Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1984, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUÐAGUR19. NOVEMBER1984. DV yfirheyrsla DV-yfirheyrsla DV-yfirheyrsla DV yfirheyrsla „ÞAÐ FÆR ENGINN MAÐUR UMFLÚIÐ ÖRLÖG SÍN” — segir Jón Baldvin Hannibalsson, nýkjörinn formaður Alþýðuflokksins, íyfirheyrslu DV — Saga Alþýðuflokksins hefur einkennst af því að hverjum for- manninum á fætur öðrum hefur verfð sparkað úr embætti. Þessi innanflokksátök hafa frekar kostað flokkinn fylgi en aflað honum þess. Er nokkuð sem bendir til að þetta spark hafi annað í för með sér? „Það er nú líkast til. Þú varst hér á flokksþinginu þegar þetta fór fram og hefðir átt aö skynja stemmn- inguna. Eg skynjaði stemmninguna. Þessi barátta fór þannig fram að við Kjartan getum báðir sagt: það féll ekki neitt einasta hnjóðsyrði milli frambjóðenda, engin særandi um- mæli sem við þyrftum að biðjast af- sökunar á eftir á. Viðbrögð hans viö kosningaúrslitunum voru með þeim hætti aö álit hans hefur vaxið. Það ef- aðist enginn um það á flokksþinginu að Alþýðuflokkurinn væri heill og óskiptur eftir. Það var gífurleg stemmning. Allur kvíði um flokka- drætti og blóðsúthellingar gufaði upp eins og dögg fyrir sólu. Eg skal bæta því við að þegar karl faðir minn hringdi úr Selárdal í gær, þá rifjaði hann upp, að þegar hann var kosinn formaður Al- þýöuflokksins á flokksþingi 1952, þá voru viðbrögð flokksforystunnar talsvert önnur. Þeir gengu út allir sem einn og tóku ekki kjöri í miðstjóm flokksins. Síðan var því fylgt eftir með því að skrúfa fyrir alla sjóði og sem ritstjóri Al- þýðublaðsins kom hann að innsigluðum prentvélum. Núna er þetta eins og boðhlaups- sveit sem skiptir um kefli. Það er ekkert mál þótt skipt sé um kefli milli Hafnarfjarðar og Isafjarðar.” — Hvað var það sem gerði Kjartan óhæfan til að gegna áfram formennsku að þinu mati? „Þið á Dagblaðinu Vísi fram- kvæmið skoðanakannanir og hafið trú á að þær hafi nokkuð áreiðanlegt gildi. Ykkar skoðanakannanir sýndu að flokkurinn var kominn niður í nánast ekki neitt. I hugum okkar, sem erum sannfærðir um það að sósíaldemókratar séu trúlega meiri- hluti íslenskra kjósenda, þá er það sönnun þess, — ef þessar spár eru á- reiðanlegar, að þaö er eitthvað meira en lítið að. Flokkur jafnaðar- manna er með um það bil 3 til 6%. Með öðrum orðum: Kjartani tókst ekki að koma stefnu flokksins til skila. Það var það sem var að. Það er mitt verk að koma þessu til skila.” — Hvað er langt síðan þú fórst að hugleiða framboð á móti Kjartani?__________________ ■ „Það var fyrst í haust eða seinni hluta sumars. Þá komum við saman, virkustu flokksmennirnir í Reykja- vík, og ræddum stöðu Al- þýðuflokksins. Það var tekin saman um þetta skýrsla sem nefnd hefur verið Oþægilegar spurningar handa alþýöuflokksfólki. Við komumst aö þeirri niðurstöðu aö hvaö varðaði flokksstarfið væri ekkert í lagi. Myndin af því hverjir væru and- stæðingar flokksins og hverjir sam- herjar var heldur ekki nógu skýr. Við settum fram ákveðnar tiilögur til úr- bóta. Það er ekkert skrum, að framboð mitt var svar við ákveðinni kröfu. Þetta var niðurstaða af mjög málefnalegri umræðu innan flokksins. Þetta var ekki per- sónulegt heldur pólitískt.” — Er að vænta mikilla stefnubreytinga í framhaldi af for- mannsskiptum? „Stærsta málið sem samþykkt var á þessu þingi er stefnuyfir- lýsingin sem heitir: Hverjir eiga Island, fámenn stétt fjármagnseig- enda eða hinn vinnandi fjöldi? Þetta er mjög ítarlegt plagg og verður gefið út að loknu flokksþingi. Þetta er róttækasta stefnuyfirlýsing sem nokkur flokkur hefur gefið út, að minnsta kosti síðustu áratugina. Þetta er sönnunargagnið fyrir því aö Alþýðuflokkurinn er ekki það sem oft er upp á hann borið, staðnaður kerfisflokkur. Þetta er sönnun þess að