LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987. Stjórnmál Ber ekki róg á milli manna," segir Guðmundur Einarsson. DV-mynd EJ Ólga á Djúpavogi: Þingmaður sagður saka heimamenn um leti Þessir menn halda að þeir séu enn- þá í Reykjavík. En þeir fá að vita að það þarf að beita öðrum brögðum til að komast á þing fyrir landsbyggð- ina," sagði Ólafur Ragnarsson, sveit- arstjóri á Djúpavogi. Þar í bæ er mikil ólga meðal heimamanna vegna um- mæla er Guðmundur Einarsson, frambjóðandi Alþýðuflokksins lét falla á Hóm í Homafirði fyrir skömmu. Við höfum fjölda vitna að því að Guðmundur sagði að ástandið hér á Djúpavogi væri að lagast vegna þess að hér væru menn loks farnir að vinna allt árið. Við viljum hins vegar koma þeim skilaboðum til þingmannsins að framleiðsla á mann hér á Djúpavogi er með því mesta sem þekkist á landinu," sagði Ólafur sveitarstjóri. Guðmundur Einarsson alþingismað- ur kannaðist ekki við að hafa viðhaft umrædd ummæli er DV bar þau undir hann þar sem hann var staddur á kosningaskrifstofu Alþýðuflokksins á Egilsstöðum í gær. Þessi saga um Djúpavog var mér sögð þar á staðnum af heimamanni. Það hefur ekki hvarflað að mér að bera nokkurn róg um byggðir þessa kjördæmis á milli manna. Ég tel þetta vera pólitískan rógburð og hef reyndar heyrt fleiri gróusögur á kreiki varð- andi framboð mitt og annarra. Það er kannski viðurkenning á því að menn óttist framboð Alþýðuflokksins í þessu kjördæmi," sagði Guðmundur Einars- son. -EIR Hugljúfir iiii umar ökíímanns... iii ...gela hglega ei meö hröilegri martröö! YAKNADU MAÐUR! Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku- manría eru langalgengustu orsakir umferöarslysa. Flest slysin, verstu óhöppin, mestu meiöslin og flest dauösföllin verða þegar skilyrði ti! aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá slaka ökumenn á - og stef na sjálfum sér og öðrum vegfarend- um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax! (Niðurstaða úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiðingum umferðarslysa). 5AMVINNU TRYGGINGAR -gegngáleysi OPIÐ r\Li iO""Ji I ¦ F I A T UMBOÐIÐ SKEIFUNNI 8 - SÍM.I 688850