Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 12
12 DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 680611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla.áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf„ Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helaai blað 28 kr. Mat á skoðanakönnunum Nokkrar umræöur hafa orðiö um skoðanakannanir í framhaldi af dularfullri skoðanakönnun framsóknarmál- gagnsins NT. Hér á blaðinu hefur verið bent á, að í könn- unum flokksblaða hafa stuðningsmenn viðkomandi flokks tilhneigingu til að skila sér betur en ella en stuðnings- menn annarra flokka verr. En hvers vegna fara hin flokksblöðin ekki að fordæmi NT? Væri ekki upplagt fyrir Þjóðviljann að hafa skoðanakönnun til að hressa upp á sjálfumgleði Alþýðubandalagsins? Væri ekki góður kost- ur fyrir nýkjörinn formann Alþýðuflokksins að Alþýðu- blaðið stæði fyrir skoðanakönnun, áöur en það deyr, og nýi formaðurinn gæti fagnað fylgisaukningu Alþýðu- flokksins og þakkað hana því, að hann náði kjöri? I reyndinni dæmir fólk skoðanakannanir af þeirri reynslu, sem af þeim fæst. Og hvaða reynslu? Skoöana- kannanir um fylgi flokka er auðvitað einungis unnt að dæma eftir því hversu nærri þær fara um úrslit kosninga. Þetta hefur hinn heimsfrægi frumkvöðull skoðanakann- ana, Gallup, margoft sagt. Enginn ætlast til þess, að skoðanakannanir segi nákvæmlega til um, hvernig kosn- ingar fara, en Gallup telur, að reynsla af aðferð við könn- un sé góð, ef ekki munar nema 2—3 prósentustigum á kosningaúrslitum og síðustu könnun fyrir kosningar. DV og fyrirrennarar þess hafa haft skoðanakannanir í fimmtán ár. Almenningur hefur smám saman fengið traust á þessum könnunum og hið sama gildir um flesta stjórnmálamenn. Auðvitað er orsök þess ekki bara sú, að DV haldi því fram, að þetta séu svo góöar kannanir. Orsökin er, að almenningur og stjórnmálamenn hafa séð| á kosningaúrslitum, hversu góðar þær aðferöir eru, sem DV og fyrirrennarar þess hafa notað. Samanboriö viö kosningar hafa kannanir DV verið inn- an þeirra marka, sem Gallup nefndi. Þetta er fimmtán ára reynsla. Svo dæmi séu tekin, reyndi mjög á skoðana- kannanir blaöanna fyrir kosningarnar 1978. Þá kom fram bæði hjá Dagblaðinu og Vísi, að Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag myndu vinna stórsigur en þáverandi stjórnar- flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, tapa gífurlega. Hvað gerðist? Auðvitað risu talsmenn þáver- andi stjórnarflokka upp á afturfæturna og sögðu, að kann- anirnar væru bull og vitleysa. En kosningarnar fóru eins og kannanirnar gáf u til kynna. Eftir þetta dró mjög úr gagnrýni á skoðanakannanir með þeirri aðferð, sem DV notar nú. Aftur blossuðu þó upp deilur í hörðum forsetakosningum 1980. Stuðnings- menn þeirra frambjóðenda, sem komu illa út úr skoðana- könnunum með þessari aðferð, æptu jafnvel um svindl. En svo fór, að úrslit kosninganna voru ekki nema brot úr prósenti frá niðurstöðum síðustu könnunar. Æ síðan hafa menn fengið sömu reynsluna. Svo að ný-| legt dæmi sé tekið má nefna kosningarnar í fyrra. Þá gerðu þrír aðilar skoðanakannanir á fylgi flokk- anna, DV, Hagvangur og Helgarpósturinn. Skoðanakönn- un DV reyndist fara miklu nær um kosningaúrslitin en hinar. Frávikin frá