Alþýðuflokkurinn er róttækur um- bótaflokkur. Þetta er ekki stefnubreyting, en þetta er fram- setning á kjarnanum í hugmynda- fræði jafnaðarstefnunnar, sett fram á afdráttarlausan hátt.” Undanfarin ár hefur verlð rætt um aukna samvinnu og samstarf vinstrl flokkanna. Hvaða möguleika sérð þú á sliku samstarfi? „Lítum nú fyrst á vinstri flokk- ' ana. Þeir sem nota þetta orð eru hvorki meira né minna en Alþýðu- bandalag, Framsóknarflokkur, ætli Kvennalistinn noti það ekki líka, Bandalag jafnaðarmanna og Alþýðu- flokkurinn. Eg hef sagt að Alþýðuflokkurinn eigi að skilgreina sig afdráttarlaust vinstra megin við miðju. Það sem ég á við er að ég vil ná jafnaöarmönnun- um frá Sjálfstæðisflokknum. Innan þess flokks er ótrúlegur fjöldi fólks sem aðhyllist kjama jafnaðarstefnu. Þessu fólki ætla ég aö ná til min, það á heima hjá mér. Eg vil einnig ná sósíaldemókrötunum úr Alþýðu- bandalaginu og skapa ásamt með Bandalagi ja&iaðarmanna nýtt for- ystuafl vinstra megin við miöju stjómmálanna og þetta á að verða forystuafl í ríkisstjórnum á Islandi á næstu árum og áratugum.” — En kemur samstarf þessara flokka til greina á einhverjum grund- velli eða ætlarðu bara að ná fylginu frá þeim? „Það eru málefnin sem skera úr um samstarf. Það sem skilur aö okkur annars vegar og hins vegar Alþýðubandalagiö og Kvennalistann em mjög stór mál. Við erum lýöræð- issinnaöir jafnaöarmenn. Þaö þýöir að við höfum af pólitískum ástæöum allt aðrar hugmyndir í utanríkis- og vamarmálum heldur en allaballar og Kvennalisti. Við leggjum ekki Bandaríkin og Sovétríkin að jöfnu. Við höfum þá pólitisku sannfæringu að lýðræðisríki Vesturlanda eigi að hafa samstarf í varnarmálum og þar er engin hlutleysislína til. Þó ekki væri annað en þetta og afstaðan til efnahagsmála, þá er enginn samruni í vændum milli okkar og Alþýðu- bandalagsins. Eg vil undirstrika þaö að reynsla þjóöarinnar af ríkis- Ólafur E. Friðriksson stjómarþátttöku Alþýðubandalags- ins undanfarin átta ár hefur sýnt að það er ruglaöur hentistefnuflokkur. Ég er ekkert að útiloka stjórnarþátt- töku með Alþýðubandalagi ef hið nýja stjómmálaafl jafnaðarmanna nær nægilegum styrkleika. ” — En hvaða stjórnarmynstur teldir þú æskilegast fyrir Alþýðuflokkinn miðað við stöðu mála í dag? „Þegar þessi ríkisstjóm var mynduð, sem nú situr, þá var annar kostur mikið ræddur í alvöru, Það var samstjóm Sjálfstæðisflokks, Al- þýðuflokks og Bandalags jafnaöar- manna. Eg tók mikinn þátt í þeim viðræðum. Eg átti mikinn þátt í því að semja mjög ítarleg drög að mál- efnasamningi fyrir slíkt stjórnar- samstarf. Það strandaði fyrst og fremst á heigulshætti sjálfstæðis- manna. Það var mikið fylgi við þessa hugmynd hjá frjálslyndari öflunum, sem óaði sú hugmynd að Sjálfstæðis- flokkurinn ætti aftur að fara í þetta leiðinda, vonlausa stjórnarsamstarf með Framsókn. Þeir vissu, sem kom á daginn, að það er ekki hægt að stjórnaiandinu með Framsókn. Ef þú ert að spyrja mig um stjómarmyndunarmöguleika núna þá er það fyrst og fremst einn. Það er þessi möguleiki með sjálfstæðis- flokki og Bandalagi jafnaðar- manna.” Nú varst þú talsmaður þess að Alþýðuflokkurinn tæki þátt í núver- andi ríkisstjóra þegar verið var að mynda hana. Gætirðu hugsað þér að ganga til liðs við núverandi stjórnar- flokka, eins og rætt hefur verið um? „Gjörsamlega útilokað.” — Þú hefur sagt að reka elgi „karlinn í brúnni” ef hann ekki fiskar. Nú stendur Alþýðuflokkurinn frammi fyrir því að verða mlnnsti flokkur á þingi éf marka má skoð- anakönnun DV. Hvað teldir þú viðun- andi árangur fyrlr flokkinn í næstu kosningum undir þinni stjórn? „Þar eru þaö ekki prósenturnar sem gilda. Mestu máii skiptir auðvit- að að kosningaúrslit sýni að Alþýöu- flokkurinn hafi náð sér á strik, aö traustiö á honum hafi vaxið og aö hann reynist vera raunverulegur valkostur fyrir þúsundimar sem eru sáróánægöar eftir að hafa kosið Sjálfstæðisfiokkinn og náð aftur jarð- sambandi við unga fólkið. Ég get ekki nefnt þér prósentu- tölur, en ef við náum þeim árangri aö skírskotun okkar til kjósenda þýðir að þeir svari með trausti, við náum frumkvæðisaðstöðu til myndunar ríkisstjómar, þá er það það sem gildir. En fram í tímann þýðir ekkert annað en jafnaöarmannaflokkur hafi milli 30 og 40 prósent atkvæða. Það tók Mitterand 10 ár. Gefðu mér 10 ár.”