Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Þarf að vera smá-göldróttur svo að svepparækt takist „Þaö eru engin tvö hús eins en maöur reynir aö líkja sem mest eftir raunveruleikanum. Þaö er svipaö meö sveppina — ekki er hægt að gefa ná- kvæma uppskrift að því hvernig ræktunin fer fram. Eg held aö maöur þurfi að vera svolítið göldróttur til aö geta staðiö í þessu. Menn veröa aö skynja þetta með augum og höndum til að það geti gengið og þreifa sig áfram samkvæmt því,” sagöi Pálmi Karlsson, svepparæktandi í Reykja- vík. Pálmi hóf ræktina fyrir tveimur og hálfu ári síðan og hefur allt gengiö ljómandi vel, aö hans sögn. Sveppirnir vaxa og dafna í Ártúnsbrekkunni, en Pálmi hefur leigt helminginn af kart- öflugeymslunum gömlu sem þar eru og er hann meö eina sex skála fyrir sveppina. „Eg er gamall útgeröarmaöur frá Húsavík og hélt áfram í þeim bransa er ég fluttist til Reykjavíkur. En mér fannst erfitt að gera út hér fyrir sunnan, svo aö ég stóö uppi atvinnu- laus. Eitthvað varö maður þó aö gera. Eg fór aö blaða í auglýsingadálkum DV og sá ég þar auglýst „Fyrirtæki til sölu”. Þetta var á miðvikudegi og átti ég aö koma og skoöa eftir viku — á miðvikudegi, því fleiri aöilar höföu áhuga. En á mánudagsmorgun var ég búinn aö missa þolinmæðina og mætti þá á staðinn og sagöist ætla aö kaupa þetta. Nú, maöurinn spuröi hvort ég heföi reynslu í grænmetisrækt og sagði ég auðvitað nei, en hér er ég nú samt, ræktandi sveppi á fullu. Við framleiðum um 3 tonn á mánuði, en viö framleiddum 5 tonn á mánuöi í sumar. Viö þurftum aö láta einn skálann af hendi svo að framleiðslan datt niöur en við erum að reyna aö komast upp í sama magn og eigum aö geta framleitt 5—6 tonn á mánuöi. Viö tínum alltaf á hverjum degi og keyrum út til viöskiptavinanna í verslunum og veitingahúsum í Reykjavík og ná- grenni. Frá því ég bý til jarðveg og strái fræjunum líöa um tveir mánuöir þangaö til ég tíni fyrstu sveppina og tíni ég úr hverju beöi í um 45 daga og þá hefst sami hringurinn aftur og þarf aö búa til nýjan jaröveg og strá nýjum fræjum.” Pálmi sagöi aö sveppirnir geymdust Sveppirnir hans Pólma Karls. . . auðveldlega í opnu íláti og í kæh í hálfan mánuö og eru sveppirnir betri eftir því sem þeir eru stærri. Sveppirnir vaxa mjög hratt ef húsin eru í lagi. „Þaö þarf að vaka yfir þessu eins og ungabami,” sagði Pálmi „og passa upp á raka, hita, vökvun og fleira í þeim dúr. Við erum búnir að fá marga byrjunarskelli og má segja aö þetta hafi ekki komist á fastan punkt fyrr en í vor, en þá fór ég til Kanada til aö kynna mér svepparækt og erum viö alltaf aö læra meira. Við getum ræktaö sveppina áriö um kring hér á Islandi og ættum ekki aö þurfa aö flytja þetta inn og eyða gjald- eyri í þaö sem viö getum gert sjálfir. Grunur minn er sá aö svo sé einnig farið meö flestar aörar grænmetis- tegundir sem við þykjumst ekki geta ræktað sjálfir. Viö kaupum hálminn frá bændum — meö því skapast þar aukabúgrein. Einnig er æskilegast aö hafa ræktunina sem næst markaðnum vegna flutninga. Jú, jú, maöur vill nú alltaf stækka við sig. Ég er orðinn svolitið spenntur fyrir jarðarberjum sem er miklu betra aðrækta. Þaö er erfitt aö gera sér grein fyrir markaðnum.en nú eru til dæmis flutt inn um 200 tonn af dósasveppum á ári og held ég aö þróunin veröi sú að fólk fer frekar að kaupa ferskt. Þessi