Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Blaðsíða 2
2
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 25. MARS1986.
Fréttir Fréttir Fréttir
Ævintýramaður
blómstrarí Osló
- kísl-áburðurínn tekur stefnuna á S-Frakkland
„Ég fékk áhuga á þessu máli fyrir
fjórum árum og hef lagt mikla vinnu
og peninga í þetta síðan. Nú eru
sterkir fjáraflamenn famir að sýna
kíslinu áhuga þannig að þetta er
allt á réttri leið,“ sagði Kristófer
Reykdal, kaupsýslumaður í Osló, er
nú notar eftirnafnið Magnússon.
Kristófer er umboðsmaður kísl-
áburðarins sem framleiddur er úr
úrgangi í Sjóefnavinnslunni á
Reykjanesi og þykir gagna vel gegn
psoriasis, exemi, fótraka og flösu.
Kristófer Reykdal er 47 ára gamall
og hefur verið búsettur í Noregi
undanfarin 8 ár. Áður var hann
umsvifamikili í rekstri vinnuvéla
hér á landi og rak fyrirtækið
KR-vinnuvélar þar til það varð
gjaldþrota. Umsvif hans í Osló virð-
ast ekki vera minni því minnst einn
bankastjóri hefur misst starf sitt
vegna tengsla sinna við Kristófer
eins og greint hefur verið frá í frétt-
um DV. Þá má búast við að annar
norskur bankastjóri verði að segja
starfi sínu lausu áður en langt um
líður af svipuðum orsökum.
„Við erum nú að láta hanna fal-
legar neytendaumbúðir utan um
kísl- áburðinn og það eru stórir
samningar innan seilingar," sagði
Kristófer Reykdal í gær. „Þá hef ég
í hyggju að reisa heilsustöð í Sister-
one í S-Frakklandi sem byggir
meðal annars á græðandi áhrifum
kísl- áburðarins."
Samkvæmt heimildum DV hefúr
Guðmundur Einarsson, verkfræð-
ingur og fyrrum stjómarformaður
Sjóefhavinnslunnar, verið Kristófer
innan handar í Frakklandsævintýr-
inu og fóru þeir félagar meðal
annars saman til Sisterone til að
líta á aðstæður. -EIR
Geir Jónsson, formaður Félags mjólkurfræðinga, og Héðinn Þorsteinsson
drekkja sorgum sínum í mjólk. DV-mynd KAE
Lögbann sett
á mjólkur-
fræðinga
Laust fyrir klukkan eitt í nótt
samþykkti Alþingi að stöðva verkfall
mjólkurfræðinga með lögum. Frum-
varp þess efnis var lagt fram rétt fyrir
kvöldmat í gær og ákveðið að af-
greiða það með hraði gegnum þingið.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
Hæstiréttur tilnefni þriggja manna
kjaradóm, sem skal fyrir 1. maí
ákveða kaup og kjör mjólkurfræð-
inga. Landbúnaðarráðherra, Jón
Helgason, fylgdi frumvarpinu úr
hlaði. Hann sagði að kröfúr mjólkur-
fræðinga ifælu í sér verulegar hækk-
anir umfram það sem samið var um
í nýgerðum kjarasamningum. Ef
gengið yrði að þeim gætu þær riðlað
þvi breiða samkomulagi sem náðst
hefúr. Einnig yrði mikið verðmæta-
tjón af stöðvun mjólkurframleiðsl-
unnar. Það væri óverjandi ef stjóm-
völd reyndu ekki að bægja slíku frá.
Stjómarliðar greiddu frmhvarpinu
atkvæði. Alþýðubandalag og
Kvennalisti greiddu atkvæði á móti
frumvarpinu. Kvennalistaþingmenn-
imir töldu óverjandi að beita lögum
gegn frjálsri kjarabaráttu. Þingmenn
Alþýðubandalagsins töldu að ekki
hefði verið fullreynt að ná samkomu-
lagi við mjólkurfræðinga. Þeir hefðu
á síðasta samningafundinum fallið frá
öllum fyrri kröfum nema einni. Að-
eins stæði eftir krafan um fæðis- og
ferðapeninga, sem væm réttindi sem
flestir launþegar nytu nú þegar.
Bandalag jafnaðarmanna sat hjá
við atkvæðagreiðslu frumvarpsins.
Þingmenn þess vom algjörlega and-
vígir þessari aðferð stjómvalda til að
koma í veg fyrir frjálsa samninga.
Þingmenn Alþýðuflokks sátu einnig
hjá og töldu m.a. að ekki hefði verið
fullreynt um samkomulag og því ekki
tímabært að vísa málinu til gerðar-
dóms. -APH
Slökkvilið Akureyrar að störfum í Hjallalundi á föstudagskvöldið.
