Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Blaðsíða 40
p A S K O T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskríft - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháÖ dagblaö FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986. Verkfall boð- að við Blöndu- virkjun Jön G. Haukssan, DV, Akureyii „Við boðuðum verkfall um síðustu helgi og ef ekkert gerist skellur það á um miðnstetti á mánudagskvöld. Þá fara um 50 starfsmenn í verkfall," sagði Kristinn Gissurarson, trúnaðar- maður starfsmanna við Blönduvirkj- un, í gærkvöld. Kristinn sagði að ef til verkfalls kæmi myndu nánast allar fram- kvæmdir við Blönduvirkjun stöðvast en þar er nú unnið við jarðgangagerð og stöðvarhús, auk ýmissa annarra framkvæmda. Kristinn sagði ennfremur að kröf- umar væru þær að starfsmenn fengju ^sömu grunnlaun og væru sambærileg ^fijá sömu hópum í þéttbýli. Hann vildi ekki segja hve háar kröfurnar væru í prósentum talið en samkvæmt heim- ildum DV nema þær 15% hækkun á grunnlaun. „Virkjunarsamningarnir hafa verið lausir frá því í desember á síðasta ári en það hefur lítið gerst. Farið var af stað í maí-júní en eftir það hafa við- ræður að mestu legið niðri,“ sagði Kristinn. „ Bannað að flytja inn rauðgreni Landbúnaðarráðuneytið hefur bannað allan innflutning á rauðgreni fyrir næstu jól. Er ákvörðunin tekin til verndar íslenskri framleiðslu þvi talið er að íslenskt rauðgreni sé til í ,því magni að nægi til að anna eftir- spurn eftir þessari gerð jólatrjáa. Rauðgreni er hið sígilda íslenska fjölskyldujólatré og ódýrara en marg- ar aðrar innfluttar tegundir. Er talið að meðalstórt rauðgrenitré muni kosta innan við þúsund krónur fyrir jólin. ^Aðrar innfluttar tegundir geta hins vegar kostað um tvö þúsund krónur. „Ætli markaðurinn fyrir jólatré í ár sé ekki um 30 þúsund stykki,“ sagði Kristinn Skæringsson hjá Skógrækt ríkisins í samtali við DV. „Þar af er innlend framleiðsla um þriðjungur, langmest rauðgreni." -EIR \Æ\ Ert þú á leið í /MIKLAG4RD? MxZíiíttiinii LOKI Er forvaliö bara ekki búið? Foival Alþýðubandalagsins í Reykjavík: Kjömefndin lokaði á formann félagsins ,Ákveðinn þungavigtarmaður þrýsti á nefndina," segir Guðni Jóhannesson „Mín skoðun er sú að ákveðinn þungavigtarmaður á listanum hafi þrýst á kjörnefndina,“ segir Guðni Jóhannesson verkfræðingur, for- maður Alþýðubandalagsfélagsins í Rcykjavík. Kjömefhd ætlaði að hættt honum á forvalslista vegna þingframfxtðs. í gær ákvað hún að fjölga ekki á listanum. „Það er rétt að við höfðuni áhuga á að bæta ;í listann. Þegar það frétt- ist fóm hins vegar svo margir á flot að við ákváðum að hætta við þetta. Við álítum að ef fjöldi fólks hefði bæst við, hefðu atkvæði dreifst allt of mikið. Það er alrangt að við höf- um látið undan þiýstingi til þess að loka listíinum,“ segir Hrafn Magn- ússon franikvæmdastjóri, formaður kjömefndar. „Þegar Ólafur Ragnar Grímsson lýsti vfir framboði í Reykjaneskjör- dæmi voru aðeins nokkrir klukkut- ímar þar til framboðsfr&sti til forvalsins lyki. Það myndaðist ákveðið tómarúm en enginn tími var til þess að fhuga málin á ný,“ segir Guðni. „Þetta var á fimmtudaginn fýrir viku. Um helgina liafði mynd- ast hópur stuðningsmanna sern vildi að ég færi í forvalið. Hrafn hafði samband við mig á mánudaginn og bauð mér þátttöku og ég hef vissu fyrir því að aðrir kjömefridannenn sem í náðist voru þessu sammála.