fimm mánaöarlegu tonn í sumar seldust öll og gæti ég trúaö aö markaðurinn taki alla vega viö sjö tonnum. En við flytjum ekkert út á landsbyggðina.” Pálmi selur kílóið af sveppunum á 250 krónur og er algengasta verö út úr búö 325 krónur. Pálmi sagöi aö flestir héldu að sveppir yxu í myrkri en þaö væri bara draugasaga. Pálmi sagðist vera meö um átta manns í vinnu og voru tveir þeirra staddir á staönum er blaöamaöur heimsótti hann. Annar þeirra var sonur Pálma, Finnur, sem ber titilinn yfirtínslu- meistari og hinn, Guðmundur Magnús Thorarensen, er titlaöur sölustjóri. Þeir voru ekki lengi að snara fram uppskrift að „æöislegu sveppasalati” sem þeir höfðu gætt sér á undanfarið og vildu aö menn færu ekki á mis viö. Innihaldiö er á þessa leiö: SVEPPASALAT saxaöirsveppir skomir tómatar ananasbitar SOSAASALATIÐ ma jones þynnt út meö ananassafa og kryddað meö sinnepi. Sveppabóndinn sjálfur lagöi síöan til í sveppasúpuna: SVEPPASUPA Hita vatn upp í 90 gráöur. 300 grömm af söxuðum sveppum hit' aðir í vatninu í 5 mínútur og þá færðir uppúr. Smjörbolla búin til og soðið af sveppunum notað í hana. l/81rjómi. Sveppir látnir út í. Einn biti af rjómaosti pískaöur út í. (Súpan má ekki sjóða eftir að rjóminn og osturinn em komnir út í.) Heitt snittubrauð með osti og hvít- laukssmjöri boriö fram með súpunni. -JI. Fæðuhringur Grundvöllur þess aö halda góöri heilsu er aö boröa hollan og góöan mat. Þessi matur þarf að gefa okkur nægilegar hitaeiningar og öil nauðsyn- leg næringarefni til þess aö líkaminn geti starfað á eðlilegan hátt. Til þess aö fólk gæti á einfaldan og auöveldan hátt fundiö út hvaö það ætti! aö borða til aö fá öll næringarefni úr fæöunni á hverjum degi var farið aö skipta fæðutegundunum í flokka eftir næringarefnainnihaldi þeirra. 1918 var fæðutegundum skipt í tvo flokka í Bandaríkjunum. Annars vegar voru þaö vemdar-fæðutegundir. Gildi þeirra lá í því aö þær voru auðugar af góðum próteinum, vítamínum og stein- efnum. Hins vegar voru fæöutegundir sem ekki voru til verndar og gáfu bara orku. 1921 var fæðutegundum aftur skipt upp og þá í 5 flokka í Bandaríkjunum. Þessir flokkar voru grænmeti og ávextir, kjöt, mjólk og aðrir góðir pró- teingjafar, komvörur, sykur og sykur- ríkar vörur og fita og fituríkar vörur. 1946 var flokkunum fjölgað í 7, en 1956 var fæöuflokkunum í Banda- ríkjunum hins vegar aftur fækkaö i 4 og er sú skipting enn notuð þar í landi. I Sviþjóö er fæðutegundum aftur skipt i 7 flokka. Hér á landi gaf Manneldisfélag Islands út næringarefnatöflu. Meöal annars inniheldur þessi tafla mynd af fæöuhring. Þessi fæðuhringur skiptist í 6 fæöuflokka. Fæðuf/okkar og næringar- efnainniha/d hvers um sig Ef viö skoðum fæðuhringinn á næringarefnatöflu Manneldisfélags- ins, sjáum við að hann hefur aö geyma: a) Avaxtaflokk. I þessum flokki eru ávextir, ber og ávaxtasafar. Mikilvæg- asta næringarefnainnihald þessara fæðutegunda er C-vítamín. Einnig gefur ávaxtaflokkurinn nokkuö af trefjaefnum og steinefnum. b) Græumetisflokk. I þessum flokki er allt grænmeti, auk kartaflna og rétarávaxta. Fæðutegundir hafa að geyma nokkuð af steinefnum og víta- minum. Einnig trefjaefni. Fæöutegundimar í þessum flokki eru fitusnauðar. Gulrætur skipta máli vegna mikils magns af karóten-efnum. c) Brauð og mjölflokkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.