niðurstöðum DV og úrslitum kosning- anna voru að meðaltali 2,2 prósentustig á framboð. Hjá Helgarpóstinum var frávikið 2,8 prósentustig á framboð, og verst var það hjá Hagvangi eða 3,1 prósentustigs mis- munur á framboð. Skoðanakönnun DV fór meðal annars miklu nær um kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokks hvors um sig en hinar kannanirnar og mun- aði þar sáralitlu, sem hrekur þvætting óvandaðra skrif- finna síðustu daga. Haukur Helgason. Konur á skákborði stjómmálaflokkanna Pólitískt valdatafl er ekki öllum augljóst. Þetta vita þeir sem beita því. Pólitískt valdatafl er óspart not- að á lesendur blaða því í huga al- mennings er það sem stendur prent- að ætíð svolítið sannara en það sem er sagt. Og það er eins og þurfi helm- ingi meiri orku til að afsanna lygina sem skrifuð er en þá sem töluð er. Og um hvað skyldi þessi grein vera? Jú, hún er um skipulagðar herferðir sem pólitískir f lokkar fara til þess að hafa áhrif á fólk, herferðir þar sem vopn- in eru ósönn orð, vísvitandi rangtúlk- anir og getgátur gripnar úr lausu lofti. Hvers vegna grípa stjórnmála- flokkar til vopna, munda herstílana? Vegna þess að þeir eru hræddir viö fylgistap. Og um hvað skyldi þessi grein nú vera? Hún er um nýjustu til- raunir Sjálfstæöisflokksins til að kenna Kvennalistann við Alþýðu- bandalagið og tilraunir Alþýðu- bandalagsins til þess að eigna sér Kvennalistann. Kvennalistinn stofnar nú anga i æ fleiri kjördæmum. Konur flykkjast saman til þess að verja sameiginleg hagsmunamál sín óháðgömlu stjórn- málaflokkunum. I Kvennalistanum geta þær þjálfað sína stjórnmálalegu vitund með stallsystrum sinum, óþvingaðar af karlastarfsreglum og þar getur þeim vaxiö sjálfstraust sem konur vantar svo sárlega. Og þetta vita Sjálfstæöisflokkurinn og Alþýðubandalagið. Þeir sjá loksins að Kvennalistinn er til vegna þarfa kvenna, sem þeir hafa ekki sinnt, og að ef þeir eru búnir að gera sér grein fyrir þessu þá sé konum sem áður kusu þá þessi staðreynd einnig ljós. Ognúhefst taflið. Brögð í valdatafli Sjálfstæðisflokkurinn, sem ekki Kjallarinn SIGRÚN HARÐARDÓTTIR KENNARI getur státað af neinu því sem ein- kennir mest og er Kvennalistanum til mests sóma, er tilneyddur til þess að bendla hann við andstæðing sinn í þeirri von aö ljóta oröiö kommúnisti komi til með að loöa fast við Kvenna- listann og fæla burt hverja þá konu frá honum sem trúir blint á Morgun- blaðiö ellegar óttast rauöa stimpil- inn. Ég þarf ekki að rekja nánar um- mæli Morgunblaðsins um Kvenna- listann. Þau eru allt of mörgum kunn. En allt of fáum er ljóst hve hættulegt er að taka orð bókstaflega sem eru bein brögð í valdatafli stjórnmálamanna. Alþýðubandalagiö, sem réðst með hvaö mestum ótta og hvað mestri hörku á Kvennalistann þegar hann var í bernsku, sér nú hag sinn vænst- an í aö reyna að sigla undir sama flaggi með því að eigna sér málefni Kvennalistans. Þannig eigi vinstri sinnaðar konur að láta blekkjast til aö kjósa sömu karlana í Alþýðu- bandalaginu enn einu sinni á þing. Bæði þessi mismunandi herbrögð vísa til kænsku þeirra sem útlærðir eru í valdatafli. Og á hverja er verið að herja? Á konur sem eru óvarðar fyrir pólitískum kænskubrögðum og óvanar að skyggnast á bak við póli- tísk orð til þess að finna hinar huldu ástæður