“ Samkvæmt heimildum DV var álíka statt fyrír Páli Valdimarssyni. verkamanni í Dagsbrún, og jafnvel fleiri. Kjömefnd lokaði á þá í gær. Heimildimar segja að stuðnings- menn Guðrúnar Helgadóttur hafi ætlað að kjósa hana í annað sæti og Guðna í þriðja. Gegn þessu hafi Ásmundur Stefánsson beitt sér með stuðningi Álfheiðar lngadóttur. HERB Framrúðu fátækari Það er sprengt i hinum ýmsu heimshomum - jafnvel uppi á íslandi. Sjaldnast em skemmdarverk tilgangurinn hérlendis en sprengjuframkvæmdir við SÍS-skemmurnar við Holtagarða gerðu þó í gærdag bíieiganda einni framr- úðu og bilþakshorni fátækari. Óviljaverk að sjálfsögðu sem varð af völdum steinkasts frá sprengingunni. -baj DV-mynd GVA Veðrið á morgun: Víða strekk- ings- vindur Austan- og norðaustanátt og víða strekkingsvindur. Slydda eða rign- ing við norður- og austurströndina en skúrir í öðrum landshlutum. Hiti verður á bilinu 2-7 stig. Alþýðuflokkur næststærstur Alþýðuflokkurinn eykur fylgi sitt vemlega, samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar um síðustu mánaðamót, sem Morgunblaðið birtir í morgun. Mælist fylgi Alþýðuflokks- ins 24,1 prósent. Sjálfstæðisflokkur tapar miklu og fær nú fylgi 33,6 prósent þeirra sem taka afstöðu. Framsóknarflokkur, með 17,3 pró- sent, styrkir heldur stöðu sína en fylgi Alþýðubandalags, 15,4 prósent, og Kvennalista, 8,7 prósent, minnkar lí- tillega. Fylgi Bandalags jafnaðar- manna mælist 0,5 prósent og Flokks mannsins 0,3 prósent, „Það sem er einkennandi fyrir þessa niðurstöðu er að við jafnaðarmenn vinnum í fyrsta sinn verulegt fylgi af Sjálístæðisflokki. Að öðm leyti stað- festir þetta þróun tveggja síðustu kannana, Helgarpósts og DV, sem hafa sýnt Alþýðuflokkinn sem næst- stærsta flokk þjóðarinnar," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins. „Alþýðuflokkurinn virðist bæta stöðu sína meðal annars á kostnað Sjálfstæðisflokksins. Kosningabarátt- an er rétt að byrja. Úrslit kosninganna ráðast þegar talið er úr kjörkössunum og því kvíðum við ekki,“ sagði Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins. _______________________-KMU Hólmfriður tekur ofan Hólmfríður Karlsdóttir tekur kórón- una ofan í kvöld og krýnir nýja alheimsfegurðardrottningu í Royal Albert Hall í London. íslenski þátttak- andinn að þessu sinni er Gígja Birgis- dóttir, 18 ára frá Akureyri, sem að undanfömu hefur starfað sem banka- mær í Grensásútibúi Iðnaðarbankans í Reykjavík. „Gígja er ákaflega spennt þarna úti, nýkomin úr ferð til Austurlanda með hinum keppendunum,“ sagði móðir hennar, Alma Möller, í samtali við DV í morgun. Gígja er ekki ein á báti í London því faðir hennar og systir em henni til halds og trausts. Engu skal spáð um úrslit en íbúar við Faxaflóasvaeðið geta fylgst með þeim í beinni útsend- ingu á Stöð 2 klukkan 20.30 - ótruflað. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.