Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 18
18 DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986. DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986. 31 Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir - Haukar bikarmeistarar 1986 eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Njarðvík. Aðeins eins stigs munur í lokin, 93-92 Bikarinn aftur í FJörðinn Einstaklingsverðlaun að loknu korfutímabili: PÁLMAR SIGURÐSSON BESHJR - UNDAFÉKK ALLT HJÁ KONUNUM BESTA VÍTASKYTTA: 1. Birgir Mikaelsson,.....KR, 72/ 66 = 92% 2. Tómas Holton..Val, 52/43 = 83% 3. Pálmar Sigurðsson, ....Haukum, 80/ 62 = 78% BESTl VARNARMAÐUR: 1. ívar Webster,........Haukum 2. ísak Tómasson...........UMFN 3. Torfi Magnússon.........Val FLESTAR 3-STIGA KÖRFUR: 1. PálmarSigurðsson....Haukum, 55 = 165 stig 2. Karl Guðlaugsson, ..ÍR, 31 = 93 stig 3. Valur Ingimundarson,.UMFN, 31 = 93 stig BESTIDÓMARINN: 1. Kristbjörn Albertsson,.UMFN 2. Jón Otti Ólafsson,........KR 3. ÓmarSchewing,.............KR EFNILEGASTIDÓMARINN: 1. ÓmarSchewing,............KR 2. Jóhann Dagur Björnsson,.Fram 3. Kristinn Albertsson,.....Val KONUR BESTILEIKMAÐUR: 1. Linda Jónsdóttir.........KR 2. Þórunn Magnúsdóttir..UMFN 3. GuðlaugSveinsdóttir,....ÍBK STIGAHÆSTU LEIKMENN: 1. Linda Jónsdóttir, KR.205 stig 2. GuðlaugSveinsdóttir, ÍBK.145stig 3. Ásta Óskarsdóttir, Haukum.118 stig BESTA VÍTASKYTTA: 1. Linda Jónsdóttir, KR......70% Ragnheiður Steinback, ÍS.....68% 3. Cora Barker, KR...........67% Pálmar Sigurðsson, Haukum, var í nótt í lokahófi KKÍ útnefndur besti leikmaðurinn í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á keppnistímabilinu sem lauk í gærkvöldi með úrslitaleik Hauka og Njarðvíkur í bikarkeppn- inni. Valur Ingimundarson, UMFN, varð í öðru sæti en jafnir í 3.-5. sæti urðu þeir Birgir Mikaelsson, KR, Guðni Guðnason, KR, og Ragnar Torfason, ÍR. Fjölmörg einstaklingsverðlaun voru veitt í lokahófinu í nótt. Þessir hrepptu hnossin: FLEST STIG í ÚRVALSDEILDINNI: 1. Valur Ingimundarson, UMFN ..513 2. PálmarSigurðsson, Haukum ....496 3. Birgir Mikaelsson, KR.....397 BESTINÝLIÐINN: 1. Jóhannes Kristbjörnsson... UMFN 2. Guðjón Skúlason,..........ÍBK 3. ÓlafurGottskálksson,......ÍBK • Pálmar Sigurðsson sést hér með verðlaun sin. Hann var kosinn besti leik- maðurinn á keppnistímabilinu. DV-mynd G. Bender. VERSLANIR! Hin sívinsœla og myndarlega FERMINGAR - GJAFAHANDBÓK kemur út 20. mars nk. Þeir auglýsendur, sem áhuga hafa á að auglýsa í FERMINGA RGJA FA HA NDBÓKINNI, vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild D V, Þverholti 11, eða ísíma 27022, kl. 9-17 virka daga, í síðasta lagi mánudaginn 17. mars. