Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986. 7 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Tæplega 80% fall í almennri lögfræði: ff Sæmilegir námsmenn leika sér að þessu“ - segir Sigurður Líndal lagapröfessor Aðeins 23% nemenda sem þreyttu próf í almennri lögfræði við Háskóla íslands náðu prófi að þessu sinni. 164 nemendur voru skráðir í próf í al- mennri lögfræði á fyrsta ári í lagadeild. 124 þeirra mættu í prófið, en aðeins 28 þeirra, eða 22.6%, hlutu lágmarkseinkunn eða hærra. Nærri f]órir af hverjum fimm, eða 77.4%, féllu því á prófinu. Upptökupróf verða haldin í haust og þá mun nokkur hluti hinna ólánsömu fall- ista fylla hóp hinna 28 sem náðu í fyrstu atrennu. Lágmarkseinkunn í almennri lögfræði er 7 og því hefur löngum verið talsvert fall, en nú þykir keyra um þverbak. Ekki þungt próf „Nei, þetta var ekki þungt próf,“ sagði Sigurður Líndal lagaprófessor í samtali við DV, en hann kenndi almennu lögfræðina. „Ég held að sæmilegir námsmenn leiki sér að þessu. Þvi miður er það ekki aðeins í lagadeild sem námsárangri hrakar. Á þessu eru margar skýringar og þeirra verður að leita í skólakerfinu í heild. í fyrsta lagi hefur stúdentsprófið í raun verið lagt niður. Undirbúning- ur þeirra sem setjast í háskólann er mjög misjafn. Það er allur íjand- inn inn í þessu svokallaða stúdents- prófi enda er það orðið naftiið tómt. Ýmsar hagnj'tar greinar, sem kenndar eru í framhaldsskólum, eru ekki nein þjálfun fyrir háskólanám. Lenska að lesa lítið fyrir próf I öðru lagi hefur verið dregið veru- lega úr kröfum i framhaldsskólum. í mennta- og fjölbrautaskólum virð- ist vera lenska að að menn lesi lítið sem ekkert fyrir próf. í þeim skólum sem gefa skiljanlegar einkunnir, (tölur en ekki bókstafi), fjölgar þeim nemendum sem fá þriðju einkunn. Fjölgun nemenda á þessu skólastigi er nánast öll á þessu einkunnabili. í almennu lögfræðinni er lágmarks- einkunn tæp fyrsta einkunn, 7.00, og það er segin saga að flestir nem- endur halda áfram að lesa bara til að fá þessa gömlu góðu þriðju eink- unn sína. Þeir sem hingað til hafa skriðið á litlum kröfiim gjalda þess. Lögfræðingar verða að kunna íslensku I þriðja lagi komast menntaskóla- nemendur upp með slúx. Við í lagadeild erum ekki þau einu sem verðum vör við þetta. í verkfræði- og raunvísindadeild er farið að kenna ýmislegt sem nemendur ættu skilyrðislaust að vera búnir að læra á menntaskólastigi. Stúdentar setj- ast nú í háskóla án þess að geta Sigurður Líndal: Margar ástæður fyrir lélegum prófárangri nemenda við Háskóla íslands. gert sæmilega grein fyrir hugsun sinni. Það getur enginn orðið lög- fræðingur sem ekki getur sett mál sitt fram á skilmerkilegan og tilgerð- arlausan hátt og því er sjálfssagt að gera þá kröfu að nemendur kunni íslensku. Heimta hærri einkunnir, minni vinnu I fimmta lagi tel ég að hægt sé að skýra slæman námsárangur með því að nemendur eru að sinna öðru. Lífs- gæðakapphlaupið glepur fyrir þeim. Stúdentar vilja vera búnir að gera allt fyrir þrítugt: giftast, eignast böm, eignast bíl, byggja, fara í utan- landsferðir, eignast allt sem hugur- inn gimist. Námið situr á hakanum. í þessu sambandi má nefha að verka- lýðsbaráttan er í rauninni komin inn í háskólann. Stúdentar og þeirra samtök hafa gleypt við lífsviðhorfi; að krefjast sem hæstra launa fyrir