Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1985, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR12. OKTOBER1985.
Aðalástæður fyrir drykkju ungs fólks:
Drekka sigígottskap
eða til að ná kjarknum
Sú ástæöa sem ungt fólk segir
helsta fyrir neyslu áfengis er að
áfengið „komi manni í gott skap”.
36,4% þess gríðarlega fjölda sem
drekkur, og játaði það í könnun í
fyrravor, segir þetta aðalástæðuna.
17,5% sögðust vera aö losna við
feimnina, ná kjarki.
Þá sögðu 15,1% að þeim fyndist
áfengi gott á bragðið. 10,8% drekka
vegna þess að félagar þeirra gera
það. Síðan koma aftur allmargir á
svipuðum báti og þeir fyrstnefndu.
9,7% sögðust nefnilega drekka til
þess að gleyma vandræðum og leið-
indum og 8,2% til þess að auðvelda
sér að ná sambandi við hitt kynið.
Loks sögöust 1,7% ekki vilja vera
öðruvísi en hinir og 0,5% sögöu það
„töff” að drekka. Yfir 90% af þeim
2.136 sem gáfu svör í umræddri könn-
un neyta áfengis. Þeir fáu sem ekki
drekka telja áfengisneyslu skaðlega,
áfengi vont, drukkið fólk leiðinlegt,
hættu á að verða alkóhólisti, svo
helstu ástæðna sé getið.
36,7% þeirra sem drekka segjast
gera það á skemmtistöðum, 36,4%
heima hjá vinum og 15,8% heima hjá
sér. HERB
Djúpivogur:
OTTAST UPPBOÐ
ÁTOGARANUM
Fré höfninni á Djúpavogi. Togarinn Sunnutindur við bryggju.
DV-mynd GVA.
„Við erum illa staddir gagnvart Rík-
isábyrgðasjóði,” sagði Gunnlaugur
Ingvarsson, framkvæmdastjóri Bú-
landstinds hf. á Djúpavogi, sem gerir
út togarann Sunnutind SU-59.
Togarinn var keyptur þriggja ára
gamall frá Noregi árið 1981. Kaupend-
ur fengu dollaralán í gegnum Ríkis-
ábyrgðasjóð fyrir 80 prósentum kaup-
verðs.
„Ríkisábyrgðasjóöur hefur ekki
gengið að þeim skipum sem hann hefur
haft veö í eins og Fiskveiðasjóöur hef-
ur gert,” sagöi Gunnlaugur.
„Við óttumst að það verði látið
sverfa til stáls. Það myndi veröa sama
og hnefahögg fyrir byggöarlagið,”
sagöi Gunnlaugur.
Hann vildi ekki gefa upp hversu
miklar skuldir togarans væru. Hann
sagði þó að þær væru ekki undir 100
milljónum króna og ekki yfir 150 millj-
ónum króna.
„Vegna hækkunar dollarans á und-
anförnum árum hafa skuldirnar vaðið
langt upp fyrir matsverö skipsins. Nú
hefur dollarinn verið að falla og skipið
á þá meiri möguleika.
Togarinn hefur aflaö mjög vel —
verið með fengsælustu skipum á Aust-
fjöröum. Hann hefur verið alveg gríð-
arleg lyftistöng fyrir atvinnulíf hér,”
sagöiGunnlaugurlngvarsson. -KMU.
HÁTÍÐNI-HÖGNI
Steingrímur
munboða
hinn gullna
meðalveg
— í stefnuræðu sinni á Alþingi
Forsætisráðherra telur að ekki sé
hægt að ná svo miklum samdrætti í
þjóðarútgjöldum á næstu tveimur
árum að náð verði viðskiptajöfnuði.
Á almennum stjómmálafundi Fram-
sóknarflokksins í gærkvöldi sagðist
hann hafa látið kanna hvað þyrfti að
gera til að ná viðskiptajöfnuði á næstu
tveimur árum. Þá mættu þjóðarút-
gjöldin ekki hækka neitt — helst fara
niður fyrir það sem þau eru núna.
Þetta myndi hafa í för með sér
rýmandi kjör í landinu. Hins vegar ef
haldið væri áfram á þeirri braut aö
hækka þjóðarútgjöldin um 3%, eins og
tvö undanfarin ár, myndu erlendar
skuldir fara hraðvaxandi. Þær yröu
57% af þjóðarframleiðslu 1988, ef sú
leiö yrði valin, en eru nú 53%.
Steingrímur sagöi að niðurskurðar-
möguleikar væru litlir. I stefnuræðu
sinni, sem hann flytur á miðvikudag-
inn, mun hann boöa millileið sem felur
í sér minni aukningu þjóðarútgjalda en
3% en samt yfir 0%. Ef þessi leið
verður valin mun kaupmáttur launa
frekar lagast og að minnsta kosti ekki
minnka á næstu árum. „Þetta er erfið
braut en mikilvægt að þjóðin sameinist
um þessa skynsemisbraut,” sagði
Steingrímur. Ef við rötum þennan
gullna meðalveg munu erlendar
skuldir lækka og meira verður eftir í
landinu til að bæta kjörin.”
-APH.
Leiðrétting
I viðtali við Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra í DV í gær var
vitnað í 33. grein húsnæðislaganna, c-
lið. Þar var einni setningu ofaukið.
Niðurlag c-liös „og aðra sem ekki hafa
aðstöðu til þess að eignast eigið hús-
næði við hæfi” er ekki lengur að finna í
þessum lögum. Þessi liður var felldur
úr frumvarpinu um húsnæðismál á
sínum tíma einmitt vegna deilna um
rétt Búseta til láns úr byggingasjóöi. —
Það skal tekið fram að lagagreinin var
ekki höfð eftir Alexander í nefndu við-
tali- -APH.
Verð frá kr. 5.750,- m/s
Fælir burt öll meindýr
því hann sendir frá sér hljóðbylgjur sem
meindýr þola ekki en eru skaðlausar mönnum og gæludýrum.
Tækið er til í fjórum stærðum og er fyrir 220 volt.
Nánari upplýsingar í síma 23150. POStSendum
Radíóverkstæðið Sónn Einholti 2 — Reykjavík.