödeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 30. maí 1984 kl. 13.45. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 109., 112. og 114. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Eyrum 9, Kjósarhrcppi, þingl. eign Steinunnar Bjarnadóttur, fer frain eftir kröfu Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri mánudaginn 28. maí 1984 kl. 10.30. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 9., 12. og 15. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Garöstíg 3, neðri hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Stefáns Magnússonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 28. maí 1984 kl. 14.30. Bæjarfógetinn íHafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 9., 12. og 15. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eignicni Kaplahrauni 16, Hafnarfirði, þingl. eign Vélsmiðju Orms og Víglundar s/1, fer fram eftir kröfu Hákonar H. Kristjónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 28. maí 1984 kl. 16.45. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Holtsgötu 10, kjallara, Hafnarfirði, þingl. eign Friðriks Haf- berg og Unnar Sigurjónsdóttur, fer fram eftir kröfu Ólafs Axelssonar hrl., Sigríðar Thorlacius hdl. og Árna Grétars Finnssonar hrl. á eign- inni sjálfri þriöjudaginn 29. maí 1984 kl. 13.30. Bæjarfógetinn íHafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Hverfisgötu 49, stofuhæð, Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Þórs Ingólfssonar og Sigríðar Sigfúsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl., Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Ásgeirs Thor- oddsen hdl. og Brynjólfs Kjartanssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðju- daginn 29. maí 1984 kl. 14.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Álfaskeiöi 80,2. hæð t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Ármanns Ár- mannssonar, fer fram eftir kröfu Valgarðs Briem hrl. á eigninni s jálfri þriðjudaginn 29. maí 1984 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. TÓNLISTARDAGAR Tónlistardagar byrja á Akureyri í næstu viku. Á uppstigningardag, 31. maí, verður Kristinn Sigmundsson baríton með einsöngstón- leika. Undirleikari er Jónas Ingimundarson. Kór og hljómsveit flytja Örlagagátuna eftir Björgvin Guðmundsson. Sunnudaginn 3. júní og fimmtudaginn 7. júní verða tónleikar Bara-flokksins. Tónleikarnir verða allir haldnir í íþróttaskemmunni á Akureyri og byrja klukkan JBH/Akureyri. ÖRLAGAGÁTAN Passiukórinn flytur Örlagagátuna ásamt félögum úr Karlakórnum Geysi og Gigjunum. Flutningur Orlagagátunnar eftir Björgvin Guðmundsson er viðamesta atriði Tónlistardaganna á Akureyri. Flytjendur eru Passíukórinn á Akur- eyri meö félögum úr Karlakórnum Geysi og Gígjunum við undirleik blás- arasveitar Tónlistarskólans á Akur- eyri og Nýju streng jasveitarinnar. Björgvin Guðmundsson fæddist 26. aprfl 1891 í Vopnafii'öi. Hann læröi lítils-. háttar á orgel áður en hann fluttist til Kanada árið 1911 og var þá líka farinn að semja sönglög. I Kanada lærði hann húsasmíði en hélt jafnframt áfram námi í hljóðfæraleik og tónfræði. Arið 1919 lauk Björgvin við fyrstu óratoríu sína, Frið á jörðu, og 5 árum síðar óratoríuna T>1 komi þitt ríki. Is- lendingar í Kanada fylgdust vel með verkum Björgvins á tónlistarsviðinu og studdu hann til frekara náms í Konunglegu akademíunni í Lundúnum þar sem hann lauk prófi eftir tveggja ára nám. Hátíðarkantötuna Island þúsund ár samdi Björgvin 1929 og var hún fyrst flutt í Winnipeg í mars 1931. Þetta