Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. 15 Menning Menning Menning Jón E. Guðmundsson yfirlit í Norræna húsinu Leikbrúður og leikbrúðugerð er æva- gömul listgrein sem mikið hefur borið á víðs vegar í heiminum. 1 gegnum tíöina hafa leikbrúöur ekki einvörðungu verið álitnir listhlutir, heldur einnig tæki í hinni samfélags- legu umræðu. Leikbrúðumar hafa þá komið fram sem „sjálfstæðir” einstaklingar með persónulegar skoðanir á mönnum og málefnum, eins og t.d. í Brúðuleikhúsi Guignol í Frakklandi á 19. öld. En leikbrúðan er umfram allt sú listgrein sem „lífgað” hefur við og gert aö „raunveruleika” Myndlist GunnarB. Kvaran ýmsa drauma mannsins og tjáð okkur huglægar fígúrur úr sögum, ævintýrum og þjóðlegum minnum. Þvi möguleikum leikbrúðunnar eru nánast engin takmörk sett. Frumkvöðull Jón E. Guömundsson er f rumkvöðull í leikbrúöugerö hér á landi. í áratugi hefur hann mótað brúður og gefið líf þekktum persónum úr íslenskum og erlendum ævintýrum og leikritum. Þaö er því mikil ánægja að skoða sýningu listamannsins sem nú stendur yfir í kjallara Norræna hússins. En þar gefur að líta leikbrúður og vatnslita- myndir sem Jón hefur skapaö á síðast- liönum áratugum. Brúðugerö Jóns. E. Guðmundssonar er mikil persónusköpun og nátengd bæði málverkinu og höggmyndinni. Hann sker í tré, dregur fram sérkenni sérhverrar brúöu og gefur þekktum sagnapersónum viðeigandi útlit. Brúður Jóns eru því nú orðnar sam- ofnar mörgum sögum. En þegar betur er að gáð er hér á ferðinni fígúratífur expressionismi, eins og fram kemur í skúlptúrum listamannsins. Efnið heldur sínum séreinkennum og virkni á sama tíma og það lýsir á einkar raunsæjan hátt ýmsum þáttum úr mannlífinu. Höggmyndir lista- mannsins, sem vekja mikla athygli á sýningunni, eru sagnatoyndir. Þær hafa að geyma ákveðnar sögur sem listamaöurinn meitlar í form og efni. Fyrir alla Þá sýnir listamaðurinn f jölda vatns- litamynda. Þar gefur að líta landslags- sýn sem unnin er af mikilli tækni og trúmennsku við mótífið. Þetta eru oft expressionískar stemmningsmyndir sem oft gætu verið sögusvið fyrir þjóðleg ævintýri og sögur brúðuleik- hússins. Sýning Jóns E. Guðmundssonar er einkar lifandi og skemmtileg. Og vist er að nú ættu listunnendur á öllum aldri að líta inn í kjallara Norræna hússins og kynnast ævistarfi lista- mannsins. -GBK. : ' : ■ ■ : LeikbrúOa eftir Jón E. Guðmundsson. Höggmynd eftir Jón E. Guðmundsson. ijósm. GBK. k 1 TIIBDÐ . ÆA © 97" 114- tfvasiuiHfy^ B/acksiOecker ventla-og sætavélar fyrirliggjandi álager SDO150 ventlavél, kr. 60.301,- 6337 sætasett, kr. 28.757,- Greiðslukjör eða staðgreiðsluafsláttur. rsteinsson jonnsonhf ARMÚLA 1 - SÍMI68-55-33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.