Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987.

23

Stjórrunál

Davíð Aðalsteinsson, Framsóknar-

flokki: ,jÞað er ekki efnalega sjálf-

stætt menningarþjóðfélag sem ekki

býr að landbunaði."

er vissulega fagnaðareíhi ef ný-

kratarnir í dag eru komnir frá villu

síns vegar.

Kratarnir og fleiri hafa jafnan vilj-

að kenna okkur við framsóknarára-

tuginn. En hver skyldi þessi

framsóknaráratugur hafa verið inn-

an þessara 16 ára? Hann var mesta

framfaraskeið íslensku þjóðarinnar

allrar. Það hefur aldreí nokkurn tím-

ann í sögu hennar verið önnur eins

uppbygging um allt ísland eins og þá.

Við viðurkennum visst tímabil í

erfiðleikum landbúnaðar og sjávar-

útvegs sem hefur orðið til þess að

þarna hefur orðið nokkur röskun.

En við ætlum bara að snúa dæminu

við, taka upp nútímaaðferðir og

byggja upp að nýju öflugt atvinnu-

líf, öflugar þjónustugreinar, út um

allt ísland og þar með sveitir lands-

ins, og við skulum sjá hvort ekki

verður þá framfaraskeið á ný."

Friðjón gleyminn

„Mér finnst Friðjón vera orðinn

býsna gleyminn í sambandi við inn-

flutninginn á niðurgreiddum fóður-

vörum ef hann man það ekki að

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki

viljað hefta innflutning á niður-

greiddu fóðri. Haldið þið að við

framsóknarmenn værum ekki löngu

búnir að taka öðruvísi á þessu máli

ef þessi andstaða hefði ekki verið?"

sagði Alexander.

Valdimar Indriðason, annar maður

Sjálfstæðisflokks, kom næstur upp:

„Efast nokkur um það að Fram-

sóknarflokkurinn hefði stoppað

innflutning á fóðurbæti ef hann hefði

ráðið einhverju? Hver er landbúnað-

arráðherra? Er það ekki Jón Helga-

son? Ég man aldrei eftir því að við

höfum verið að banna eða þeir hafi

leitað til okkar í þessum efnum."

Svona má ekki fara með hlut-

ina

„Davíð vinur minn talaði um bú-

vörulögin sem eru ágæt að mörgu

leyti en hann taldi að hefðu orðið

miklu betri ef Framsóknarflokkur-

inn hefði staðið einn að þeim. Ég

mótmæli þessu alveg. Það var lagað

mikið með því að Sjálfstæðisflokkur-

inn var hafður með. Svona má ekki

fara með hlutina, Davíð minn.

Svo kemur Skúli alveg á fullu og

talar um að það væri munur á fjár-

lögunum hjá Ragnari Arnalds en hjá

Þorsteini Pálssyni. Hann er búinn

að gleyma því að verðbólgan var 130

prósent þegar Ragnar skildi við á

vormánuðum 1983. Þetta eru aldeilis

gæði."

Valdimar lagði áherslu á meiri

markaðssókn erlendis fyrir dilka-

kjöt. Hann taldi það alls ekki full-

reynt hvort hægt væri að koma

dilkakjötinu á Bandaríkjamarkað.

Skarphéðinn Össurarson, fram-

bjóðandi Borgaraflokksins, kynnti

stefnuskrá flokksins í landbúnaðar-

málum. Hann sagði að aðrir flokkar

hefðu alltaf veifað stefnuskrá á fund-

um en svo blásið á hana um leið og

þeir hefðu gengið út.

Hefja ætti nýja atvinnusókn i

sveitum landsins með því að efla á

skipulegan hátt nýjar búgreinar og

aðra arðbæra atvinnustarfsemi.

Fólkið verður að fá að velja

fæðuna

Skarphéðinn sagði að landbúnað-

arforystan hefði alveg gloprað niður

þeirri búgrein sem kjúklingafram-

leiðsla væri. Hann varaði bændur

Valdimar Indriðason, Sjálfstæðis-

flokki: „Skúli var búinn að gleyma

þvi að verðbólgan var 130 prósent

þegar Ragnar Arnalds skildi við."

við að reyna að fara á móti straumn-

um. Vafalaust væri hægt að banna

kjúklingaframleiðslu en það væri

bara ekki það sem þjóðin vildi. Fólk-

ið í landinu ætti sjálft að velja sér

lífsfæðu og lífsstíl.

Ingibjörg Daníelsdóttir, annar

maður á Kvennalista, kynnti stefnu

flokksins í landbúnaðarmálum.

Kvennalistinn telur að sú stefna

sem fylgt hefur verið hafi einkennst

af fyrirhyggjuleysi og skammsýni.

Lausna hafi verið leitað af meira

kappi en forsjá.

Draga þurfi úr yfirbyggingu og

miðstýringu landbúnaðarins og

flytja valdið heim í hérað- Endur-

skoða þurfi sjóðakerfi landbúnaðar-

ins.

