Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1986, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 1986. Merming Óperan Tosca etlir Giacomo Puccini i sýn- ingu Þjóðleikhússins 11. október. Hljómsveitarstjóri: Maurizio Barbacini. Leikstjóri: Paul Ross. Leikmynd og búningar: Gunnar Bjarnason. Lýsing: Kristinn Daníelsson. Elísabet F. Eiríksdóttir sem Tosca, en Malcom Arnold er Scarpía. Í helstu hlutverkum: FLoria Tosca: Elisabet F. Eiríksdóttir, Mario Cavaradossi: Kristján Jóhannsson; Scarpia: Malcolm Amold; Cesare Angelotti: Viöar Gunnarsson; Spo- letta: Siguróur Björnsson; Sciarrone: Sigurður Bragason; Sacristan djákni: Guð- jón Grétar Óskarsson; Fangavöröur: Stefán Amgrímsson. Liðnir eru hartnær þrír áratugir síðan Tosca var hér síðast á sviði og í bamsminni er manni hvemig Stef- anó, Guðmundur og Guðrún Á. brilleruðu. Síðan hefur Tosca átt sérstakan sess í hjartanu og ósjálfr- átt hefur maður jafnan borið sýning- ar, jafnvel írægustu ópemhúsa veraldarinnar, saman við þessa sýn- ingu og stundum hefur slegið folva á ljóma húsanna frægu. Slíkt mat og samanburður byggist á tilfinn- ingu einni saman og þeim áhrifum sem framlag einstakra söngvara og sýningin í heild hefur á mann. Þann- ig hlýtur einnig að fara um þessa uppfærslu Þjóðleikhússins. Mikið í lagt og vel til vandað Strax í upphafi verður þess vart að töluvert er í sýninguna lagt. Hljómurinn úr hljómsveitargreninu (gryfja er einum of tilkomumikið nafh á þessa holu) hefur sjaldan, ef nokkum tíma, borist jafn þykkur og þéttur upp í salinn. Og svo var það öðlingurinn Barbacini sem hélt á tónsprotanum. Menn vita hvað þeir hafa þar sem hann er - nánast gull- tryggingu fyrir kórréttum stíl og smekklegum vinnubrögðum. Á því var engin undantekning að þessu sinni. Sviðsmyndin kemur kunnuglega fyrir sjónir, enda víst lítið vit í að reyna að færa þessa mjög svo stað- bundnu ópem til í rúmi. Bygging- amar hefúr hver sem borgina eilífu hefur heimsótt barið augum, þekkir stílinn og kann því að sjálfsögðu illa ef út af er vikið. Hér er því allt kirfi- lega og snyrtilega innan hefðbund- ins ramma. Lýsingin fellur svo eðlilega að sviðsumhverfinu að hennar verður tæpast vart sem sérs- taks þáttar. Líkast til er það galdur góðrar lýsingar. Rétttímasetning, allt niður í smáatriði Sýningin er færð til tíma fasismans á Italíu, nánar tiltekið ársins 1937, og er leikstjóranum mikið í mun að svo verði í einu og öllu. Búningar, leikmunir, fas og hvað eina er látið vitna um rétt tímabil-allt niður í gaskveikjarann á borðinu hjá Scarp- ia (eða kannski vom ítalir svona vel Tónlist Eyjólfur Melsted á undan í tækninni þá). Þann plag- sið að láta alla einsöngvarana vera reykjandi í tíma og ótíma er mér, fyrrverandi stórreykingamanni, illa við, en hygg að leikstjórinn réttlæti ákvörðun sína með tilvísan til kvik- mynda viðkomandi tímabils þar sem menn sögðu vart setningu án þess að fá sér smók áður. Tímatilfærslan, sem á sér á sinn hátt allríka hefð, tekst sem sagt í flestu mjög vel. Sýn- ingin rennur lipurlega og aðeins æðibunutraffíkin um kirkjuna í fyrsta þætti fannst mér ekki passa inn í það mynstur sem hæfði. Kristján frábær Cavaradossi Kristján Jóhannsson er frábær Cavaradossi. Hlutverkið passar hon- um eins og klæðskerasaumuð föt. Hvort um nýja stefnu er að ræða hjá Kristjáni veit ég ekki, en aldrei hefur mér fundist hann svo bljúgur, einbeittur en um leið meðvitaður um túlkun hlutverks sem nú. Hér söng hann Cavaradossi - ekki Kristján Jóhannsson sjálfan, á sinn fyrrum goskarlalega hátt - og þykir mér hann ekki hafa risið svo hátt í túlk- un óperuhlutverks fyrr. Og þá var líka eins og hann þyrfti nákvæmlega ekkert fyrir hlutverkinu að hafa. Toscu syngur Elísabet F. Eiríks- dóttir og fer mjög vel með. Það dregur þó heldur úr að í fyrsta þætti liggur dramatískt hlutverkið iðulega lágt, en í hæðinni er styrkur Elísa- betar mestur. Því nær hún svo rækilega upp í seinni þáttunum. Illa valið og góöum söngvara lítill greiði gerður Til að syngja Scarpia var sóttur flauelsmjúkur, lýrískur barýton vestan um haf, Malcolm Arnold. Prýðissöngvari, en hæfir jafnilla í hlutverk Scarpia og Kristján Jó- hannsson vel í hlutverk Cavaradossi og er honum lítill greiði gerður með þessari ráðstöfun. Verður honum vonandi bætt fyrir með því að fá hann hingað aftur seinna og þá í viðeigandi hlutverk. Viðar