sama ár fluttist hann til Akur- eyrar og geröist söngkennari við bamaskólann og menntaskólann. Hann efldi sönglíf í bænum mikiö og var stofnandi Kantötukórs Akureyrar. Björgvin lést áriö 1961. Tónskáldið hefur sjálft sagt um til- ui'ð Örlagagátunnar að hana megi rekja til kynna hans og Stephans G. Stephanssonar. Heföi hann beðið Stephan að yrkja fyrir sig óratoríu- texta. Ut úr því hafi komið Þiðranda- kveöa Stephans en söngverkið fengiö nafnið Orlagagátan. Björgvin var um þetta leyti í Winni- peg ai á förum til Lundúna og fékk ljóöaflokkinn sendan þangaö í febrúar 1927. Hann fer þar vel af stað við að semja en hélt áf ram í Winnipeg og lauk því svo 6. janúar 1933 á Akureyri. Efniö í söngdrápuna er sótt í þátt Þiðranda og Þórhalls sem er einn af 40 Islendingaþáttum. Þar er víg Þiðranda Síðu-Hallssonar þunga- miöja. I skýringum Björgvins Guðmunds- sonar við Orlagagátuna, þegar Kant- ötukórinn á Akureyri flutti hana árið 1946, segir tónskáldið: „Fyrsti kórinn er haustsöngur í tímanlegum og tákn- rænum skilningi, en gæti jafnframt táknað dulmál örlaganna er oft þykir einkenna andrúmsloftið þegar voveif- legir atburðir eru í aðsigi. Nú hafði Síöu-Hallur áformað að hafa inni boö mikið til heiöurs Þiöranda syni sínum, sem þá var væntanlegur heim frá út- löndum þar sem hann hafði hlotið frægð og frama, enda þótti hann afbragð ungra manna. En tryggða- vinur Halls og gestur hans löngum, Þórhallur spámaður að Hörgslandi á Síðu, lét sér fátt um finnast boð þetta og vildi þar hvergi nærri koma, þó aldrei þessu vanur. Er því fyrri þáttur að mestu leyti átök milli Síðu-Halls og fólks hans annars vegar en ÞórhalLs hins vegar, um að fá Þórhall til að sitja veisluna og lýkur með fullum sigri þeirra Halls. Síðari þátturinn er að nokkru leyti þrískiptur. Hann hefst fyrsta veislu- kvöldið. Stórhríð er á og margt boös- manna ókomið til veislunnar. Samt er þar glatt á hjalla og vel veitt, en Þór- hallur bannar að nokkur yfirgefi skál- annumnóttina. Þá hefst næturþátturinn með nr. 17. Menn taka á sig náöir og nokkru síöar er kvatt dyra, en enginn þorir aö gegna. Þetta stenst Þiðrandi ekki, hyggur hann að fleira boðsfólk sé komið og gengur til dyra. Ráöast þá að honum níu nomir dökkleitar, með þeim árangri, að hann liggur þar eftir helsærður. Níu dísir bjartleitar vildu koma Þiðranda til hjálpar, en urðu seint fyrir eins og oft hefur viljað brenna viö. Þessi þáttur endar svo meö nr. 24, á dauða Þiöranda morguninn eftir. Þá hefst lokaþátturinn um það leyti sem Síðu-Hallur hefur ákveðið að flytja frá Hofi til Þvottár vegna óyndis eftir þennan hryggilega atburð. Spyr nú Hallur vin sinn Þórhall hvað hann hyggi um afdrif Þiöranda. En Þór- hallur getur til að siöaskipti muni í nánd, og sé hinn nýi siður betri enda muni Hallur og ættingjar hans aöhyll- ast hann. Jafnframt lætur hann þess getiö að gamli túninn vilji hafa sitt, og það helst ekkert minna en besta mann ættarinnar, enda sé honum þaö varla láandi. Nú bregður líka svo við að tvær hinna björtu, góðu dísa koma á vett- vang og syngja Halli huggunaróð, er f jöldi himneskra hollvætta undirstrika svo í síðasta kórnum, með þeim rökum, að glæsi- og göfugmennska hljóti ávallt að vera lífæð mannkyns- ins, hvemig sem skipast kunni um þeirra tímanlegu örlög því að það lífræna sé ódauðlegt en hið helræna feigt.” Roar Kvam hefur gert hljómsveitar- útsetningu fyrir Orlagagátuna og stjórnar flutningi hennar. Verkið verður einnig á Listahátíð í Reykjavík íjúni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.