Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 18
18 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. AÐALFUNDUR skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar verður haldinn að Borgartúni 18, þriðjudaginn 13. maí nk. kl. 17. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. SlípÍSkífUr fyrirliggjandi 100 x 6,0 x 16 mm kr. 39,00 115 x 6,0 x 22 mm kr. 49,00 125 x 6,0 x 22 mm kr. 56,00 150 x 6,0 x 22 mm kr. 71,00 180 x 6,5 x 22 mm kr. 93,00 180 x 8,0 x 22 mm kr. 114,00 IÐNAÐARVÖRUR Heildverslun Kleppsvegi 150, sími 686375. Umboðsmann vantar á Breiðdalsvík. Uppl. gefur Geirlaug í síma 5662 og afgreiðsla DV í síma 91-27022. Menning Menning Menning Kári Eiriksson - Landslag, olía á striga, 1985. Sleikjur og slettur Önnumst nú einnig ailskonar smáprentun 09 prentuná númeruöum sjálfkalkerandi reikningum. Fljót og góðþjónusta. Wiistos llf 671900 GRUNNSKÓLI ESKIFJARÐAR KENNARA VANTAR Við skólann eru lausar kennarastöður. Meðal kennslu- greina eru íslenska og líffræði í eldri deildum svo og íþróttakennsla. Skólinn starfar í nýju húsnæði og er vinnuaðstaða kennara til fyrirmyndar. íbúðarhúsnæði verður útvegað og einnig kemur greiðsla flutnings- styrks til greina. Nánari upplýsingar gefa formaður skólanefndar, Margrét Óskarsdóttir, sími 97-6299, og Jón Ingi Ein- arsson skólastjóri, sími í skóla 97-6472 og heimasími 97-6182. Skólanefnd. ^RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir- farandi: RARIK-86008: 75 stk. 25 kVA einfasa stauradreifi- spennar. Opnunardagur: Þriðjudagur 10. júní 1986 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstödduni þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudegi 12. maí 1986 og kostar 300 kr. hvert eintak. Reykjavík 7. maí 1986. Rafmagnsveitur ríkisins. Fá myndverk eru þannig gerð að þau beinlínis hrindi frá sér áhorfendum, hindri að þeir komist í náið persónu- legt samband við þau. Vinnubrögðin skipta þar ekki meginmáli. Á verkum leikmanna eru stundum tæknigallar, en þar á móti kemur oft einlægni og þróttur sem áhorfandinn getur huggað sig við. Flókin verk og fullkomin geta svo gengið út frá tiltölulega einfóldum forsendum sem áhorfandi þekkir af eigin reynslu. Ég held að myndir Kára Eiríkssonar hljóti að vera í hinum sjaldgæfa flokki fráhrindandi listaverka. Sjálfum er mér fyrirmunað að skilja þessar mynd- ir og er því úr sambandi við þær. Þótt þær eigi að nafninu til að vera af landslagi, skipum, gömlum húsum, fuglum og öðru ámóta hugljúfu þá get ég ekki tengt þær neinu því sem ég þekki. Það er að segja, ég sé að ein- hver tiltekinn partur á myndfletinum er fugl, fjall eða fiskibátur, en ég skil ekki hvers vegna hann er eins og hann er í myndum Kára og hvað hann er að gera þar. Framtíðarsýn ? Líkingar eru stundum lykillinn að hinu óþekkta. Eiga allar þessar mynd- ir af freðmýrum, auðnum og helfrosn- um grösum að fyrirstilla landslag á öðrum stjömum? Eða em þær framtíð- arsýn, af veröldinni í kjölfar kjam- orkustríðs og fimbulvetrar? Spanskgrænir litatónamir og gular eiturgufumar, sem umlykja margt mótífið, vita að minnsta kosti ekki á neitt gott. Og hvað með seglbátana, með sund- urtætt seghn og lunninga glóandi í geislavirkum litum? Getur nokkur manneskja verið á lífi í slíkum mynd- um? Samt hef ég grun um að listamaður- inn telji sig vera að fjalla um ísland hér og nú, en ekki framtíðina og fjar- lægar stjömur. Til þess benda nöfh myndanna: Hraun, Gras, Sveit, Hvammur, Úthagi, Sólarlag o.s.frv. Og hinir fjölmörgu kaupendur að verkum hans virðast fylgja honum að máli. Varla fæm þeir að fjárfesta í máluðum bölsýniun á borð .við þær sem ég hef lýst hér að ofan. Sjálfvirkni Nema þeir séu að sverma fyrir tækn- inni. Hún skiptist í tvennt, í sleikjur og slettur. Kári Eiríksson - Andlit, olia á striga, 1985. Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Venjulegast byrjar listamaðurinn á að slétta mótífið og sleikja með pensli uns öll sérkenni þess em á bak og brott. Eftir situr hin dauðhreinsaða nútíðar/ffamtíðar-sýn sem áður er nefhd. Þá er það sem slettumar koma til sögunnar, til að lífga við forgrunn, bakgmnn, þungamiðju verksins eða annað það sem lífga þarf við í myndun- um. Síðan verða þær næstum sjálfvirkar og listamaðurinn býr til úr þeim hey- sátur, hreiður, ullarreyfí á kind, jafnvel hríðarveður. Loks taka slett- umar af honum völdin og gera það sem þeim sýnist. Þessu fylgir ákveðinn bravúr og bravúr hefur ávallt talsvert aðdráttar- afl. En hann nægir ekki til lengdar. Ein- hvem tímann verður listamaður að hleypa okkur áhorfendunum nálægt sér, jafhvel þótt það kunni að reynast sársaukafullt. -ai UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð. Simar: 688322 og 688953 Upplýsingar um kjörskrá o.fl. Sjálfstæðisfólk, vinsamlegast látið skrifstofuna vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á kjördegi, 31. maí nk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.