Gunnarsson gerir flótta- fanganum, sem á sinn hátt er valdur að vanda og örlögum Toscu og Ca- varadossi, góð skil. Án þess að yfirdrífa í neinu tekst honum að koma angist og örvæntingu, en líka baráttuvilja hins hundelta til skila í söng sínum. Einn kom á óvart Á þá kumpána, lögreglufulltrúana Spoletta, Sciarrone og svo fanga- vörðinn reynir ekki tiltakanlega mikið að öðru leyti en því að þeir geti látið hæfilegan skammt af ill- " mennsku og hrottaskap birtast i gegnum söng sinn. Það tókst þeim mæta vel, Sigurði Björnssyni, Sig- urði Bragasyni og Stefáni Amgríms- syni. Kórinn skilaði sínum hlut með prýði, að frátöldum æðibunugangin- um í kirjunni í fyrsta þætti, sem skrifast á reikning leikstjórans. Hjarðsönginn í upphafi þriðja þáttar fór Ásdís Kristmundsdóttir mjög vel og smekklega með. Aðeins einn söngvari í þessari sýn- ingu kom mér á óvart, líkast til vegna þess hve lítið ég hef til hans heyrt til þessa. Guðjón Grétar Óskarsson hreinlega brilleraði í hlutverki djáknans Sacristans. Hann er enn í námi en það verður spennandi að fá að fylgjast með því hvað úr þessu mikla efhi verður. „Professional“, en festist tæplega í minningunni v í heild er þessi uppfæi-sla Þjóðleik- hússins á Toscu mjög svo „professio- nal“, hefðbundin vel og gæti hvað fagleg vinnubrögð snertir sómt sér nánast hvar sem er. Ég get með góðri samvisku borið hana saman við sýn- ingar þekktra ópemhúsa, sem í sumum tilvikum hafa skartað heims- nöfiium. Það er vissulega gaman að verða vitni að góðri fagmennsku, hvar sem er og hvenær sem er, ekki síst á heimaslóð. En ég reikna samt varla með að þessi uppfærsla á Toscu búi sér neinn varanlegan samastað í minningunni. EM Vormenn íslands Eyjólfúr J. Eyfells var einn af vor- mönnum íslenskrar málaralistar, ekki aðeins vegna vorhuga síns og staðsetningar í tímanum heldur fyrir þá heiðríkju og blíðu sem ævinlega ríkir í myndum hans. Sú veðursæld er svo aftur myndgerving þess já- kvæða hugarfars sem gagntók marga Islendinga við upphaf aldar- Myndlist Aðalsteinn IngóHsson innar og birtist á einna áhrifamestan hátt í málverkum Þórarins B. Þor- lákssonar. í augum Eyjólfe J. Eyfells var ís- land ætíð fagurt og frítt og sú hlutlæga fegurð skipti hann alla tíð meira máli en aðfengnar hugmyndir um fegurðina, með tilheyrandi stíl- brögðum. I viðtali sagðist hann hafa velt fyrir sér að gerast bóndi, til að fegra jörðina og bæta, eða listmálari, til að mála þessa sömu jörð. Og þá kannski bæta hana líka, hver veit? Listamaðurinn kom sér hægt og sígandi upp haldgóðri tækni til að festa á striga þessa mynd- og lífesýn sína, meðal annars í Dresden (1923-24), höfuðvígi raunsærrar myndlistar í Þýskalandi á þeim tíma. Á yfirlitssýningu Eyfells að Kjar- valsstöðum eru einmitt manna- myndir (nr. 89-92?), sem sverja sig í ætt við afar hefðbundna þýska list. Að því búnu hófet listamaðurinn handa og hélt að miklu leyti sama kúrsinum til dauðadags. Sleiktar og stifar. Fyrsfu árin eru myndir Eyfells sleiktar og fremur stifar í uppbygg- ingu, sem er til vansa þegar hann tólkar hreyfingu, öldurót eða ský- bólstur á hraðferð um himinhvolfin. Sjálf samsetning þessara mynda breytist einnig lítið í tímans rás, for- grunnur er rofinn af einhverju frumlagi, kannski bóndabæ, hæð eða hríslum, sem síðan leiðir augað áreynslulaust að andlaginu í fjarska, fjallahring eða stöðuvatni. m-------------------------------- Eyjolfur J. Eyfells - Horft til Lómagnúps, málverk. Og alltaf er sama góðviðrið í þess- um elskulegu myndum, hvað sem á gengur í tímanum. En í ellinni er eins og losni um málarahönd listamannsins og birti yfir litum hans. Pensildrættimir verða smágervir og kvikir, impress- jónískir, og túlka ekki bara sjálfa sýnina heldur einnig innilega sjón- gleði. Eyfells gerði ekki miklar kröfur til okkar. Því væri fásinna af okkur að gera óraunhæfar kröfúr til hans. List hans er ljúf, lágmælt og hrein- skiptin, mótvægi við hina hrjúfu, háværu og margræðu landslagshefð, sem mest hefur borið á hérlendis á undanfomum áratugum. Því verðskuldar Eyfells yfirlits- sýningu ekki síður en margir aðrir. Á hinn bóginn er afleitlega staðið að þeirri yfirlitssýningu hans, sem nú stendur yfir að Kjarvalsstöðum. Hún er illa hengd, kynnt og í skrána vantar allar helstu upplýsingar um verkin, svo sem ártöl. -ai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.