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu hjá konunum vann Linda Jóns- dóttir, KR, til allra einstaklingsverð- launanna lflákvenfólkinu. -SK „Varhræddur* I I----------------------------- 1 j - sagði Einar Bollason j „Ég verð að segja eins og er að a I ég var mjög hræddur um að við I I myndum tapa þessum leik þegar I IValur fékk sina 5. villu. Þá fyrst I fóru Njarðvikingarnir að berjast ■ Itil sigurs," sagði Einar Bollason, I þjálfari Hauka, eftir úrslitaleik- I inn í grkvöldi. | J „Ég er viss um að Njarðviking- ■ I amir hefðu aldrci náð okkur ef I - Valur hefði ekki þurft að fara af I | leikvelli. Annars er ég auðvitað I Imjög ánægður með þennan sigur I og þetta er frábær cndir á þjálf- * IaraferlimínumhjáHaukum.“ I -SK 1 I______________________________I • Einar Bollason endaði þjálfaraferil sinn hjá Haukum i gærkvöldi með því að hampa bikarnum eftirsótta. DV-mynd Brynjar Gauti. „Vægastsagt ■_ . . ■ wíT huggulegt -sagði Pálmar Sigurðsson „Þetta var vægast sagt mjög huggulegt,“ var það fyrsta sem Pálmar Sigurðsson, Haukum, sagði eftir sigurleikinn gegn Njarðvík. „Mér hefði fundist það ósanngjarnt ef við hefðum ekki unnið bikarinn í ár. Þetta var gríðarlega erfiður leik- ur og þeir efldust svakalega þegar Valur fór út af. Eftir á að hyggja er spurning hvort það hefði ekki verið betra fyrir okkur ef Valur hefði aldr- ei fengið 5 villur og leikið með allan leikinn. Þetta var klassi og frábær endir á skemmtilegu keppnistímabili. Við erum í sjöunda himni og stað- ráðnir í að gera enn betur á næsta keppnistímabili," sagði Pálmar Sig- urðsson en hann var í gær útnefndur besti leikmaður úrvalsdeildarinnar. -SK Tólf leik menn valdir í Evrópuferð - landsliðsins í körfu. Aðeins tveir úr Haukum ogNjarðvík Tólf leikmenn hafa verið valdir í íslenska landsliðið í körfuknattleik sem heldur þann 24. mars í Evrópu- ferð á vegum KKÍ dagana 23. mars 3. apríl nk. Liðið mun leika gegn hinum ýmsu félagsliðum í Þýska- landi auk landsleikja gegn Austurríki og Luxemburg. Ferð þessi er lo- kaundirbúningur landsliðsins fyrir Evrópukeppnina sem fram fer hér á Iandi í apríl. Eftirtaldir leikmenn voru valdir í landsliðið: Torfi Magnússon.......Val, fyrirfiði Valur Ingimundarson, ...UMFN, var- afl. Pálmar Sigurðsson,.........Haukum Jón Kr. Gíslason,..............ÍBK Tómas Holton................. Val Páll Kolbeinsson,...............KR Guðni Guðnason,.................KR Birgir Mikaelsson,..............KR Hreinn Þorkelsson,............ÍBK Símon Ólafsson,...............Fram Þorvaldur Geirsson,...........Fram RagnarTorfason,.................ÍR Athygli vekur að aðeins tveir leik- menn eru valdir úr Njarðvík og Haukum. Á þriðjudaginn kemur mun landsliðið leika gegn pressuliði í Laugardalshöll en á þriðjudags- kvöldið verður auk þess boðið upp á margvísleg skemmtiatriði. -SK • Pálmar Sigurðsson sækir að körfu Njarðvík- inga. DV-mynd Brynjar Gauti. „Ekki séð silfur í -sagði Gunnar Þorvarðarson sem líklega hættir sem þjálfari Njarðvíkinga „Ég skil ekki hvers vegna eftirlitsdómarar eru á leikjum í körfuknattlciknum ef á þá er ekki hlustað. Það sáu allir að skot Jóhannesar var fyrir utan linuna nema dómararnir. Meira að segja eftirlitsdómarinn á lciknum en á hann var ekki hlustað,“ sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálf- ari Njarðvíkinga, í samtali við DV i gærkvöldi. „Ég er alveg sannfærður um að þetta umdeilda skot skipti sköpum í leiknum. En burtséð frá því þá er ég ánægður með mína menn. Ég er mjög ánægður með frammistöðu strákanna en ekki úrslitin. Liðið hefur staðið sig vel í vetur, unnið gullverðlaun í þremur mótum og nú silfur. Við böfum ekki séð silfur í þrjú ár.