Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986. 53 Höllin í Vauvenargues þar sem Picasso lést. Picasso ásamt Palomu og Claude. Picasso ásamt Claude meðan allt lék í lyndi. sínu. Það gerði sennilega illt verra. að bókin kom út um svipað leyti og börn hans voru að vaxa úr grasi. Allt um það komust ættingjar hans skyndilega að því að Picasso vildi ekkert með þá hafa lengur. Þetta var ekki ýkja mikið áfall fyrir Paulo og Maiu, sem voru þá ekki í nánu sam- bandi við föður sinn. En yngri börnin tóku afstöðu föður síns og afa mjög nærri sér. Paloma var hjá Picasso á jólunum 1963, en þegar hún ætlaði til hans um páskana 1964 tilkynnti lögfræð- ingur henni að hún fengi ekki að koma. „Meistarinn var ekki við..í tíu ár.“ sagði hún eftir á og var beisk. Marina gerði sér ferð heim til afa síns aftur og aftur en Jacqueline sagði henni ævinlega að Picasso væri of þreyttur til að taka á móti henni. Hún skrifaði honum daglega. uns lögfræðingur sagði henni að það hefði ekkert upp á sig, hún mundi aldrei fá svar. Eftir að hafa verið gerðir afturrækir æ ofan í æ reyndu þeir Claude og Pablito. sinn í hvoru lagi. að komast inn í höll Picassos í gegnum hallargarðinn. Claude var fleygt á dyr en hundum var sigað á Pablito. Múr i kringum listamanninn Vinir Picassos og Jacqueline héldu því fram að börn listamannsins væru aðeins á höttum eftir auðæfum föður síns. í viðtölum báru þau öll á móti því. Öllum þeim sem þekktu Claude. Palomu og Marinu á þessum tíma bar saman um að þau hafi verið mjög elsk að föður sínum og afa. Og hvað svo sem segja má um fórn- fýsi Jacqueline þá er enginn vafi á þvi að hún reisti nokkurs konar múr í kringum Picasso. Enginn fékk að- gang að honum síðustu ár ævi hans, nema sá hinn sami fengi náð fyrir augum Jacqueline. Jafnvel gömlum vinum Picassos var snúið frá dvrum hans. Eftir dauða Picassos hefur Jacque- line ríkt yfir eignum sínum eins og drottning í ríki sínu. Vopnaðir verð- ir, varðhundar og rafmagnsgirðingar umkringja hús hennar. Arum saman klæddist hún sorgarklæðum og ferð- aðist um með fimm manna lífvörð. Jacqueline var - og er enn - áhrifa- manneskja í Frakklandi. Þegar Pablito lést af völdum bleikiefnisins. sem hann drakk í júlí 1973. voru vfir 50 ljósmyndarar við útför hans. Þó birtist ekki ein einasta mynd af út- förinni í nokkru blaði. Og í Suður- Frakklandi, í héraðinu í kringum Chateau de Vauvenargues og Moug- ins, er ekki talið ráðlegt tala ógæti- lega um frú Jacqueline og eignir hennar. Pablo Picasso var einstakur. risi í samtímanum. Æviferill hans var ævintýri líkastur en eftirmálar hans eru eins og dæmisögur fyrir nútíma- menn. Hver og einn getur dregið af þeim sínar ályktanir. . (Stuðst við Sunday Times Magaz- ine, Art. Forum o.fl. blöð) hrestur í fjölskyldumynstur hans. Paulo einum var boðið til brúð- kaupsins. Þó hafði Picasso stuttu áður leyft Claude og Palomu að kalla sig Picasso-Ruiz. En það leyfi var út af fy rir sig ekki lagaleg viðurkenning á rétti þeirra. Picasso var áttræður þegar hann gifti sig öðru sinni. Þá var hann far- inn að þreytast og Jacqueline virðist hafa ákveðið að verja hann fyrir öll- um utanaðkomandi truflunum. Listsköpun hans skipti öllu máli. Ættingjar Picassos fengu æ sjaldnar að heimsækja hann. Þeim var sagt að „meistarinn væri að vinna" eða „meistarinn væri sofandi“. Fyrir vikið töldu þeir að Jacqueline vildi sitja ein að gamla manninum, og þar með arfinum. Vinir Jacquel- ine hrósa henni fyrir ósérhlífni hennar á þessum árum og segja að hún hafi verið vakin og sofin í um- hyggju sinni fyrir Picasso. Bálillur yfir bókinni Sjálfsævisaga Francoise Gilot, Sambúð okkar Picassos, sem út kom 1963, jók enn á missættið í fjölskyldu Picassos. Hann var sjálfur bálillur yfir bókinni og reyndi að fá hana bannaða sem „atlögu að einkalífi“ UTANKJÖRSTADASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS__________________ ___Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæö. Simar: 688322 og 688953 Upplýsingar um kjörskrá o.fl. Sjálfstæðisfólk, vinsamlegast látið skrifstofuna vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á kjördegi, 31. mai nk. FRÁ HÉRAÐSSKÓLANUM í REYKHOLTL BORGARFIRÐI Innritun vegna nýrra nemenda er að hefjast. Umsókn- arfrestur er til 20. júní nk. Námsframboð skólaárið '86-87 verður eftirfarandi: Famhaldsnám á almennri bóknámsbraut, viðskipta- braut, íþróttabraut, heilsugæslubraut og uppeldisbraut fjölbrautaskólans. Einnig verður 9. bekkur starfræktur við skólann. Um- sóknir sendist merktar Héraðsskólanum í Reykholti, 320 Reykholt, Borgarfirði. Allar nánari upplýsingar gefa skólastjóri og yfirkenn- ari í símum 93-5200, 93-5201 og 93-5210.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.