Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 23
DV. MÁNUDAGÚR t.':ÁPilíIi-Í98Ö. 231 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Þáttaskil þegar Þorbergur fékk rauða sppaldið - Saab tapaði öðrum leik sínum í úrslitakeppninni. Þorbergur rekinn út af fyrir að hrinda leikmanni í hraðaupphlaupi. Algjör vttleysa, segir Þorbergur. Frá Gunnlaugi Jónssyni, fréttaritara DV í Svíþjóð: Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari og leikmaður Saab, fékk að sjá rauða spjaldið er Saab lék annan leik sinn í úrslitakeppninni um sæti í All- svenskan rétt fyrir helgi. Saab lék þá gegn H-43 á heimavelli og mátti þola tap, 17-20. „Þetta var algjör vitleysa. Hann kastaði sér niður og dómararnir létu blekkjast," sagði Þorbergur sem var vikið af leikvelli fyrir fullt og allt í byrjun síðari hálfleiksins fyrir að brjóta á einum leikmanni H-43 í hraðaupphlaupi. Staðan var þá 11-9 fyrir Saab og flest benti til þess að liðið mundi vinna sinn annan sigur í úrslitakeppninni. Eftir atvikið brotnaði lið Saab niður og eftirleik- urinn reyndist leikmönnum H-43 auðveldur, liðið sigraði sem áður sagði, 20-17. Þorbergur virkaði þó ekki sann- færandi í leiknum. Hann á enn við meiðsli að stríða og skoraði ekki mark. Nokkuð var skrifað um útafrekstur Þorbergs í sænsk blöð. Flest eru þau á einu máli um að brot Þorbergs hafi réttlætt rauða spjaldið og að dómararnir hafi sýnt hugrekki með þvi að veita það fyrir framan troð- fulla höll af stuðningsmönnnum Saab. Eins og fyrr hefur verið greint frá þá sigraði Saab í fyrsta leik sinum í keppninni. Liðið vann þá Viking frá Helsingborg á útivelli nokkuð óvænt. Róðurinn þyngist heldur nú hjá Þorbergi og félögum. Þrjú félög af þeim sex sem í keppninni eru vinna sér sæti í Allsvenskan. -fros Tvö mörk Jóns Þórs - þegar ÍBK og Breiðablik skildu jöfn í fyrsta leik litlu bikarkeppninnar, 2-2 Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara DV á Suðurnesjum: ÍBK og Breiðablik skildu jöfn, 2-2, í fyrsta leik litlu bikarkeppninnar sem hófst í leiðinlegu veðri með leik ÍBK og Breiðabliks á laugardaginn. Jón Þór Jónsson að jafna leikinn er hann skoraði úr þvögu eftir varn- armistök Keflvíkinga. Jón Þór var síðan aftur á ferðinni stuttu seinna er hann skoraði keimlíkt mark en lokaorðið áttu Keflvíkingar. Óli Þór Magnússon einlék í gegnum vörn Kópavogsbúa á lokamínútunum og skoraði. Á síðustu sekúndunum munaði síðan litlu að Jóni Þór tæk- ist að tryggja ÍBK öll stigin en skot hans fór í þverslá og yfir. -fros • Þorbergur Aðalsteinsson. Breiðablik var heldur sprækari aðilinn framan af en það voru engu að síður heimamenn sem náðu for- ystunni. Rúnar Georgsson lyfti þá boltanum yfir Örn Bjarnason, hinn nýja markvörð Blikanna, og í netið. Um miðjan siðari hálfleikinn náði • Kári Elíson. • Nokkrir keppendanna á íslandsmótinu í kraftlyftingum. Kári Elíson vann besta afrekið á Islandsmótinu í kraftlyftingum sem fram fór á Akureyri Frá Þráni Stefánssyni, fréttaritara DV á Akureyri: Kári Elíson frá Akureyri náði best- um árangri allra keppenda á íslands- meistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fór á Akureyri. Kári, sem oft gengur undir viðurnefninu „Tígris- kötturinn", hlaut að launum bikar og sæmdarheitið meistari meistar- anna. Kári, sem keppti í 75 kg flokki, náði bestum