Úrvinnsla landbúnaðarafurða eigi

Prjónað undir framboðsræðum. Kvennalistakonan Ingibjörg Daníelsdbttir punktar niður.

að vera sem næst framleiðslustað.

Fullvinna eigi vörur innanlands.

Nauðsyn sé að halda landinu í

byggð. íslendingar eigi sjálfir að

brauðfæða sig eins og hægt er. Til

þess þurfi öflugan og vel skipulagðan

landbúnað.

Loksins uppljómun

„Það er hver einasti maður með

byggðastefnuna núna efsta á blaði.

Ég vildi að þið hefðuð frekar fengið

þessa uppljómun fyrir fimm árum,"

sagði Gunnar Páll Ingólfsson, efsti

maður Þjóðarflokksins.

„Meira að segja Albert, sem fylkir

liði. Stuðningsmenn Alberts, eða

Borgaraflokksins, eru þeir sem harð-

ast hafa mótmælt greiðslum til

landbúnaðarins. Hann hefur fengið

uppljómun líka.

Það er verið að bjóða mönnum á

vildisjörðum refabú, að slátra fénu

sínu. Svo er bætt við ærgildum hjá

þeim sem hafa ekki nema vegkantinn

til að beita á. Svona er nú skipulagið

á þessu.

Það tala allir um þetta, niður-

greiðslur, framleiðnisjóð, fram-

leiðsluráð. Það byggist allt á

framleiðslunni. Hvað haldið þið að

fyrirtæki gæti gengið lengi þar sem

eingöngu væri hugsað um fram-

leiðsluþáttinn? Söludeildin væri ekki

til. Það yrði lítið úr því fyrirtæki.

Það er eins og enginn þori að

minnast á markaðsmál. Vöruþróun.

Hvað er það?" spurði Gunnar Páll.

Davíð Aðalsteinsson sagði í síðari

ræðu sinni að ef óheft framleiðsla

hefði haldið áfram hefði það verið

vísasti vegur til fátæktar í sveitum.

Smygl með farskipum

Skúli Alexandersson sagði að í síð-

asta farmannaverkfalli heföi sannast

hversu kjötsmyglið væri mikið. Kiöt-

sala hefði þá stóraukist. Sakaði Skúli

Eimskipafélagið og skipadeild Sam-

bandsins um að vera aðalútgerðirnar

í smyglinu.

„Vegna þess sem ég sagði hér áðan

um auknar niðurgreiðslur er rétt að

árétta það að ég er ekki viss um að

allir félagar mínir í Alþýðuflokknum    *

taki undir þessa skoðun mína," sagði

Eiður.

Frekar rekjum við ekki umræður

á fundinum sem hófst klukkan níu

um kvöldið á Hótel Borgarnesi og

lauk ekki fyrr en klukkan hálftvo

um nóttina.

-KMU

Hverju spáir þú um úrslit kosninganna

í Vesturlandskjördæmi? (Spurt í Borgarnesi)

Sveinn Finnsson bóndi: Ég held að

það sé erfiðara að spá núna en

nokkru sinni. Þetta er glundroði.

Það verður erfitt að mynda ríkis-

stjórn úr þessu. Kannski verður

Albert til þess að fella annan manri

Sjálfstæðisflokksins og bjarga Davíð

Aðalsteinssyni. Það er öruggt að

kratarnir tapa.

Finnur Einarsson, vinnur hjá Borg-

arneshreppi: Ég er ansi hræddur um

að Davíð falli og sennilega Skúli

líka. Kvennalistinn tekur af Skúla.

Alþýðuflokksmaðurinn verður inni

og sjálfstæðismenn gætu orðið tveir.

Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur

og S-listi vinna á. Ingi Björn gæti

fellt Valdimar.

Albert Þorkelsson bakarameistari:

Sjálfstæðisflokkur tapar náttúrlega

fylgi til Alberts. Það fellir mjög lík-

lega Valdimar Indriðason. Ég hugsa

að það verði til þess að Davíð Aðal-

steinsson komist inn.

Gréta Þorsteinsdóttir húsmóðir: Ég

vona að Sjálfstæðisflokkurinn vinni

á. Að mínu mati hefur Borgaraflokk-

urinn litil áhrif hér á Vesturlandi.

Eg hef ekki trú á að Kvennalistinn

nái langt. Ég held að Framsókn sé á"

undanhaldi.

í kaffihléi blönduðu frambjóðehdur geði við kjósendur.

Edda Ottósdóttir ráðskona: Ætli

Borgaraflokkurinn vinni ekki mest

á. Hann nær örugglega þingsæti í

kjördæminu. Alþýðuflokksmaðurinn

fellur. Ég held að Kvennalistinn nái

ekki langt en hinir verða svipaðir.

Helga Ólafsdóttir skrifstofumaður:

Eg er ekki viss um að Borgaraflokk-

urinn fái eins mikið fylgi og honum

er spáð. Ég er ansi hrædd um að fylgi

hans eigi eftir að detta niður þegar

á hólminn er komið. Kvennalistinn

og kratar vinna á hér. Sjálfstæðis-

flokkur, Framsókn og Alþýðubanda-

lag tapa.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40