Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 68. tölublaš - Helgarblaš  II 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUGARDAGUR 21. MARS 1987.

61

Popp

Eauðliðamir reiðubúiúr

Þá hefur Simply Red fylgt eftir

myndbókinni með nýrri plötu, Men

and Women. Ekki mjög frumlegt

nafh. Picture Book er reyndar enn á

breska breiðskífulistanum og hefur

verið þar allt frá því að hún kom út

fyrir tveim árum.

Nýja platan inniheldur tíu lög, þar

á meðal The Right Thing sem hefur

sést víða á vinsaeldalistum. Það er

Alex Sadkin sem stjórnar öllum upp-

tökum á plötunni. Lógin tíu koma

úr ýmsum áttum. Mick Hucknall

semur til að mynda tvö þeirra í félagi

við lagasmiðinn Lamont Dozier.

Simply Red hefur einnig leitað fanga

í smiðjum eldri lagahöfunda. Þannig

er að finna á plötunni lag eftir Bunny

Wailer, Love Fire og Let Me Have

it AU eftir Sylvester Stewart. Síðast

en ekki síst reynir Simply Red sig í

laginu Evry Time We Say Goodbye

eftir Cöle Porter.

A feröalagi

„Meðan við vorum að taka upp

plötuna lét ég loksins verða af því

að kaupa plötu þar sem Ella Fitz-

gerald syngur lög eftir Cole Porter,"

sagði Mick Hucknall. „Þá gerði ég

mér grein fyrir hversu stórkostlegur

Helgarpopp

Þorsteinn J. Vilhjálmsson

laga- og textahöfundur hann er. Við

stóðumst einfaldlega ekki mátið og

hljóðrituðum eitt þessara laga."

Simply Red ætlar að fylgja nýju

plötunni eftir með hljómleikaferð.

Fyrirhugað er að upprennandi soul-

söngvari, Terence Trent D'Arby, hiti

upp fyrir hana á þessum tónleikun-

um. Við hefðum svo sem ekkert á

móti því að hún kæmi hér við aftur.

Simply Red. Ný plata og hljómleikaferð.

Tímanna tákn

„Mjósleginn óþekktur maður deyr í

Frakklandi, úr skeinuhættum sjúkdómi.

Innan stundar stingur vinstúlka hans

sig á nál og fer sömu leið." Þetta gæti

verið tímanna tákn, sjúkdómurinn Aids.

Kannski ekki. Það veit einungis Prince.

Hann er snúinn aftur, tvífari Nelsons

flotaforingja hvað hugrekki og þor

snertir. Sign o'the Times heitir nýjasta

lagið hans. Þar fjallar hann um ýmislegt

sem viðkemur hinum almenna borgara

í nútímaþjóðfélagi, eymd, ofbeldi, jafnvel

hamingju. Hann fer um eins og storm-

sveipur.                                        -\

Reyndar er varla um eiginlegt lag að

ræða. Prince syngur með aðstoð örfárra

hljóðfæra. Aðalhljóðfærið er rödd hans

sjálfs. Hvert orð er þrungið slíkri tilfinn-

ingu að áheyrandinn er næstum borinn

ofurliði. Alveg ótrúlega áhrifamikið.

Kvisast hefur að Prince hyggist jafn-

framt senda frá sér nýja plötu á næs-

tunni. Sögusagnirnar segja ennfremur

að hugsanlega verði þær tvær, með rúm-

lega tuttugu nýjum lögum. Það er varla

að maður geti beðið.

Prince með nýtt lag.

Suzanne af stað

Suzanne Vega er að vinna áð nýrri plötu.

Þetta er önnur sólóplata hennar. Hún á

að heita Tom's Diner. Sú fyrsta kom út

fyrir tæpum tveim árum. Lagið Marline

on the Wall vakti nokkra athygli og sömu-

leiðis Left of Center sem notað var í

myndinni Pretty in Pink.

Nokkuð er siðan Suzanne fór að vinna

að plötunni. „Hún var rúmlega hálfnuð

með upptökurnar þegar hún hætti skyndi-

lega við allt saman" sagði Jim Babjak í

Smithereens í samtali við DV. „Hún var

einfaldlega ekki nógu ánægð með árang-

urinn."

Suzanne hefur þá væntanlega komist á

fljúgandi ferð eftir samstarfið við Smit-

hereens í In a lonley place. Áætlað er að

nýja platan Tom's Diner kom út síðar á

þessu ári. Vega var nýlega á ferð í Bret-

landi og hélt þar tvenna tónleika. Þó

uppselt hafi verið á báða minnist hún

áhorfendanna með nokkrum hryllingi.

