Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984. 15 Úr Prínca-Poloröðinni. LJósm. GBK. Enn meira popp Omar Skúlason leikur sér með myndmál sem stendur nálægt Rausch- enberg og félögum. Hann tengir saman á flötinn myndir sem standa fyrir ólíka tíma og ósamstæð rými. Sérhver mynd (ljósmynd, teiknimynd, o.s.frv.), sem fest er á flötinn, felur í sér sinn eigin sjónblekkingarmótt, sína eigin fjar- vídd. En á sama tíma er allt gert til að brjóta upp hina beinu frásögn eins og við þekkjum hana í hinu hefðbundna málverki. Samklippurnar koma i veg fyrir fjarvíddarskynjun. En í verkum Omars eru samklippumar fremur grunnur eða einskonar baksvið fyrir persónulega hlutdeild listamannsins. Því þó listamaöurinn hrúgi inn alls kyns myndtáknum er hann sjálfur Myndlist Gunnar B. Kvaran ávallt til staðar sem hluti af listaverk- inu. Hann teiknar og málar. Enn möguleiki Þó svo að myndmálið virðist við fyrstu sýn hafa gengið sér til húðar og sé aöeins orðin skrautleg endurtekning þá kemur listamaðurinn furðu sterkur og persónulegur út úr seríunum um eldspýturnar og prince-pólóið. Form- rænt séð eru þessar dýnamisku mynd- byggingar og d jörfu litir settir fram af fagmennsku og upplif un. Inntakslega skynjum við þessar myndir sem tímahvirfil þar sem nútíð og þátíð mætast á fletinum/i rýminu og áhorfendum er boðið að taka þátt í leiknum og raða saman lestrarmögu- leikum myndanna. Því inntakið mark- ast ekki af fyrirmyndinni — mótífinu — (ber kona, eldspýta, sveif, o.s.frv.) heldur af tengingu brotabrotanna sem áhorfandinn myndar við lestur verk- anna. I heild er þetta einkar friskleg og skemmtileg sýning og þó viðfangsefnið sé þekkt kemst listamaðurínn oft að persónulegum og sannfærandi niður- stöðum. GBK Laglegur lokapunktur Tónlistardagar Dómkirkjunnar. Kórtónloikar 11. nóvember. Stjórnandi: Martoinn H. Friðriksson. Einleikari: Orthulf Prunner. Losari: Gunnar EyjóHsson. Orgekmdirleikur: Helgi Pótursson. Efnisskrá: Felix Mendelssohn-Bartholdy: Sónata nr. 1 ( f-moll; Þorkell Sigurbjömsson: Lofið Guð f helgidómi hans; Knut Nystedt: De profundis, op. 54; Johann Nepomuk Hummel: Prelúdfa og fúga ( As-dúr; Hugo Distlor: Totentanz. Tónlistardögum Dómkirkjunnar lauk, eins og þeir hófust, með kórtón- leikum. Orgeleinleikari var Orthuif Prunner, organisti Háteigskirkju. Hann hóf leikinn með orgelsónötu Mendelssohns númer eitt og inn á milli lék hann Prelúdíu og fúgu Johanns Nepomuks Hummels, þess sem við tók af Papa Haydn í Eisenstadt. Leikur Orthulfs Prunners var þróttmikill og geislandi af lífi, en ekki fannst mér hann fullkomlega dús við hljóðfæríð og kom það á sinn hátt fram i leikn- um. En framlag Prunners var gott innlegg i þessa tónleika sem annars voru alfarið í höndum Dómkórsins. Ekki að neinu flanað Hann þorði mun betur að beita sér, kórínn, í verki Þorkels Sigurbjöms- sonar, Lofið Guö í helgidómi hans, en í Áminningu nokkrum kvöldum áður. Það gerðist án þess að slakað væri á kröfum hreinleikans í söngn- um og sýnir að hann þarf ekki að fara alveg eins varfærnislega að þótt sjálfsagt sé að flana ekki aö neinu og missa aldrei sjónar á hinum hreina tóni. Jafnvægi raddanna er allgott, en þó vantar bit í sópraninn. Mundi þaö muna miklu i skerpu kórsins ef hann væri betur brýndur. 1 verki Þorkels söng Halldór Vilhelmsson Tónlist Eyjólfur Melsted upphafsorðin átakalaust en meö voldugri röddu — sem sé, þótt tilefnið væri lítið, þá söng hér Hall- dór eins og hann syngur best. Orgel- undirleikinn annaðist Helgi Péturs- son. Hann vann sitt verk vel og veitti góðan og öruggan stuðning. Gáfu ekkert eftir De profundis Knuts Nystedts söng kórinn mjög vel. Knut Nystedt er Is- lendingum að góðu kunnur, bæði af tónverkum sínum og kórheimsókn- um, og er óþarft að kynna hann hér þeim sem til þekkjá en yrði of rúm- frekt að kynna hann þeim sem ekki kannast við þetta atorkusama norska tónskáld og kórstjóra. Meginverkefni tónleikanna var Dauðadans Hugo Distlers við texta Angelusar Silesiusar og Johannesar Klöcking í þýðingu Hjartar heitins Kristmundssonar. Til aö flytja þátt Dauðans fékk kórinn til liðs viö sig Gunnar Eyjólfsson leikara. Hann innti sitt verk vel af hendi eins og hans var von og visa. En kór- meðlimir þeir, sem á móti honum lásu, fluttu texta sinn með engu minni glæsibrag — hvort sem það hefur verið vegna þess að þau vildu etja kappi viö leikarann snjalla eöa hrifust með af því að heyra hans á- gæta flutning. Sönginn flutti kórinn mildilega og söng hreint. Það eina sem mér fannst ekki koma heim og saman voru skiptingamar á milli lesturs og söngs. Þar slitnaði um of í sundur og verkaði Ukt og rekinn væri fleygur í annars góða heildarhrynjandi verksins. En að öðru leyti var flutningurínn til sóma og var meö Dauðadansinum settur laglegur lokapunktur á vel heppnaða Tónlist- ardaga Dómkirkjunnar. -EM. Sérverslun með Skrifstofuhúsgögn Ótrúlega hagstætt verð, i gerð af skrifborði ^ kr. 14.290. til dæmis stærsta ( Eða hillueiningar, þær bjóða upp á pp mikla möguleika og verðið skemmir það ekki. Til dæmis opin hillueining kr. 5.150 eða eining með hurðum að neðan kr. 6.800. Berið saman verð og gæði Viðartegundir: Ljós eik, dökk eik, beyki, tekk. Líttu inn eða hringdu og sjóðu hvað við getum gert fyrir þig. Á. GUÐMUNDSSON Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100 < Fi3!* AUGLÝSIR joggingfatnað í úrvali Verö í sérf'okki. f/'/V i 3 E 3 Laugavegi 41. Sími 22566. Póstsendum. wfflm NS, NÝTT FRÁ ÍTALIU Litir: svartur svartur/grár. Stærðir 36—41. Verð kr. 950,- PÖSTSENDUM. /MCCNS ÞINGHOLTSSTRÆTI I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.