Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Blaðsíða 31
DV. MIÐVTKUDAGUR 29. JANÚAR1986. 31 Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjömu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iönaöarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8^ eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársQórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, -nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fímm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skýlda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í janúar 1986 er 1364 stig en var 1337 stig í desember og verður 1396 í febrúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársíjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÖÐA innlAn með sérkjörum sjAsérlista _________________21.-31.01. 1986 fill iiíi Íi iiii ii INNLAN ÚVERUTRYGGÐ SPARISJðÐSBÆKUR úbundin innstaaöa 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25,0 26.6 25.0 25.0 23.0 23,0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán. uppsögn 31,0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0 12 mán. uppsögn 32,0 34.6 32.0 31.0 33,3 SPARNAÐUR - LANSRÉnUR Sparaö 3 5mán. 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 Sp.Smán.ogm. 29,0 26.0 23.0 29.0 28.0 innlAnsskIrteini Til 6 mánaöa 28,0 30.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avlsanaraikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlauparaikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10,0 INNLÁN verdtryggð SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán. uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 innlAn gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarlkjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Starlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 Vastur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krönur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLAN úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (fonraxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIÐSKIPTAVlXLAR (forvaxtir) 34.02) kga 34.0 k0« 32.5 kga kga kg« 34.0 ALMENN SKULDABREF 32.0 3) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kga 35.0 kga 33.5 kg> kga kga 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 ÚTLAN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF AÖ21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Langrí an 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTlAN til framleiðslu SJANEDANMALS!) 1) Lán tíl innanlandsÉramleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutningS, í SDR 10%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,ffi%, í vœtur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafiiaxfirði, Kópavogi, Keflavtk, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bœði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Sandkorn Sandkorn Nú er öldin önnur en þegar giktarlamparnir urðu Berja á Steina Hörö samkeppni banka og sparisjóða, rikissjóðs og verðbréfasala um sparifé landsmanna þykir stund- um nálgast mörk velsœmis- ins. Fyrir skömmu birtu sparisjóðirnir samanburð á innlánskjörum sínum og bankanna til þess að sýna fram á að sparisjóðirnir hefðu boðið best á síðasta ári. Enn styttra er siöan Útvegsbankinn tók Búnað- arbankann í karphúsið i auglýsingu. Hvort tveggja olli taugaæsingi og Útvegs- bankinn varð að taka orð sín aftur. f fyrra gerði fjármáia- ráðuneytið alvarlega at- hugasemd við auglýsingar Verslunarbankans sem vildi ná i fé úr spariskír- teinafjallinu. En allir bank- ar og sparisjóðir auk verð- bréfasala bíða við þetta fjall til þess að klípa úr þvi um leið og eitthvað losnar. Nú er það Útvegsbankinn sem gengur einna lengst í því að auglýsa sérstaka þjón- ustu ráögjafa síns við að leysa út spariskírteini ríkis- sjóðs og leggja andvirðið inn á önd vegisreikning. Þetta þykir ögn kúnstugt vegna þess að þegar fram- tíð Útvegsbankans verður ráðin eftir Hafskipsævin- týrið blasir við að rikis- sjóður verður að leggja honum til nokkur hundruð milljónir króna. Útvegs- bankinn sækir þannig að ríkissjóði úr tveim áttum. Til hvers? Litill piltur kom með hekludótiö sitt heim úr skólanum um daginn. Það reyndist vera velktur hnyk- ill, sem einhvem tima hafði verið gulur, neglingsföst flækja og heklunál stungiö í gegnum aUt saman. Við þetta hafði strákur verið látinn dunda undanfarna handavinnutima, kennar- anum en þó einkum sjálf- um sér til óblandinna leið- inda. Þaö er annars undarleg ráðstöfun að láta krakka- gemlinga, sem varla geta reimað skóna sina skamm- laust, sitja lon og don með hekludót. Látum vera þótt bömum sé kennt að hand- leika nál þegar þau em fær um það án þess að skaða sjálf sig eða aðra. En að setja þau niður við hann- yrðir gengur eiginlega út yfir ÖU bjartsýnismörk. Enda sagði sá stutti alvöru- þrunginni röddu þegar hann afhenti móður sinni afurðimar: „Þama fór langur tími fyrir lítið.