„Þarna voru krúnurakaðir strákar, mið-

aldra menn í afkáralegum fötum og

stelpur sem voru lesbíur eða eitthvað í þá

veruna. Það er eins og fólk ætlist til þess

að ég sé alvörugefin, þunglynd eða óham-

ingjusöm. Það er ég alls ekki. Ég er, þegar

allt kemur til alls. töluvert sniðug," segir

Suzanne hress.

Suzanne Vega. „Ég er töluvert sniðug.'

Nokkur poppkorn

•Bandaríkjamenn eru viðkvæmur

þjóðflokkur. Duran Duran þurfti

snarlega að skipta um umslag 12

tommu plötunnar Skin Trade. Upp-

haflega gat þar að líta snotrar

kvenmannslendar. Forráðamenn

Capitol útgáfufyrirtækisins voru

hins vegar hræddir um að bossinn

sá arna kynni að styggja dreifing-

araðila plötunnar í Bandaríkjun-

um. I staðinn var umslagið litað

skærrautt. Hinum megin landa-

mæranna, í Kanada, geta áhugas-

amir hins vegar náð sér i Skin

Trade- lagið í upprunalega umslag-

inu. Siðgæði þarlendra er ekki

meira en það...

•í Kanada hefur rokkarinn Bryan

Adams einmitt verið að störfum

undanfarna mánuði. Hann hefur

hljóðritað nýja plötu í Vancouver

ásamt hljómsveit sinni. Bryan hef-

ur verið heldur fámáll um innihald

þessarar fimmtu breiðskífu sinnar.

„Ég hef eytt miklu meiri tíma en

áður í textana," sagði hann þó á

dögunum. „Titillagið er til dæmis ¦

um náunga sem er á krossgötum í

Jagger með nýja sólóplötu.

lífi sínu. Á hann að halda áfram á

sömu braut eða breyta til?"

Tímafrek textagerð? Bryan sjálf-

ur breytir greinilega ekkert til.

•Joe Jackson hefur líka verið að

hljóðrita nýja plótu. Hljómsveitin

er í fjölmennara lagi. Hún telur

alls fimmtíu manns. Sveitin á enda

að bera hita og þunga plötunnar

sem er hugsuð 'sem tónverk frá

hendi höfundarins. Verkið heitir

Will Power. Jackson er maður sem

veit hvað hann vill.

•Fleiri popparar af gamla skólan-

um hreiðra um sig í hljóðverum

þessa dagana. Mick Jagger er að

vinna að annarri sólóplötu sinni.

Jafnaldri hans, Jeff Beck, hefur

verið ráðinn til að spila með á gít-

ar. Jagger er þessa dagana á

Barbados með Dave Stewart að

semja nokkur lög. Hann ætlar þó

að semja mestallt efnið sjálfur. Af

fleiri hljóðfæraleikurum, sem koma

fram á plötunni, má nefna tromm-

arann Omar Hakim, fyrrum liðs-

mann Whether Report og

hljómsveitar Sting. Platan á sam-

kvæmt áætlun að koma út í haust.

• Ekki er allt sem skyldi í herbúð-

um Frankie Goes to Hollywood sem

um þessar mundir er á tónleika-

ferðalagi. Sögusagnir segja að

Holly Johnson hyggist slíta sam-

starfinu við félaga sína og reyna

fyrir sér á eigin spýtur. Eða öfugt.

Johnson sagði'nefnilega í blaðavið-

tali fyrir skömmu að í rauninni

væri honum alveg sama um hljóm-

sveitina. Aðrir liðsmenn eru

þannig ekkert sérlega hrifhir af

honum lengur. Mark OToole sagði:

„Ég reikna með því að við hættum

strax eftir þessa ferð."

• Boy George er ekki eini tónlist-

armaðurinn  sem  á  í  stríði  við

Frankie að hætta?

yfirvöld vegna heróíneyslu. Bassa-

leikari Smiths, Andy Rourke, var

sektaður um 1.000 pund í vikunni

sem leið. Hann var handtekinn þar

sem hann var að versla eitrið af

manni í Oldham. Rourky hefur um

nokkurt skeið átt í vandræðum

vegna heróínneyslu og hefur

reyndar einu sinni yfirgefið hljóm-

sveitiha vegna þessa.

• Nick Cave var einnig sektaður í

vikunni fyrir að hafa heróín í fór-

um sínum. Hann var handtekinn á

flugvellinum í London og sektaður

um 145 pund. Gamli Clash tromm-

arinn, Nicky Headon, var einnig

handtekinn fyrir stuttu, sakaður

um dreifingu heróíns. Hann hefur

verið látinn laus gegn tryggingu

fram til 13. apríl. Umboðsmaður

hans segir að allt sé annars í

stakasta lagi hjá Headon. Hann

hafi á prjónunum að fara í tón-

leikaferð til Japan.

. Þar lenti Paul McCartney reynd-

ar einu sinni i slæmum málum

vegna eiturlyfja. Það ætti að vera

öðrum víti til varnaðar.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62