Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. Xts t jjrctiil Kremlarfræöi eru sérstök vísindi sem veröa æ meira áberandi eftir því sem meiri harka sýnist færast í valdabaráttuna í Kreml. Gorbatév, Rómanov og hvaö þeir heita allir; þeir boöa ekki blaöamannafundi til þess aö klekkja hver á öörum, og at- kvæðagreiöslur fara ekki fram til aö sýna styrk þeirra, ó nei. Aftur rýna Kremlarfræöingar ákafir í myndir frá opinberum athöfnum; hver stendur viö hliö hvers, hver er úti í homi, af hverjum birtist mynd í Prövdu og hvar, hver fer í leikhúsið meö Téménkó? Og nú hafa þessir spek- ingar fengiö nýtt viðfangsefni og aukiö viö fræöi sín; hér er átt viö klæöaburð sjónvarpsþula. Raunar er orðið þó nokkuö síöan vestrænir sendimenn í Moskvu tóku eftir því aö þegar fréttaþulir í sjón- varpinu klæöast svörtu þá boðar það yfirleitt himnaför einhvers flokka- broddanna. Þegar þulurinn þann 10. nóvember síöastliöinn birtist á skerminum svartklæddur frá hvirfli til ilja þá fór kliöur um blaðamenn og diplómata. Hver haföi nú horfiö á vit Leníns og Stalíns? Svariö lá svo sem í augum uppi: Ustínov marskálkur, vamarmálaráöherra Sósíalísku ráðstjómarríkjanna. Hann haföi ekki verið við athöfn á Rauða torginu nokkrum dögum fyrr þegar minnst var afmælis byltingarinnar, en missi hátt- settir Sovétleiötogar af þvílíkum viö- buröi fara myllur Kremlarfræöinga aö mala ósparlega. Blaöamenn tóku aö ydda blýanta sína og hripa á blað minningarorö um Ustínov. Næsti dagur rann upp eins og lög gera ráö fyrir og hvað var nú á seyöi? Annar sjónvarpsþulur las upp fréttirnar og hann var klæddur peysu sem var tvílit: svört öörum megin en hvít hinum megin. Haföi marskálkur- inn snúið vöm í sókn? Blaðamenn- irnir brutu odd af nýydduðu oflæti sínu og biöu meö minningarorðin. Biöin reyndist skynsamleg. Enn leiö heill sólarhringur og næst á dag- skránni voru fréttir. Þulurinn var að þessu sinni kvenkyns og iklædd skrautlegri blússu í öllum regnbogans litum, frá hárauöu á hægri ermi og til dökkblárrar vinstri ermar. Þaö var gærdeginum ljósara aö marskálkur- inn haföi sannlega ekki látið í minni pokann fyrir sjúkdómum og elli, hann hafði bersýnilega aldrei veriö hress- ari! Diplómatar sneru sér aftur aö kokkteilglösum og blaöamenn fleygöu blýöntum sínum út í horn. 1 Moskvu er það sem sé ekkert gamanmál aö rífa svörtu fötin sín út úr klæðaskáp aö morgni. Þama Júríj heitinn Andrópov í sínu fínasta pússi. austur frá lýtur þjóðfélagiö allt svo ströngum og óbifanlegum siöareglum, og ekki síst uppi í hæstu hæðum, aö venjuleg föt verða óvænt aö einkennisbúningi og svolitlar breyt- ingar á klæðaburði leiötoganna eða annarra sem alþýðan sér geta veriö til vitnis um stórviöburöi. Kremlar- fræöingar eru nú sem óöast aö veröa sérfræðingar í fatatísku ofan á allt annaö. Og rétt eins og Kremlarfræöingar fylgjast meö Kremlverjum þá hafa Kremlverjar vakandi auga með Kremlarfræðingunum. Eftir þessa uppákomu í sjónvarpinu spyr nú hver Kremlarfræðingur annan: Var verið aö gera gys aö okkur, eöa er þetta nýtt og viðsjárvert skeið í blekkingar- starfi Sovétmanna? Spyr sá sem ekki veit. Kannski ískrar nú í Gorbatév hláturinn um leið og hann hnýtir á sig vandlega válið hálstau, kannski skellihlær Rómanov um leið og hann rennir löngunaraugum til keisarabúnings nafna sinna á myndum.. . Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK—84024. Byggja og innrétta skrifstofuhús svæðis- stöðvar á Hvolsvelli. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagnsveitna ríkisins Austurvegi 4, Hvolsvelli, og Laugavegi 118, Reykja- vík, frá og með mánudegi 3. desember 1984 gegn kr. 5.000 skilatryggingu. Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi merktu RARIK-84024 skrifstofuhús RARIK Hvolsvelli, á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins Laugavegi 118, Reykjavík, kl. 14.00 miðvikudaginn 2. janúar 1985 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, er þess óska. Reykjavík, 29. nóvember 1984, Rafmagnsveitur ríkisins. ITT Ideal Color 3424, -fjárfesting í gæöum á stórlækkuöu veröi. Vegna sérsamninga við ITT verksmiðjurnar í Vestur Þýskaíandi hefur okkur tekist að fá TTT takmarkað magn af 22" litasjónvörpum á stóríækkuðu verði. Verö ð 22" ITT STGR. litsjónvarpi m/fjarstýringu 33.970,- Sambærileg tæki fást ekki ódýrari. ITT er fjárfesting í gæðum. SKIPHOLTI 7 SÍMAR 20080 26800 HAUSTHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 1984 VINNINGAR: 1. Greiðsla upp í íbúð kr. 350.000. 2. Greiðsla upp í íbúð kr. 300.000. 3. Bifreiðavinningur kr. 200.000. Skrifstofan er opin frá kl. 9-22. SIMI82900. Vinsamlega gerið skil sem allra fyrst SÆKJUM - SENDUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.