“ Landshlutarair keppast nú um fuUtrúa meðal ís- lenskra elskhuga. Þeir þekkja sína Margir hafa velt vöngum yflr bókinni „íslenskir elsk- hugar“ sem kom út nú fyrir jóUn. Menn em auðvitaö sprengforvitnir að vita hveijar sögupersónurnar séu. En eins og fjölvisir vita koma allmargir karlmenn þar fram nafnlausir og segja á hispurslausan máta frá afskiptum sínum af konum. En nú er aðeins farið að rofa til í nafnlausa fmm- skóginum. Þaö þykjast nefnUega ýmsir þekkja sína. TU að mynda segir Vestfirska fréttablaðið að í bókinni reki tveir þekktir borgarar á Isaflrði kynni sín af „hinu fagra kyni“. Líkast tU fara landshlut- arnir aö keppa um þaö, upp úr þessu, hver eigi flesta fuUtrúa í bókinni, því aUir vUja þeir eiga afreksmenn í öUum iþróttagreinum. Gagnslítil pera Það er reyndar orðið nokkuð síöan þessi saga gerðist. En hún er ekki verri fyrir það, því hún er dagsönn, þótt ótrúleg sé: Aður en ljósabekkimir komu til sögunnar fór fólk að duga. ýmsar leiðir tU að fá brúnan Ut á kroppinn. Tiökaðist þá tU dæmis að setja sérstakar pemr í giktarlampa og þess háttar tæki og Uggja svo undirþeim. Kona ein, búsett fyrir austan 5aU, fór einhverju sinni á rafmagnsverkstæði í heimabæ sinum. Var þar við afgreiðslu ungur mað- ur. Konan spurði hann hvort hann ætti perur sem gæfu brúnan lit. Af- greiðslumaðurinn hélt það nú. Síðan sótti hann per- una, konan borgaði og hélt himinglöð á brott. Þegar heim kom setti hún peruna í giktarlampann og lagðist svo undir. En þrátt fyrir stöðuga legu á hverju kvöldi i hálfan mánuö ból- aði ekki á brúnum Ut. Konan tók þvi pemna og steðjaði með hana á raf- magnsverkstæðið. Þá varð þar fyrir svörum eldri maður. Konan greindi hon- um frá vandræðum sinum og sagðist hreint ekkert brúnni nú en fyrir hálfum mánuði. Afgreiðslumaður- inn skoðaði pemna í krók og kring „Það er ekki nema von að þú verðir ekki brún,“ sagði hann svo hæglátlega. „Þessi pera er til að halda Hitaásvinum." Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir * Menning Menning Menning Fúsó og húsin Sýningarstaðir eru smátt og smátt að hefja starfsemi sína eftir jólahlé. Um helgina var opnuð sýning á 152 myndum eftir Sigfús Halldórsson að Kjarvalsstöðum. Það er erfitt að nálgast myndlist hans með sama hugarfari og list annarra manna því Fúsó er ekki eins og aðrir menn. Persónuleiki hans, elskulegur, lítillátur og ein- lægur, skín í gegnum allt sem hann tekur sér fyrir hendur, tónsmíðar sem malenT Þvi fyrirgefst Fúsó margt það í myndlistinni sem ýmsir aðrir mundu fá kárínur fyrir, svosem tvíbent teikning og losaraleg, eilít- ið forpokað sjónhorn og við- kvæmnislegir útúrdúrar,- allt út á hans indælu persónu. Það má nefnilega sjá það langt að að Fúsó þykir vænt um það sem hann festir á blað eða striga, hvort sem það er hús við Vitastíg eða Alfreð Guðmundsson forstöðumað- ur. Þessi væntumþykja kemur fram í dekstri hans við allar sjáanlegar staðreyndir í hverju mótífi, hversu lítilmótlegar sem þær eru, og hlýj- unni í litunum sem hann notar til að umvefja þær og upphefja. Hús hafa raunar ávallt heillað Fúsó, kannski allt frá því hann nam leikmyndagerð úti í Öxna- furðu og skildi hvernig þau ramma inn líf og tilfinningar hverrar manneskju. Hann er sem sagt kominn út af sviðinu og inn á leik- svið lífsins í myndum sinum. Og nú heldur Fúsó upp á húsin í bænum, þ.e. Reykjavík, í tilefni 200 ára afmælisins. En það sem verra er, hann er líka að teikna þekkta Revkvíkinga eftir ljós- myndum, sem kann aldrei góðri lukku að stýra, enda ferst Fúsó sú iðja fremur óhönduglega. Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Hann fer hins vegar næmum höndum um gömul hús. spilar á þau með síbreytilegri birtunni. í með- förum hans verða þau ung á ný. eins og símastaurarnir hans Tóm- asar, vinar hans og bróður í andan- Tvær húsamyndir standa mér fyrir hugskotssjónum. ..Við Lind- argötu" (nr. 58). fyrir sína sam- stilltu grátóna. og ..Hús við Mýrar- götu'' (nr. 122). sem verður eins og götumynd úr draumi. Enn kann Fúsó að koma manni á óvart. Mynd eftir hann af Arnar- hváli frá 1948 er frísklegt verk og gefur ekkert eftir borgarmyndum þeirra Snorra Arinbjarnar og Sche- vings. Og eftir öll blýantsportrettin verður maður glaður að sjá alvör- uportrett frá hendi Fúsós. sjá tákn- ræna vangamynd hans af Vilhjálmi frá Skáholti. Heill þér. Fúsó. Borgin er heppin að eiga þig að á 200 ára afmælinu. -ai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.