Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985. 15 Menning Menning Menning Menning Á ferö með glugga norduríland —Jens Urup gestur Septem’85 Mótettukórinn: áKjarvalsstöðum „Eg staldra hér viö og sýni gluggana áöur en ég fer með þá noröur á Sauöár- krók þar sem þeir veröa í kirkjunni,” sagði danski listamaðurinn Jens Urup sem á þessu hausti hefur verið gestur Septemhópsins á Kjarvalsstöðum. Urup veröur að teljast fjöllistamaö- ur í sinni grein. Eftir hann liggja verk á flestum sviðum myndlistar. Hann hefur fengist viö glerlist, grafík, vefn- aö og málar svo þess á milli með olíu. Þekktastur er hann þó fyrir kirkjulist- ina og þar ber steindu gluggana hæst. Sem dæmi má nefna að á árunum 1961 til 1967 vann hann fjóra 50 fermetra stóra glugga fyrir kirkju í Esbjerg. Gluggarnir í Sauöárkrókskirkju eru smáir á viö þaö stórvikri en smátt er jú fagurt. En af hverju glugga í Sauðárkróks- kirkju? Það kemur í ljós þegar Urup svarar því aö hann er tengdari lslandi og Islendingum en ætla mætti í fyrstu. „Konan mín, Guðrún Sigurðardóttir, er frá Sauðárkróki og ég hef oft verið þar. Annars er þaö sóknarnefndin á staðnum sem bað mig að vinna þetta verk. Kostnaðurinn er síðan greiddur af nokkrum velunnurum kirkjunnar,” sagði Urup. Þar með er líka komin skýringin á því að listamaðurinn bregður fyrir sig þessari ágætu íslensku þegar hann viU þaö við hafa. Og hann heldur áfram: „Ég sýndi hér síðast í Norræna hús- inu árið 1975. Það var yfirUtssýning með olíu- og grafíkverkum. Það er aUt- af gaman að koma til Islands. Ég er bú- inn að vinna nokkuö lengi að gluggunum í kirkjuna á Sauðárkróki og orðinn nokkuð spenntur aö sjá hvernig þeir taka sig út þar sem þeir eiga að vera í framtíðinni. Ég kom í vor með frum- myndimar í fuUri stærð á pappír. Mér sýndust þær koma nokkuð vel út í kirkjunni þannig að ég hélt áfram að vinna. Það er þó aldrei hægt að sjá það endanlega fyrr en glerið er komið i gluggana,” sagði Urup. En Urup hefur á löngum ferU sínum fengist við fleira en glerið. Veldur það engum erfiðleikum að skipta oft um efniviö? „Ja — nei, eiginlega ekki. Það skipt- ir ekki öUu hvaða efniviður er notaður því allt er þetta náskylt. Ég einbeiti mér þó að einu efni í einu. Síðan skipti ég yfir í annað til að fá hvUd frá því sem ég hef verið að gera. Ég held að það sé nauösynlegt að kunna tökin á fleiru en einu efni tU að forðast stöðn- un.” Þegar Urup hefur lokið verki sínu á Sauðárkróki tekur viö undirbúningur Jens Urup — ötull vifl steinda glerið. fyrir sýningu á oUumálverkum í Kaup- mannahöfn síðar í haust. Jafnframt hefur hann tekið aö sér aö gera glugga í kirkju heilags Tómasar í þeirri sömu borg. „Það er mikið beðið um steinda glugga, bæði af einstaklingum og opin- berum fyrirtækjum,” sagði Jens Urup að lokum. GK. Ertu klikkaður? Ágengt viðtal við Þráin Bertelsson. Tíska: Föt í skólann Tveir unglingar velja sér föt fyrir veturinn. Lífsreynsla: Fast þeir sóttu svallið Diddi bíló segir frá skemmtunum ungmenna í Keflavík og víðar fyrir tuttugu árum. \smtm BLAÐSÖLUSTÖÐUM Hljómplata fyrirjólin Mótettukór Hallgrímskirkju er um þessar mundir að hefja fjórða starfsár sitt. Síðasta starfsári lauk með tónleik- um á Akureyri og Húsavík í júní sl. og í mars voru sérstakir Bach-tónleikar í samvinnu við kóra Hamrahlíðarskóla. Einnig var flutt kantata á páskum. Síöustu vikur hefur Mótettukórinn sungiö jólalög inn á plötu ásamt Kristni Sigmundssyni, en það er bóka- forlagið öm og örlygur sem gefur út. Upptökum er nú lokið og framundan er hefðbundið vetrarstarf kórsins. Hátíðatónleikar verða haldnir sunnudaginn 27. október og verða þá fluttar kantötur, Ein feste Burg ist unser Gott, Christ lag in Todesbanden og einsöngskantatan Jauchzet Gott, sem Margrét Bóasdóttir syngur. Eru þessir tónleikar eins konar lokaframlg Mótettukórsins á Bachárinu. Fleiri tónleikar eru síðan ráðgerðir eftir ára- mótin og verður síðar í haust tekið til við að æfa nýja og fjölbreytta efnisskrá með mótettum frá ýmsum tímum. Söngfólk vantar nú í allar raddir Mótettukórsins þar sem ákveðið hefur verið að stækka kórinn. Skilyrði fyrir inntöku er að menn hafi einhverja reynslu af kórstarfi, séu á aldrinum 16 til 40 ára og æskileg er kunnátta í nótnalestri. Æfingar eru á miðviku- dagskvöldum og laugardagsmorgnum. Hörður Askelsson, söngstjóri Mótettu- 'kórs Hallgrímskirkju, veitir nánari upplýsingar í síma 32219 og inntöku- próf verða síðan föstudaginn 13. september kl. 18 til 20 og laugardag 14. kl. 11 til 14 í Hallgrímskirkju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.