sem minnsta vinnu. Þannig er kraf- ist hærri einkunna, hærri gráða fyrir sem minnsta vinnu, og hærri náms- lán og minni endurgreiðslur. I sjötta lagi er Háskóli íslands al- gjörlega vanbúinn til að taka við hinum mikla nemendafjölda. Þegar ég byrjaði að starfa við lagadeild hafði hún nýverið eignast eigið hús, Lögberg. Húsið þótti vel við vöxt fyrir 14 árum en nú er svo komið að kennt er í Tónabæ. Þá komu 20 stúdentar inn á ári, nú eru þeir 200. Háskólanum er ekki gert kleift að rækja hlutverk sitt. Tónlistaskólar og myndlistaskólar fá að setja eigin reglur um inntokuskilyrði en há- skólanum er meinað að gera slíkt. Þetta er að drepa allt niður. ekki aðeins nemendur heldur líka okkur kennarana, því við höfum vart tima til að gera annað en kenna og fara yfir próf. Við getum of lítið sinnt fræðistörfum, svo sem að semja kennsluefhi. Á sama tíma gaspra námsmenn um lánamálin sí og æ, en þegja þunnu hljóði um fjársvelti menntastofhana í landinu. Það heyrðist ekki orð frá þeim þegar hætt var við byggingu Þjóðarbókhlöðunnar. Glepur djöfulgangurinn? Ég held að þetta séu veigamestu ástæðumar fyrir því að námsárang- ur fer versnandi ekki aðeins í almennu lögfræðinni hjá mér heldur víðar. Og kannski má nefna eitt enn. Glepur ekki djöfulgangurinn í þjóð- félaginu fyrir námsmönnum? Öll þessi blöð, tímarit, útvörp, sjónvai-p. Alls staðar er ærandi hávaði, það er aldrei næði. Það er svo komið að ungu fólki líður illa í þögn. Og þá er illa komið,“ sagði Sigurður Líndal að lokum. ás. Rætt við lánar- drottna Amarflugs Málefni Arnarflugs eru enn í óvissu. Um 40 aðilar bíða með að leggja fram fjármagn, samtals um 100 milljónir króna, til að reisa við félagið þangað til niðurstaða er fengin úr viðræðum við stærstu lánardrottna þess. Undanfamar vikur hefur verið rætt við kröfuhafa, bæði innlenda og er- lenda, um að fella niður kröfur eða breyta skammtímaskuldum í lang- tímalán. Er ekki séð fyrir endann á þeim viðræðum. Fyrfr liggja lög frá Alþingi sem heimila fjármálaráðherra að veita Amarflugi ríkisábyrgð fyrir allt að 100 milljóna króna láni. Talið er að'skuldir Amarflugs um- fram eignfr séu á bilinu 200 til 250 milljónir Jcróna. -KMU Húsbyggjendur og verktakar - sparið peninga! Það er dýrt að byggja, um það eru allir sammála. Því er mikilsvert að spara peninga þar sem því verður við komið. Fyrirtækið KÍord-Skand er þékkt á öllum Norðurlöndum vegna flutninga þess á byggingavörum frá verksmiðjum beint til kaupanda. Fyrirtækið útvegar og flytur timbur, glugga, hurðir, plötur, innréttingar og einangr- un. Þið sendið okkur teikninguna og við sendum öll gögn um hæl - ykkur að kostnaðarlausu. Við sjáum um flutningsskjöl og tollpappíra. Margir flutningsmöguleikar. Við flytjum vöruna hvert sem er á íslandi. Hjá okkur starfar íslénskur forstjóri. Spyrjið um Níels Jón Þórðarson. Biðjið um tilboð - berið saman - sjáið hvað unnt er að spara! ord-Skand Postboks 297,9501 Alta N 9501 ALTA, NORGE. SÍMI 084-35344. COSTADEL SOL - BENIDORM MALLORCA - COSTA BRAVA Eftirsóttar íbúðir og hótel - Gerið sjálf verðsamanburð mi Spánn - flug og bíll NYTT! 3 vikur 26. júní, kr. 17.800,- íslenskir fararstjórar - Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir FIUGFERDIR SGLRRFLUG Vesturgötu 17 símar 10661,15331, 221OO.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.