árangri allra keppenda miðað við líkamsþyngd í bekkpressu, þar sem hann setti nýtt íslandsmet, og í réttstöðulyftu. Bestan árangur í hnébeygju átti hins vegar Hörður Magnússon. Það var Kári sem setti eina ís- landsmetið í karlaflokki á kraftlyft- ingamótinu sem fram fór í Iþrótta- höllinni á Akureyri. Kári lyfti 172,5 kg í bekkpressu en fyrra metið átti hann sjálfur, 170 kg. Tvö unglingamet voru sett á mót- inu. Magnús Ver Magnússon átti þau bæði. Hann lyfti sömu þyngd og Kári í bekkpressu, 172,5 kg, og setti einnig unglingamet í réttstöðulyftu, 275 kg. Þá var í fyrsta sinn keppt í 48 kg flokki kvenna og árangur eina kepp- andans, Magneu Sturludóttur, því skráð íslandsmet. Hún lyfti 80 kg í hnébeygju. 40 kg í bekkpressu og 100 DV-mynd JGH kg í réttstöðulyftu. Samanlagður ár- angur hennar var 220 kg. Annars er óhætt að segja ao árangur hafi oftast verið meiri á íslandsmótum. Eitt Islands- met og tvö unglingamet geta varla talist annáð en rýr uppskera en vonandi tekst kraftlyftinga- mönnum okkar að bæta sig meira er fram í sækir. Annars urðu sigurvegarar þessir í flokk- unum: Aðalsteinn Kjartansson lyfti keppnislaust í 60 kg flokki. Aðalsteinn lyfti samtals 375 kg, þar af 170 í réttstöðulyftu, 140 kg í hnébeygju og 65 kg í bekkpressu. í næstléttasta flokknum, 67,5 kg flokki, sigr- aði Már óskarsson frá Fáskrúðsfirði. Már lyfti samanlagt 480 kg. Hann lyfti 200 kg í réttstöðu- lyftu, 185 kg í hnébeygju og 95 kg í bekkpressu. Kári Elíson, sem nú keppti í 75 kg flokki, lyfti 662,5 kílóum samanlagt. Kári lyfti 260 kg í réttstöðulyftu, 230 kg í hnébeygju og íslands- met hans í bekkpressunni var 172,5 kg. Reykvíkingurinn Halldór Eyþórsson vann sigur í 82,5 kg flokki. Halldór lyfti samtais 710 kílóum. 280 kílóum í réttstöðulyftu og hné- beygju og 150 kg í bekkpressu. Baldur Borgþórsson vann sigur í 90 kg flokki þar sem keppnin var líklega hvað hörðust. Bald- ur lyfti 740 kílóum, þar af 285 kg í hnébeygju, 270 kg í réttstöðulyftu og 185 kg í bekkpressu. Magnús Ver Magnússon sigraði í 100 kg flokki. Hann lyfti samtals 717 kg. Magnús lyfti 275 kg í réttstöðulyftu, 270 kg í hnébeygju og 172,5 kg í bekkpressu. „Hnébeygjutröllið“, en það viðurnefni hefur Hörður Magnússon átt, stóð undir nafni. Hann vann besta afrek mótsins í hnébeygju er hann lyfti 340 kg. Þá lyfti hann 320 kg í réttstöðu- lyftu og 195 kg í bekkpressu. Samanlagður árangur hans var 855 kg sem nægði honum til sigurs í 110 kg flokki. Víkingur Traustason vann sigur í 125 kg flokki er hann lyfti 872,5 kg samanlagt. Hjalti Árnason varð í öðru sæti eftir harða keppni með 865,5 kg. Árangur Víkings var sem hér segir: 332,5 kg í hnébeygju, 330 kg í réttstöðu- lyftu, 210 kg í bekkpressu. Torfi ólafsson var eini keppandinn í þyngsta flokknum, +125 kg. Torfi lyfti einnig mestu allra keppenda eða 880 kg samanlagt.. Torfi lyfti 350 kg í réttstöðulyftu, 330 kg í hnébeygju og 200 kg í bekkpressu. Torfi reyndi einnig við íslandsmetið í réttstöðulyftu en tilraun hans við 372,5 kg mistókst. Þá er aðeins eftir að geta um sigurvegarann í 52 kg flokkki kvenna. Þar vann Sjöfn Jóns- dóttir sem lyfti samtals 220 kg. 90 kg í réttstöðu- lyftu, 80 kg í hnébeygju og 50 kg í bekkpressu. -fros „Tígriskötturinn varð meistari meistaranna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.