þeirra. Kvennalistinn er vettvangur fyrir konur til þess að læra að varast og verjast. Því Kvennalistinn afneitar kommúnistastimplinum og gengur ótrauður fram í aö verja hagsmuni kvenna og barna sem Sjálfstæðis- flokkurinn vanrækir. Og Kvennalist- inn afþakkar blíðuhót Alþýðubanda- lagsins og kýs að sigla undir eigin flaggi, merki friðar og merki kon- unnar. Slgrún Harðardóttir. A ,, Því Kvennalistinn af neitar kommúnista- ™ stimplinum og gengur ótrauður fram í að verja hagsmuni kvenna og barna sem Sjálf- stæðisflokkurinn vanrækir.” Formaður i vígahug Ekki verður k vartað yfir tíðindaleysi í íslenskum þjóðmálum, þótt vafalítið séu ekki allir sammála um ágæti sumra atburöa er hæst ber. Hver þeirra eftir annan hverfur í skugga hins næsta þannig að viðburðir sem að öðru jöfnu myndu þykja ærið umræðu- efni vikum saman gleymast á dægri eða svo. Hann mun vafalaust fó fleiri til að hlusta á sjónarmið flokksins en lengi hefur tekist, eöa síðan Vilmundur heitinn Gylfason var í eldlinu hans. Það er fyrst og fremst tvennt sem menn velta fyrir sér í sambandi við Jón. Hið fyrra er hvort hann hafi nægi- Kjallari á fimmtudegi f MAGNÚ8 BJARNFREÐSSON „Mönnum hefur eðlilega orðið nokkuð tíðrætt um það hvert hinn nýi formaður hyggist fyrst og fremst sækja sér það fylgi sem honum er nauðsynlegt að bæta við Alþýðu- flokkinn svo hann rísi undir býsna stórum orðum.” Nýr formaður hjá krötum Einn er þó sá atburöur sem orðið hefur í þjóðmálum sem ekki mun strax gleymast og það er formannskjörið í Alþýðuflokknum. Ekki fyrst og fremst vegna þeirrar spennu sem í kringum það ríkti heldur mun hinn nýkjömi for- maður áreiðanlega sjá til þess að menn muni þennan atburð um sinn. Líklega hafa úrslitin komið flestum á óvart, þar á meðal frambjóðendun- um báöum, aö minnsta kosti fram á kjördag. Það hlýtur að vera bæði Jóni og flokknum styrkur að úrslitin urðu svo ótvíræð sem raun ber vitni, því það hefði verið erfitt að fella formann flokksins meö nokkurra atkvæða mun. Hið mikla fylgi sem Jón Baldvin fékk sýnir einnig að flokksmenn hafa talið nauösynlegt að skipta um forystu og fá meiri kraft í baráttuna en verið hefur. Enginn vafi leikur á því að það mun sópa aö Jóni í formannssætinu. Hann er mikill og skeleggur baráttumaður og fer gjama á kostum í ræðustóli. legt úthald og hið síðara hvort hann gæti sín að ganga ekki of langt í bar- áttu sinni fyrir því að koma Alþýðu- flokknum inn í þjóðmálaumræðuna. Hvert hyggst hann sækja fylgi? Jón mun leggja á það höfuöáherslu að auka fylgi flokksins. Það verður ekki gripið úr loftinu, heldur þarf að sækja það í greipar annarra flokka. Mönnum hefur eðlilega orðiö nokkuö tíðrætt um þaö hvert hinn nýi for- maöur hyggist fyrst og fremst sækja sér það fylgi sem honum er nauðsyn- legt aö bæta viö Alþýðuflokkinn svo hann rísi undir býsna stórum orðum. Ef marka má yfirlýsingar á sigur- stundu þá hyggst hann víða leita fanga. Hann ætlar að egna fyrir alþýöubandalagsmenn með stór- eignaskatti og jafnari verðmæta- myndun og hefur hlotið fyrir það nokk- urt hrós formanns bandalagsins. Til sjálfstæðismanna hyggst hann biöla m.a. með því að lýsa yfir afdráttar- lausum stuðningi við NATO og dvöl varnarliðsins. Þetta kann að virðast

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.