_____________________________ — Útgáfumál flokksins hafa verið í mlklum ólestri undanfarin ár og Al- þýðubiaðið vart í tölu dagblaða. Muntu beita þér fyrir einhverjum breytingum þar á?? „Já. Alþýðublaðið er alls ekki í tölu dagblaða. Alþýðuflokkurinn hefur ekkert að gera með dagblað. Stjóm- málaflokkar hafa ekkert með dag- blöð að gera. Þeir eiga ekki aö reka dagblöð. Það eru flokksbréf eða safn- aðarerindi. Dagblað er allt annar hlutur. Þið á DV eruð að reka dag- blað. Gott eða vont eftir atvikum, en það er dagblað. Min meginhugmynd er sú að Al- þýðuflokkurinn stofni nú útgáfumið- stöð. Stjómmálaflokkur hefur það erindi við fólk að hann þarf að koma á framfæri upplýsingum um hvaða svör hann hefur við vandamálum þjóðfélagsins. Kynna hvaða pólitík hann rekur. Hann þarf aö koma því á framfæri við þá hópa sem fyrst og framst hafa áhuga á þessum tilteknu málum. Alþýðuflokkurinn á að reka út- gáfumiðstöð. Við gefum út bækur, bæklinga, fjölrit, flugrit og við gefum út videospólur. Auðvitað gefum við út flokksbréf til flokksmanna, en það erekki dagblað.” — Má skilja þetta svo að þú viljir leggja Alþýðublaðið niður?? „Já, sem dagblað. Ég er ekki end- anlega búinn aö vísa á bug hugmynd- inni um vikublað. En ég legg megin- áherslu á hina fjölbreytiiegu útgáfu- starfsemi.” — Þú ætlar þá að hafna ríkis- styrknum til Alþýðublaðsins?? „Já, það eru erfiöir tímar og Al- bert veitir ekki af honum. Það væri þá bara til staðfestingar því að ég er búinn að benda Albert á nýja tekju- stofna upp á 12 milljarða svo hann geti hætt að reka ríkissjóð á eriend- um lánum. Hann getur líka fengið þennan ríkisstyrk mín vegna. — Þú hefur oft vitnað til þess að jafnaðarmennska þin stæði á göml- um merg. En nú klauf faðir þinn Al- þýðuflokkinn á sínum tíma og sjálfur hefur þú verið viðriðinn tvo aðra flokka á þínum ferli. 1 ljósi þess: kom það þér á óvart að flokksmenn skyldu treysta þér fyrir forystimni?? „Nei. Eg segi eins og Mondale þeg- ar honum var bent á það að pokamir undir augunum hefðu skaðaö hann í skoöanakönnunum: Eg hef unnið fyrir því trausti sem mér er sýnt og þaö kom mér þess vegna ekki á óvart. Þú sagðir, karl faðir þinn klauf Al- þýöuflokkinn. Eg mótmæli því. Eg vil minna á að hann starfaði fyrir Al- þýðuflokkinn í þrjá áratugi. Hann var aldrei kommúnisti. En ég var það sem unglingur. Þegar þú vísar til þess að ég hafi verið í öðrum flokkum þá er það rétt. En það fylgir aldrei skýringin. Þegar ég gekk í Alþýöubandalagið, ég var í því milli áranna 1966 og ’67, þá var það beinlínis til þess að reyna að framfylgja þeim draumi sem ég var að lýsa fyrir þér áöan, að reyna að ná saman raunsæismönnunum og verkalýðssinnunum í Alþýðubanda- laginu, sem þá vom enn kosninga- samtök, til þess að sameinast Al- þýðuflokknum. Það mistókst á ein- um örlagarikum fundi í Tónabíó árið 1967. — En kom þér á óvart að sigur þinn yrði svo afgerandi á flokksþing- inu í fyrstu umferð?? „Já, vissulega. Eg hélt að þetta yröi mjög tæpt. Allar tölur sem reiknimeistarar fóru með voru eins og blöðin sögðu, að ég myndi tapa þessu en tapa með litlum mun. Eg vissi að vísu ailtaf innst inni betur. Eins og ég hef oft sagt: Það fær eng- inn maður umflúið örlög sín. ”
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.