Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1985, Blaðsíða 1
!GAR OG AFGREIÐSLA Sil DAGBLAÐIÐ —VÍSIR 149. TBL/- 75. og 11. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 4. JÚLI 1985. Bréf Shultz utanríkisráðherra til Geirs: HUGMYNDIR UM SKAÐA- BÆTUR TIL ÍSLENDINGA I bréfi Shultz, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, semGeir Hallgríms- syni utanríkisráðherra barst i fyrradag, er reifuð hugmynd Banda- ríkjamanna um skaðabætur til Islendinga. Vegna vöruflutninga vamarliðsins á milli Islands og Bandaríkjanna með Rainbow Navi- gation skipafélaginu hafa íslensk skipafélög tapað stórfé að undan- förnu. Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herra óskaði eftir svari frá Siiultz, utanrikisráðherra Bandarikjanna, um lausn vöruflutningadeilunnar fyrir síðustu mánaðamót. Eftir áreiðanlegum heimildum DV er ekki sett fram nein efnisleg lausn deil- unnar í bréfi S.iultz en stungiö upp á viöræðufundi deiluaðila á Islandi fljótlega. Auk þess sem hugmyndin um skaðabæturnar er reifuð í bréfinu. Bréf bandaríska utanríkisráðherr- ans mun Geir Hallgrímsson hafa lagt fyrir á ríkisst jórnarfundi í morgun. -JH. t t t t t t t t t t t t t t t t t Kísiliðjan: HAGNAÐUR 10,5 MILUÓNIR KRÓNA Hagnaður af rekstri Kísiliðjunnar nam 10,5 milljónum króna á síðasta ári. Þetta kom fram á aðalfundi fyrir- tækisins sem haldinn var á Hótel Húsa- víkígær. Fram kom að efnahagur Kísil- iðjunnar hf. hefur batnað til mima á sl. tveim árum og verður að teljast nokkuð góður. Eigið fé fyrirtækisins nemur nú 177 milljónum króna. Skuldir nema samtals 33 miUj. króna. Markaðshorfur eru taldar góðar. Deilan um kísilnám úr Mývatni setti nokkura svip á fundinn. Stjómarfor- maður Kisiliðjunnar, Sigurður Rúnar Ragnarsson, gagnrýndi Náttúruvemd- arráð fyrir að neita að taka þátt í rannsóknarnefnd sem iðnaðar- ráöherra skipaði til að rannsaka hvaða áhrif kísilgúmám heföi á lifriki Mývatns. 1 ályktun frá stjóminni er þeirri á- skorun beint til menntamálaráðherra og iönaöarráðherra að láta ekki laga- lega þrætu hindra að rannsóknir geti hafist á vatninu. -KMU/Húsavík. Loðnuveiöar að hefjast — um 508 þúsund lestir til að byrja með Leyft verður að veiða um 508 þúsund lestir af loðnu á komandi vertíð sem hefst 1. ágúst. Þetta er bráðabirgða- tala og aukning frá í fyrra, þegar leyft var í upphafi að veiða um 300 þúsund lestir. Alls fá 48 loönuskip aö veiöa loðnuna, skipta kvótanum á milli sín. Þrátt fyrir að í fyrra hafi fyrst verið leyft að veiða 300 þúsund tonn var kvót- inn aukinn nokkrum sinnum. Hann endaöi í 920 þúsund tonnum frá ágúst- byrjun tilmarsloka. Ekki tókst þó að veiða upp í kvótann, alls bámst aö landi 773 þúsund lestir af loðnu á þessu tímabili eða um 150 þúsund minna en mátti veiða. -JGH. Landsbank- inn í laxi Þoir Björgvin Vilmundarson, bankastjóri Landsbanka islands, og Kristinn Finnbogason, sem sœti ó í bankaróði Landsbankans, voru hinir hrassustu þegar DV bar að garði við Þveró í Borg- arfirði í gasrmorgun. Undanfarna þrjó daga hefur Landsbankinn verið með óna ó leigu. Við veiðarnar voru menn ó vegum bankans og er talið að kostnaður vegna veiðitúrsins nemi um hólfri milljón króna fyrir þessa þrjó daga. -SK. DV-mynd Gunnar Bender — sjá nánarábls.2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.