“ Hættir þú sem þjálfari liðsins? „Já, það eru allar líkur á því. Ég er ekkert bundinn Njarðvík og væri alveg til í að breyta til. Ég er búinn að þjálfa liðið í þrjú ár og strák- arnir eru eflaust orðnir þreýttir á mér,“ sagði Gunnar Þorvarðarson. -SK Það gekk ekki litið á í Laugardalshöllinni í gærkvöldi þegar Haukum tókst, annað árið í röð, að tryggja sér bikarinn í körfunni eftir úrslitaleik gegn Íslandsmeisturum Njarðvíkur. Höllin iék á reiðiskjálfi á lokaminút- unum og það var ekki fyrr en á lokasekúndunum sem ljóst varð að Haukar væru bikarmeistarar 1986 í körfuknattleik. Þeir sigruðu Njarðvík- inga, 93-92, eftir æsispennandi og lengst af vel leikinn leik. Staðan i leik- hléi var 48 45 Haukum í vil. Allt fór á annan endann i lcikslok er Njarðvik- ingar vildu meina að karfa, sem Jóhannes Kristbjörnsson skoraði fyrir UMFN, hefði átt að gefa þeim þrjú stig en ekki tvö eins og dómararnir töldu. Og flestir i Höllinni vildu meina að Njarðvikingar hefðu haft rétt fyrir sér. Þctta eina stig hefði svo sannarlega skipt máli í lokin eins og úrslit lciksins bera með sér. Æsispennandi lokamínútur Þegar 3,18 mínútur voru til leiks- ioka var staðan 85-82, Haukum í vil. Áður í leiknum höfðu Haukarnir náð tíu stiga forskoti sem Njarðvík- ingar söxuðu á smátt og smátt. ívar Webster kom Haukum í 87-82 en þegar 2,20 mínútur voru til leiksloka höfðu þeir Teitur Örlygsson og Ellert Magnússon minnkað muninn í að- eins eitt stig, staðan 87-86. ívar Webster skoraði úr tveimur vítaskot- um af öryggi, 89-86, en enn voru þeir Teitur og Ellert á ferðinni. Teit- ur skoraði úr einu víti og Ellert skoraði körfu og þegar 1,19 mínútur voru til leiksloka var staðan allt í einu orðin jöfn 89-89. Og nú var allt orðið sturlað í Höllinni. ívar Ás- grímsson kom Haukunum í 91-89 en þegar 50 sekúndur voru til leiksloka átti Teitur ónákvæmt skot, Haukar náðu knettinum og ívar Webster skoraði og koni Haukum í 93-89. Þegar aðeins 13 sekúndur voru eftir skoraði Jóhannes Kristbjörnsson þriggja stiga körfu og staðan orðin 93-92. Haukarnir klúðruðu knettin- um samstundis og þegar 11 sekúndur voru eftir voru Njarðvíkingar með knöttinn en þeim tókst ekki að skora og Haukar fögnuðu sigri. Vægast sagt umdeilt atvik í síðari hálfleik átti sér stað mjög umdeilt atvik. Jóhannes Kristbjörns- son skaut að því er virtist fyrir utan þriggja stiga línuna og skoraði. En Hörður Tuliníus, sem þarna dæmdi sinn síðasta leik, taldi að Jóhannes hefði verið fyrir innan þriggja stiga línuna og gaf því merki um að tvö stig væru fyrir körfuna. Þegar þetta átti sér stað tjúlluðust Njarðvíkingar alveg. Gunnar Þorvarðarson. þjálf- ari þeirra, sparkaði stól einum lang- ar leiðir