Akureyri:
Stigagangurínn
fylltist af reyk
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
Eldur kom upp í geymslu í fjölbýlis-
húsinu Hjallalundi 17 á Akureyri
skömmu fyrir miðnætti á föstudags-
kvöld. Skemmdir urðu nokkrar af
völdum eldsins.
Stigagangurinn fylltist af reyk og
einnig komst reykur inn í þær tíu
íbúðir sem em við hann. Allir ibúam-
ir komust út af eigin rammleik. Eld-
supptök em ókunn. Þó liggur fyrir
að ekki kviknaði í út frá rafmagni.
Um íkveikju gæti hugsanlega verið
að ræða.
Sigurvegarar í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna: Sverrir Þorvaldsson,
Hákon Guðbjartsson og Ágúst Sverrir Egilsson. Ágúst Sverrir og Hákon voru
báðir fulltrúar íslands í fyrra en eru nú komnir yfir aldursmörkin. Sverrir er
hins vegar aðeins sextán ára og verður því annar islensku keppendanna í
Varsjá. DV-mynd KAE.
Líkfundur
í Friðar-
höfn
Lík Jóns Kristinssonar, stýrimanns
á Helgu II RE, fannst í Friðarhöfn í
Vestmannaeyjum sl. föstudag. Jóns
var saknað aðfaranótt 12. febrúar sl.
og þrátt fyrir mikla leit fannst lík
Jóns ekki þá. Líkið rak upp stutt frá
þeim stað sem Helga II lá þegar Jóns
var saknað.
Pósturogsími:
Farsímar
sitja á
hakanum
- Eins og málin standa nú hjá Pósti
og síma, er 90 rafeindavirkjar hafa
hætt störfum, geta orðið tafir á því
að nýir farsímar verði teknir í gagn-
ið. Fyrirhugað er að sjálfvirkir far-
símar verði komnir á markaðinn um
mitt sumar. Á þeim símum geta þeir
sem hringja valið númerið sjálfir,
hvort sem þeir eru í bílum, á skipum
eða í sumarhúsum.
„Á meðan ástandið er eins og það
er í augnablikinu eru allar nýfram-
kvæmdir stopp. Tafir verða á fram-
kvæmdum svo lengi sem þetta ástand
varir,“ sagði Gústav Amar, yfirverk-
fræðingur Pósts og síma. -SOS
Sextán árasigur-
vegari stærðfræði-
keppninnar:
„Ekki
eins
erfittogég
bjóstvið‘r
Stærðfræðikeppni framhaldsskól-
anna lauk með sigri þriggja nemenda
úr stærðfræðideild Menntaskólans í
Reykjavík, í fyrsta sæti varð Ágúst
Sverrir Egilsson, í öðru sæti Hákon
Guðbjartsson og í þriðja sæti Sverrir
Þorvaldsson.
„ Þetta var ekki eins erfitt og ég
bjóst við,“ sagði Sverrir Egilsson sem
verður fulltrúi Islands í ólympíu-
keppninni í stærðfræði. Keppnin
verður haldin í Varsjá í Póllandi á
næsta sumri. Hinir sigurvegaramir,
Ágúst Sverrir Egilsson og Hákon
Guðbjartsson, tóku undir en sögðu
aðalkeppnina úti í fyrra hafa verið
ótrúlega erfiða. „Það þarf að þjálfa
stíft áður en farið er út því dæmin
em talsvert þyngri í þeirri keppni.
Heimsend dæmi vikulega
„ Keppnin hófst um miðjan nóvemb-
er,“ sagði Benedikt Jóhannesson,
framkvæmdastjóri keppninnar, þegar
úrslit vom kynnt. „Rúmlega fjögur
hundmð þátttakendur frá fimmtán
skólum hófu keppni. í lokakeppni
vom tuttugu og þrír sem fengu viku-
lega send heim dæmi til þjálfunar.
Ólympíukeppnin er svo haldin í fyrstu
vikunni í júlí og þá verða menn að
vera undir tvítugu. Þeir sem eru þá
orðnir eldri em því miður fæddir fyrir
tímann. I fyrra vom sendir út tveir
og vonandi getum við sent út tvo eða'
tvö í keppnina í ár einnig."
Þar sem einungis einn sigurvegar-"
anna verður undir tvítugu þegar
úrslitakeppnin í Varsjá fer fram er
ljóst að eftir er að finna annan full-
trúa og verður það gert síðar. Að
keppninni standa hérlendis Islenzka
stærðfræðifélagið og Félag raun-
greinakennara. Kostnaðinn greiðir
IBM á íslandi. -baj