Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 15
DV. MlÐVIKUDAGUR 22. MAI1985. 15 Ólafur Lárusson — Nafnlaust, 1985. Menning Menning Menning Andlit, hendur, sköp Sýning Ólaf s Lárussonar að Kjarvalsstöðum I rúman áratug hefur Olafur Lárus- son myndlistarmaöur verið fylginn sér á sviði gjöminga, aksjóna ýmiss konar og annarra myndlistarframkvæmda með yfirbragði nýlistar. Aherslur og markmið þessara verka hafa verið breytilegar og ekki alltaf auðveit að átta sig á hugmyndalegri undirstöðu þeirra — a.m.k. ekki fyrir þann sem hér pikkar á ritvél. Þó sýnist mér gerlegt að rekja þróun þessara verka Olafs, a.m.k. í grófum dráttum, án þess aö leggja dóm á gildi þeirra eða vægi í myndlistarlegu tilliti. Þau hafa oftar en ekki verið byggð upp sem nokkurs konar átök eða árekstrar milli listamannsins annars vegar og umhverfisins hins vegar. I eldri verkum notar hann náttúruna sem eins konar mæliker á tOfinningar. Gengur hann á vit hennar, lætur hana vinna með sér verkin eöa storkar henni með því að gefa sig henni á vald um stund- arsakir. Mannraunir Með tímanum veröa gjörningar listamannsins ákafari og jafnframt sjúbjektífari. Hann býr til ails konar hindranir til að streitast á móti þeim, að því er virðist upp á líf og dauöa, leggur á sig mannraunir í líki frum- stæðra ritúala og gengur í skrokk á sjálfum sér. Olafur var reyndar ekki einn um þessa hluti á siöasta áratug því ritúöl og mannraunir tíðkuðust mjög meðal evrópskra gjömingalista- manna á þeim tíma. En þrátt fyrir þær ytri aðstæður sem listamaöurinn skapaöi sér til aö glíma við í eigin persónu þá held ég aö þessir gjömingar hafi fýrst og fremst verið innhverf verk og án víðari skír- skotunar, glíma við eigið sjálf. Það fannst mér koma berlega í ljós í seinni speglaverkum listamannsins en þar tekst hann á við spegilmynd sína sem hann hylur, skreytir eða brýtur. Hvar er gangverkið? Ef greina má einhver tengsl milli fyrri gjörninga Olafs og hinnar undar- legu sýningar hans að Kjarvalsstöðum þá liggja þau sennilega I þessum tilvísunum í sjálfið eða egóið. Sýningin er einmitt uppfull af andlitum, sem að vísu ganga undir nöfnum ýmissa goða og náttúrukrafta, en eru vísast nokk- urs konar staðgenglar egósins. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson En þótt tengslin séu fyrir hendi er ekki hlaupiö að því að finna í þessari sýningu gangverkið. Fyrir það fyrsta er hún allt of stór, yfir 200 ítem, og mörg smærri verkin hverfa eins og krækiber í hinum staönum. I talsvert smækkaðri mynd hefði sýningin tekið sig vel út á heimavígstöðvum Olafs, Nýlistasafninu. Vart er það stuðningsyfirlýsing við þá stofnun, að einn af forsvarsmönnum hennar skuli kjósa aö sýna aö Kjarvalsstöðum. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda mynda, er þetta samt furðanlega fá- breytt sýning og einhæf. (Jtrás Sömu mótífin ganga tiibreytingar- lítið í gegnum hana; stílfærð andlit, andlit í prófíl, hendur, sköp. Nú eru tilbrigði um stef leyfileg í myndlist eins og í tónlist, en þó ætlast maður til meiri hugkvæmni í úrvinnslu þeirra en verður vart í my ndverkum Olaf s. Helst er það í nokkrum stærri myndum að listamaðurinn breytir til með því aö klippa pappír og rifa og gefa honum þannig snefil af þrívídd — og með því aö magna upp teikninguna. Þá er mér ekki örgrannt um að sumar þeirra vakni til lífsins. Eg efa ekki að listamaðurinn hafi haft einhverja þörf fyrir þessa útrás i anda hins „nýja málverks”. En sú þörf skilar sér ekki nógu vel til áhorfand- ans, sem þarf að fá hana yfirfærða f margrætt, hugmyndaríkt myndmál, átakamikla teikningu og maleríska hugsun. -AI. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir aprílmánuð 1985, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 28. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. júní. 20. maí 1985, Fjármálaráðuneytið. /eistu það... ? :g stend í bakstri og matseld á hverjum degi, meira íða minna. Ég legg mikið upp úr að steikin verði eins >g ég vil hafa hana og kökurnar verði jafnbrúnar. aegar ég fékk mér nýju innréttinguna valdi ég mér Jlomberg tækin frá Einari Farestveit. Þau eru ilveg dýrðleg. Þú ættir að skoða þau. Hofum til solu notaðan Citroén BX 16 TRS árg. 1984, bíl sem er í fyrsta flokks ástandi, ekinn aðeins 15.000 km, svartur og fallegur. Upplýsingar hjá Globus h/f, símar 81555 og 82739. Opið laugardaga frá kl. 2-5. CITROÉN* CITROÉN* CITROÉNA Globusr CITROÉN^ NOTAÐUR CITROÉN NÆSTBESTI KOSTURINN STEINOLÍUOFNAR KEROfUN Moonlighter: Radiant 26: Radiant 36: 2,11 kw. Brennir 6,4 Itr. á 26—36 klst. Hentar fyrir ca. 27 mJ. 1,81 kw. Brennir 3,4 Itr. á 19—27 klst. Hentar fyrir ca. 20 m2. 2,92 kw. Brennir 4,9 Itr. á 16—23 klst. Hentar fyrir ca. 34 m2. Skeljungsbúðin Siðumúla33 símar81722 og 38125 Vapona og Shelltox Lyktarlausu flugnafælurnar FÁST Á ÖLLUM HELSTU SHELL-STÖÐUM 0G í FJÖLDA VERSLANA UM LAND ALLT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.