og Njarðvíkingar almennt í Höllinni höfðu vart hemil á reiði sinni. Og ekki minnkaði reiði þeirra í leikslok þegar ljóst var að eitt stig skildi liðin að. Reynt var að komast að hinu sanna í þessu máli með aðstoð myndbands en það tókst ekki og því stóðu úrslit leiksins óhögguð. Þrír yfirburðamenn hjá Haukum Þeir I var Webster, Pálmar Sigurðs- son og Henning Henningsson voru langbestir lijá Haukum en samtals skoruðu þeir 71 stig fyrir Haukana. Kristinn Kristinsson stóð sig vel í vörninni og sömu sögu er hægt að segja um Hálfdán Markússon sem sýndi gamla takta en hann hefur ekki leikið með Haukunum í tvö ár. Það var greinilegt að Haukaliðið var banhungrað í sigur í þessum leik og leikmenn lögðu sig alla fram í vörn og sókn. islandsmeistararnir gloppóttir íslandsmeistarar Njarðvíkur máttu þola tap í gærkvöldi og það er nokk- uð sem þeir þekkja nánast af afspurn i vetur. Þeir Jóhannes Kristbjörns- son og Teitur Orlygsson voru lang- bestir Njarðvíkinga en athygli vakti hversu slakur Valur Ingimundarson var. Hann skoraði aðeins 10 stig í leiknum sem er nánast ekkert þegar hann er annars vegar. Hann varð að vísu að yfirgefa völlinn með 5 villur þegar 15 mínútur voru eftir en þá fyrst fór Njarðvíkurliðið í gang svo um munaði þrátt fyrir að það dvgði ekki til í þetta skipti. Teitur Örlygs- son sýndi það og sannaði í þessum leik að hann er mjög efnilegur leik- maður sem á eftir að ná óralangt í framtíðinni. Dómararnir ekki öfundsveröir Þeir Hörður Tuliníus og Jón Otti Ólafsson dæmdu þennan erfiða leik og voru ekki öfundsverðir af verk- efninu. Svo fór á köflum að þeir höfðu ekki nægilega góð tök á leikn- um en ef ekki hefðu komið til nokkur mjög vafasöm atvik þá hefði dóm- gæsla þeirra verið til fyrirmyndar. Stig Hauka: ívar Webster 28, Pálmar Sigurðsson 24, Henning Hennings- son 19, Kiistinn Kristinsson 6. Ólaf- ur Rafnsson 5, Hálfdán Markússon 5, Eyþór Árnason 4 og ívar Ásgríms- son 2. Stig UMFN: Jóhannes Kristbjörns- son 25, Teitur Örlygsson 20, Helgi Rafnsson 12. Valur Ingimundarson 10, ísak Tómasson 9. Kristinn Ein- arsson 6, Ellert Magnússon 6. Hreið- ar Hreiðarsson 2 og lngimar Jónsson 2. -SK „Égvarfyrir utan línuna“ -sagði Johannes Kristbjörnsson, Njarðvík, sem skoraði eina umdeildustu körfu vetrarins ígærkvöldi „Það er ekkert vafamál að ég var fyrir utan þriggja stiga linuna þegar ég skoraði," sagði Njarðvikingurinn Jóhannes Kristbjörnsson sem skorði körfuna umdeildu i leik Hauka og UMFNígærkvöldi. „Það var virkilega slæmt að bafa Hörð dómara þeirra megin í þessuni leik. Þá hafði það áhrif á okkur að Valur skvldi fá 5 villur. En okkur tókst þrátt fyrir það að jafna leikinn og ég er mjög ánægður með síðustu tíu mínúturnar hjá okkur. Haukarn- ir eiga að vissu leyti skilið að vinna bikarinn en við erum bestir í dag." sagði Jóhannes. sem skoraði 25 stig fvrirUMFN. Hálfdán Markússon, Haukum: „Það var stórkostlega gaman að vera með í þessum leik hér í kvöld en það var engu að síður sárt að ná ekki að vinna íslandsmeistaratitil- inn." sagði Hálfdán Markússon (Á. Einarssonar veðurfræðings) eftir leik Hauka og Njarðvíkur í gær- kvöldi. Hálfdán var fyrir nokkru einn allra besti leikmaður Hauka en hefur ekki leikið með liðinu síðast- liðin tvö ár. „Ég held að aðalástæðan fyrir því að við sigruðum í kvöld hafi verið sú að við vorum þyrstári í sigur en Njarðvíkingarnir. Við mættum mjög ákveðnir til leiks og vorum vel stemmdir fyrir leikinn. Þetta var skenmitilegur og spennandi leikur og það gat allt gerst." sagði Hálfdán. Teitur Örlygsson, Njarðvík: „Auðvitað var mjög sárt að tapa enn einurn úrslitaleiknum í bikarn- um. Það eru einhver álög á okkur hér í Höllinni." sagði Teitur Örlygs- ,son, Njarðvík, eftir leikinn gegn Haukum í gærkvöldi en Teitur lék mjög vel og skoraði 20 stig. „Það var hrikalega slæmt að missa Val út af í síðari hálfleik en þó er ekki hægt að horfa framhjá því að eftir að hann fékk 5. villuna tókum við fvrst við okkur. Ég er ánægður með minn leik og ég vona að okkur takist loks að vinna bikarkeppnina á næsta ári. Við erum alltaf að komast nær og nær titlinum." sagði Teitur. -SK • Hörður Tuliníus með styttuna sem hann fékk frá KKÍ. DV-mynd G. Bender. „Tel mig hafa skilað minu - segir Hörður Tuliníus sem dæmdi sinn síðasta leik í gærkvöldi „Ég er ánægður með að ferli mín- um sem dómara sé lokið. Ég er búinn að dæma síðan árið 1968 og tel mig því búinn að skila mínu varðandi dómgæsluna,'4 sagði hinn kunni körfuknattleiksdómari, Hörður Tuli- nius, frá Akureyri en í gærkvöldi dæmdi hann sinn síðasta opinbera leik í körfu, leik Hauka og Njarðvík- „Þetta hefur verið mjög skemmti- legur tími sem ég sé alls ekki eftir. Það má eiginlega segja að ég sé búinn að fá mig fullsaddan af körfu- knattleik. Ég byrjaði sjálfur að spila árið 1949 og dæma 1968. Þetta er orðinn góður tími."sagði Hörður ennfremur. Hörður fékk blómvendi og gjafir fyrir leikinn í gærkvöldi og í lokahófi KKÍ í Sigtúni í gærkvöldi afhenti KKÍ honum forláta stvttu fvrir fórn- fúst starf fyrir körfuknattleiksíþrótt- ina. -SK Linda skor- aði meira en Stúdentar -ogKR meistari Það á sér ekki oft stað i körfu- knattlcik að einn og sami leikmaður- inn skori fleiri stig en andstæðingar hans til samans. Þetta afrekaði þó Linda Jónsdóttir, KR, í gærkvöldi er hún skoraði 33 stig fyrir lið sitt þegar KR sigraði IS örugglega i úrslitaleik bikarkeppni kvenna í Laugardals- höllinni. Lokatölur 47-28 eftir að staðan i leikhléi hafði verið 18-15 KR ivil. KR-stúlkurnar voru allan tímann betri aðilinn í leiknum og það var aldrei spurning hvort liðið væri sterkara. Linda var í sérflokki á vellinum en einnig átti Kristjana Hrafnkelsdóttir góðan leik fyrir KR og hirti mikið af fráköstum. Lið ÍS var allt álíka lélegt og engin skar sig úr. Stig KR: Linda 33, Cora 6. Erna 4 og Kristjana 4. Stig ÍS: Hafdís 12. Kolbrún 6, Anna Björk 4. Vigdís 2. Ragnhildur 2 og Helga 2. -SK • Cora Barker, fyrirliði KR, hamp- ar bikarnum. DV-mynd Brynjar Gauti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.